Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2013 | 21:45

PGA: John Daly neðstur af þeim sem komust í gegnum niðurskurð á Sony Open á Hawaii – Myndskeið

John Daly vekur jafnan athygli hvar sem hann fer. Daly, sem sigrað hefir tvö risamót, átti afleitan hring í gær upp á 79 högg á Sony Open (var með 45 högg á fyrri 9 og 34 högg á seinni 9). Hringur Daly var jafnskrautlegur og hann sjálfur. Á þessum hring, sem var 3. hringur mótsins fékk hann þannig 3 fugla, 9 pör, 2 skolla, 2 skramba, 2 þrefalda skolla. Það segir þó ekki alla söguna. Daly var skelfilega óheppinn og sýndi virkilega skemmtilega takta inn á milli m.a. í þessu myndskeiði þar sem hann setur niður fuglapútt af 52 feta færi á par-5, 9. holunni SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurður Óli Guðnason – 13. janúar 2013

Það er  hann Sigurður Óli Guðnason, eða Siggi Óli eins og hann er kallaður, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann er fæddur 13. janúar 1968 og er því 45 ára í dag! Sambýliskona Sigga Óla er Kristín Inga Sigvaldadóttir Fjeldsted.  Komast má á facebook síðu Sigga Óla til þess að óska afmælisbarninu til hamingju með daginn hér að neðan: Siggi óli (45 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mark O´Meara 13. janúar 1957 (56 ára);  Gyða Björk Ágústsdóttir, 13. janúar 1978 (35 ára); Rachel Bell, 13. janúar 1982 (31 árs) ….. og ….. Gunnar Gunnarsson Birgir Albertsson Sanders, GS (46 ára) Baldur Ólafsson (44 ára) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2013 | 15:30

Evróputúrinn: Louis Oosthuizen sigraði á Volvo Golf Champions

Það var Louis Oosthuizen sem sigraði á heimavelli þ.e. í Durban í Suður-Afríku á 1. móti Evrópumótaraðarinnar í ár; Volvo Golf Champions, nú fyrir skemmstu. Skotinn Scott Jamieson spilaði á parinu og það dugði ekki til sigurs, en Jamieson leiddi fyrir lokahringinn. Sigurskor Louis Oosthuizen var samtals 16 undir pari, 272 högg (68 64 74 66). Oosthuizen lék lokahringinn á 6 undir pari, 66 höggum fékk 7 fugla, 10 pör og 1 skolla. Scott Jamieson var aðeins ergilegu 1 höggi á eftir á samtals 15 undir pari, 273 höggum (69 64 68 72). Hringurinn hans í dag var sá eini yfir 70. Thaílendingurinn Thongchai Jaidee var í 3. sæti á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2013 | 13:00

Jesper Parnevik skrifar undir samning við Puma

Kannski að litríka myndskeiðið „Gangnam Style“  hafi haft sitt að segja í því að Jesper Parnevik er nú kominn á samning hjá PUMA. Eða kannski það sé bara afstaða hans til lífsins almennt; sem er svo skemmtileg og jákvæð. Hver sem ástæðan er þá er Parnevik nú einn af þeim kylfingum, sem gengið hafa til liðs við Cobra Puma Golf. Um það hafði Jesper Parnevik m.a. eftirfarandi að segja: „Ég er ánægður með að vera hluti af Cobra Puma Golf team; þeir eru ekkert hræddir við að gera hlutina aðeins öðruvísi.  Ég hef keppt með Cobra kylfum og verið í Puma golfötum á ferli mínum. Ég er ánægður með að vera Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2013 | 05:00

PGA: Nýliðarnir Henley og Langley efstir á Sony Open á Hawaii eftir 3. dag – Myndskeið

Það eru nýliðarnir Russell Henley, sem komst á PGA Tour í gegnum Web.com mótaröðina og Scott Langley, sem hlaut kortið sitt í ár í gegnum Q-school PGA sem eru efstir á 2. móti PGA mótaraðarinnar í ár, þ.e. Sony Open, sem fram fer á Waialea golfvellinum á Hawaii. Báðir eru búnir að spila á samtals 17 undir pari, 193 höggum; Henley (63 63 67) og Langley (62 66 65). Langley átti betri hring í gær; enda varð hann að sækja á til að halda sér í forystunni, það gerði hann alveg frá upphafi og má m.a. sjá fallegan fugl hans á par-4 2. holunni með því að SMELLA HÉR: Báðir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2013 | 21:05

