Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 20:30
PGA: Eftirminnileg augnablik í gegnum tíðina á Sony mótinu á Hawaii – Myndskeið

Í eftirfarandi myndskeiði má sjá nokkuð eftirminnileg augnablik á Sony mótinu, sem haldið hefir verið í mörg ár á Waialea Country Club á Hawaii. Leikur á 1. hring mótsins stendur yfir, en Sony mótið hófst í dag. Í myndskeiðinu má m.a. sjá Isao Aoki fyrsta Japanann sem sigraði á PGA mótaröðinni og ótrúlegt högg hans í mótinu árið 1983. Til þess að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 19:00
Golfvellir á Englandi: Golfvöllur Lingfield Park Marriot Hotel & Country Club – Myndskeið

Eins og lesendur Golf 1 hafa eflaust orðið varir við er hér til hægri á síðunni komin ný auglýsing frá GB ferðum og Icelandair en þar er verið að auglýsa vorferðir til vinsælla golfáfangastaða á Englandi. Það þarf ekki annað en að „smella á“ auglýsinguna þá opnast inn á vefsíðu GB ferða þar sem fá má upplýsingar um 10 spennandi ferðir, sem í boði eru. Nýr áfangastaður Icelandair er Gatwick og GB ferðir bjóða upp á 3 nýja gistimöguleika á Gatwick svæðinu – Hægt er að bóka ferðirnar sem eru 4 daga í síma: 534-5000 eða á info@gbferdir.is. Hægt er að spila golf báða ferðadagana, sem er auðvitað mikilvægt þegar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 15:45
Evróputúrinn: Thongchai Jaidee efstur í Durban eftir 1. dag Volvo Golf Champions

Það er thaílenski kylfingurinn Thongchai Jaidee, sem er í efsta sæti eftir 1. dag Volvo Golf Champions, sem hófst í dag í Durban í Suður-Afríku. Í mótinu taka aðeins þátt sigurvegarar á Evrópumótaröðinni á síðasta ári og þeir sem unnið hafa 10 eða fleiri mót á mótaröðinni. Mótið stendur dagana 10.-13. janúar 2013. Jaidee, kom í hús á 7 undir pari, 65 höggum – fékk 8 fugla, 9 pör og 1 skolla í dag. „Mér finnst þetta skemmtilegur völlur,“ sagði Jaidee eftir hringinn í dag. „Maður verður að hugsa mikið – ég sló aðeins 2 sinnum með drævernum og setti 3-járnið í pokann aðeins 15 mínútum áður en ég tíaði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 14:45
Afmæliskylfingar dagsins: Ian Poulter og Andrea Ásgrímsdóttir – 10. janúar 2013

Það eru Andrea Ásgrímsdóttir, golfkennari og „kraftaverkamaðurinn í Medinah“ Englendingurinn Ian Poulter, sem eru afmæliskylfingar dagsins. Andrea er fædd 10. janúar 1974 og er því 39 ára í dag. Andrea er klúbbmeistari kvenna í Golfklúbbnum Oddi 2012. Fyrsta viðtalið sem birtist hér á Golf 1 var tekið við Andreu og má sjá það með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Andreu hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með daginn!!! Andrea Asgrimsdottir (39 ára – Innilega til hamingju Andrea!!!) Ian James Poulter er fæddur 10. janúar 1976 í Hitchin, í Hertfordshire í Englandi og er því 37 ára í dag. Þessi 1.85 m og 86 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 13:45
GSG: Golfbúðin Janúarmót GSG nr.1 nk. laugardag 12. janúar 2013

Næstkomandi laugardag 12. janúar 2013 verður haldið „Golfbúðin Janúarmót GSG Nr. 1″ og fer það fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Ræst verður út bæði á 1. og 10. teig, til þess að ná sem flestum út sem fyrst, sem nauðsynlegt er meðan sól er enn svo lágt á lofti sem raun ber vitni og dagurinn en lengri en nóttin. Veitt eru 1 verðlaun fyrir besta skor án forgjafar: 15.000 kr gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði og þrenn verðlaun fyrir flesta punkta með forgjöf þ.e.: 1 sæti 15.000 kr Gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði. 2 sæti 7.500 kr Gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði. 3 sæti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 13:00
Thaílensku golfsysturnar Ariya og Moriya Jutanugarn skrifa undir samning við IMG