GSG: Helgi Birkir Þórisson og Ásgeir Eiríksson sigruðu í Janúarmóti GSG nr. 1 – Myndasería

Í dag fór fram í mestu blíðu á Kirkjubólsvelli þeirra Sandgerðinga Janúarmót GSG nr. 1 styrkt af Golfbúðinni. Þegar Golf 1 lagði af stað til Sandgerðis frá Hafnarfirði var mikil hálka og á leiðinni var keyrt fram hjá 3 bílslysum, þannig að það er best fyrir kylfinga að fara varlega á þessum árstíma og gefa sér góðan tíma til þess að komast á milli staða og vera ekki á síðustu stundu á rástíma. Þrátt fyrir nokkra hálku og það að kalt var í veðri þá var að öðru leyti fyrirtaksveður, stilla og jafnvel sól! Það voru 94 kylfingar skráðir til leiks og 92 kylfingar luku keppni, þar af 7 konur. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2013 | 20:45

Mynd dagsins: Erró

Í dag fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði „Golfbúðin Janúarmót GSG Nr 1.“ Það er ótrúlegt að hægt sé að spila golf á Íslandi 12. JANÚAR!!!! – Um hávetur!!!! Það var einn sem fylgdist af gaumgæfni með kylfingunum 92 sem kepptu í dag úr golfskálanum, en það var Erró!!! Þegar ljósmyndara Golf 1 bar að garði stillti Erró sér að sjáfsögðu upp!! Erró er litli hundurinn hans Skafta Þórissonar í GSG og fylgir húsbónda sínum út um allt hvort heldur Skafti er að spila eða keppa í golfi  eða sjá um rjómalöguðu aspassúpuna ásamt Guðmundi, framkvæmdastjóra GSG, sem kylfingar gæddu sér á að keppni lokinni í dag . Þannig var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2013 | 17:15

Afmæliskylfingur dagsins: Berglind Richardsdóttir – 12. janúar 2013

Það er Berglind Richardsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Berglind er fædd 12. janúar 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Berglind býr ásamt fjölskyldu sinni í Sandgerði. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Berglindi til hamingju með daginn hér að neðan: Berglind Richardsdóttir (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Harold Hilton f. 12. janúar 1869 – d. 5. mars 1942); Patty Hayes, 12. janúar 1955 (58 ára); Craig Parry, 12. janúar 1966 (ástralski túrinn) ….. og ….. Sigríður Jóhannsdóttir (44 ára) Davíð Viðarsson (34 ára) Eiríkur Svanur Sigfússon (46 ára) Félag Um Jákvæða Sálfræði (23 ára) Golf 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2013 | 16:55

Evróputúrinn: Scott Jamieson leiðir með 5 höggum fyrir lokahringinn í Suður-Afríku

Það er Skotinn Scott Jamieson, sem leiðir fyrir lokahringinn á Volvo Golf Champions í Durban, Suður-Afríku. Jamieson er búinn að spila á samtals 15 undir pari, 201 höggi (69 64 68).  Skorkort Jamieson var annars ansi skrautlegt en á því gaf m.a. að finna 1 örn, 5 fugla, og 9 pör og 3 skolla. Öðru sætinu, heilum 5 höggum á eftir Jamieson eru þeir Louis Oosthuizen, sem var í forystu í gær, Thongchai Jaidee frá Thailandi, sem leiddi 1. daginn og Frakkinn Julien Qusne; allir á 10 undir pari, 206 höggum samtals, hver. Í fimmta sæti, á samtals 8 undir pari hvor, eru síðan þeir Pádraig Harrington og Francesco Molinari. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2013 | 16:30

PGA: Dustin Johnson dregur sig úr Sony Open með flensueinkenni

Dustin Johnson mun ekki hefja árið með tveimur sigrum í röð. Johnson, sem vann fyrsta mót ársins á PGA mótaröðinni, Hyundai Tournament of Champions, sem stytt var í 3 hringi og seinkaði vegna rigningar og hvassviðris, dró sig úr Sony Open mótinu á Hawaii í gær eftir að hafa aðeins spilað helming seinni hringjar síns. Golf Channel sagði frá því að Johnson hefði verið með flensueinkenni. Fyrsta hring sinn á Sony Open spilaði Johnson á sléttu pari, 70 höggum. Heimild: PGA Tour