Eftir að hafa verið leiðandi á heimsvísu á unglinga- og áhugamannamótum s.l. ár þá hafa golfsysturnar frá Thaílandi, Ariya og Moriya Jutanugarn nú skrifað undir samning við eina af leiðandi umboðsskrifstofum í golfbransanum, IMG. Systrunum hefir verið lýst, sem „næstu kynslóð“ í kvennagolfinu. Moriya, sem er fædd 28. júlí 1994 í Bankok og því 18 ára gerðist atvinnumaður 2012 og systir hennar Ariya, sem er ári yngri (fædd. 23. nóvember 1995) og nýorðin 17 ára gerðist atvinnumaður í síðasta mánuði. Þær systur stóðu sig vel í Q-school beggja vegna Atlantshafs: Moriya varð í 1. sæti ásamt Rebeccu Lee-Bentham frá Kanada í Q-school LPGA og Ariya vann Q-school LET örugglega með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 12:00
Tiger hefur 2013 keppnistímabilið í Abu Dhabi 2. árið í röð

Tiger Woods hefur 2013 keppnistímabilið í næstu viku á Abu Dhabi HSBC Golf Championship, en þetta er 2. árið í röð sem Tiger leikur í upphafsmóti ársins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann varð í 3. sæti á mótinu í fyrra 2 höggum á eftir Robert Rock frá Englandi, en þeir tveir voru jafnir eftir 3 hringi. Rory McIlroy hefir einnig boðað þátttöku sína og er mættur til Abu Dhabi og æfir stíft. Verðlaunafé í mótinu, sem hefst 17. janúar n.k. er $2.7 milljónir. „Ég er spenntur fyrir að keppa aftur,“ sagði Tiger í fréttatilkynningu á vefsíðu sinni. „Vonandi skila æfingarnar sér.“ Nr. 3 á heimslistanum mun síðan snúa heim til Bandaríkjanna og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2013 | 19:30
Viðtalið: Hrafn Guðlaugsson, GSE.

Viðtalið í kvöld er við klúbbmeistara GSE, 2012 Hrafn Guðlaugsson. Hrafn spilar í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Faulkner University í Alabama, í Bandaríkjunum og hefir gengið virkilega vel í vetur! Hér er ekki bara á ferðinni frábær kylfingur heldur einstaklega viðkunnanlegur ungur maður: Fullt nafn: Hrafn Guðlaugsson. Klúbbur: GSE – Setbergið í Hafnarfirði. Upphaflega var ég í GFH (Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs). Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík, 21. október 1990. Hvar ertu alinn upp? Ég ólst upp á Djúpavogi þangað til ég var 8-9 ára og flutti þá til Egilsstaða. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Pabbi og síðan bara margir ættingjar, bræður pabba og mömmu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2013 | 12:30
10 hápunktar ársins 2012

Ótrúlegt hvað tíminn flýgur! Nú eru 9 dagar liðnir af nýja árinu og jólin rétt búin. Það er alltaf gaman að rifja upp og hér fara 10 hápunktar síðastliðins árs 2012: NOKKRIR HÁPUNKTAR ÁRSINS 2012 1. Pútt Martin Kaymer á Ryder Cup: Hefði pútt Martin Kaymer ekki farið ofan í, í tvímenningsleikjum sunnudagsins er næsta víst að Tiger hefði klárað dæmið fyrir Bandaríkjamenn og bikarinn hefði flogið yfir til Bandaríkjanna. Kaymer sýndi stáltaugar og náði að halda Ryder bikarnum í Evrópu…. og þar verður hann a.m.k. í 2 ár í viðbót! 2. Fimm fuglar Poulter í röð í fjórbolta-leikjum laugardagsins: Einn fugl, síðan tveir og þrír. Augun að rúlla út úr augntóftunum. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Alejandro Cañizares – 9. janúar 2013

Það er spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares sem er afmæliskylfingur dagsins. Alejandro er fæddur í Madríd á Spáni, 9. janúar 1983 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Alejandro spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Arizona State. Hann varð atvinnumaður í golfi 2006 og komst strax á Evrópumótaröðina og hóf keppni þar með stæl því strax í 3. móti sínu sigraði hann á Imperial Collection Russian Open. Pabbi Alejandro José Maria er líka á Evrópumótaröðinni – reyndar er Alejandro af einni þekktustu golffjölskyldu Spánar, en pabbi hans var m.a. í 4 Ryder Cup liðum fyrir Evrópu (1981, 83, 85, 89). Pabbi Alejandro vann líka heimsbikarinn með José Rivero, 1984, meðan bróðir Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

