Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 20:00

Evróputúrinn: Siem efstur eftir 1. dag í Marokkó

Það er Þjóðverjinn Marcel Siem, sem leiðir eftir 1. dag á Trophée Hassan II mótinu, sem hófst í dag á Royal Palais golfvellinum í Agadír, Marokkó. Siem var á 8 undir pari, 64 glæsihöggum á hring þar sem hann fékk 2 erni, 5 fugla, 10 pör og 1 skolla.  Hann á 3 högg á þann sem næstur kemur Spánverjann Alvaro Velasco, sem var á 5 undir pari, 67 höggum í dag. Þriðja sætinu deila 3 Englendingar: David Horsey, Graeme Storm og Simon Wakefield allir á 4 undir pari, 68 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Trophée Hassan II SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 19:30

Ólafur Björn á 3 yfir pari eftir 1. dag í N-Karólínu

Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur þessa dagana þátt á The Championship at St. James, en mótið er hluti af eGolf mótaröðinni. Mótið fer fram dagana 27.-30. mars í Reserve Club at St. James í Southport, Norður-Karólínu. Ólafur Björn er búinn að leika fyrstu 2 hringina á samtals 3 yfir pari, 147 höggum (73 74) og er sem stendur í 37. sæti, en nokkrir eiga eftir að ljúka 2. hring þegar þetta er ritað. Fremur vindasamt var í dag og aðstæður erfiðar til leiks. Á facebook síðu sinni skrifar Ólafur Björn eftirfarandi um leik sinn 1. daginn á The Championship at St. James: „Sáttur við spilamennsku dagsins en bíð óþreyjufullur eftir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Liebelei Elena Lawrence – 28. mars 2013

Afmæliskylfingur dagsins  er  grísk-lúxembúrgíski kylfingurinn Liebelei Elena Lawerence, en hún er fædd 28. mars 1986 og því 27 ára í dag. Liebelei fluttist frá Aþenu til Lúxembourg, þegar hún var 3 ára gömul.  Hún byrjaði að spila golf 10 ára gömul og er í dag með 1,6 í forgjöf. Gríska stúlkan með fallega nafnið spilar í dag á Evrópumótaröð kvenna (LET). Liebelei Lawrence Liebelei var í Vanderbilt University í Nashville Tennessee á golfstyrk, þar sem hún spilaði golf í 4 ár (2004-2008). Öll árin var hún „Letter Winner“ og spilaði á 2. „teem All-Sec“ á lokaári sínu í háskóla. Hún varð í 19. sæti á lokaúrtökumóti LET, sem fram fór Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 10:45

Ný umdeild Tiger auglýsing frá Nike

Nike er nú búið að senda frá sér enn eina Tiger auglýsinguna, sem farið hefir fyrir brjóstið á mörgum vestan hafs vegna skilaboðanna sem hún sendir út.  Auglýsingin er ekkert annað en mynd af Tiger, en þvert yfir hana stendur „Winning takes care of everything.“ (lausleg þýðing: Sigur snýr öllu til betri vegar.“) Það sem mönnum finnst að auglýsingunni er að hún gefur í skyn að það að sigra og vera fremstur hvítþvoi viðkomandi sigurvegara af öllu röngu sem hann hefir gert og það gefi mönnum því móralskt séð röng skilaboð.  Einhverjir ógagnrýnir aðilar kunna að hugsa sem svo að það sé allt í lagi hvað svo sem þeir geri, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og félagar í 4. skipti í 1. sæti í vetur!!!

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og golflið Faulkner háskólans í Alabama, „The Eagles“  eru svo sannarlega að gera góða hluti!!! Dagana 24.-26. mars s.l. tóku Hrafn og félagar þátt í Emmanuel College Invitational í Hartwell, Georgíu og varð liðið í 1. sæti!!!  Þetta er í 4. skipti í vetur sem liðið hafnar í 1. sætinu!!! Þátttakendur í mótinu voru 51 frá 9 háskólum. Lið Faulkner háskóla hafði algera yfirburði; var 14 höggum betra en liðið í 2. sæti, gestgjafarnir í Emmanuel College í Georgiu.  Samtals var lið Faulkner á 15 yfir pari, 591 höggi (298 293). Liðsfélagi Hrafns, Daniel Jansen varð í 1. sæti í einstaklingskeppni mótsins, en Hrafn var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2013 | 20:00

Viðtalið: Siggi Sveins, GKJ.

Flestir kannast við Sigga Sveins fyrrum landsliðsmann í handbolta, sem m.a. tók þátt fyrir Íslands hönd í Ólympíuleikunum 1984 og 1988.  Færri vita að hann er frábær kylfingur sem m.a. sigraði nú s.l. helgi, þ.e. 23. mars 2013, í punktahluta Opna Vormóts GKJ I og Golf Outlet.  Viðtal Golf1 í kvöld er við eina bestu skyttu í handboltanum, sem Ísland hefir átt, sem nú dúndrar golfboltum ofan í holu af miklum móð – hefir m.a. næstum farið „holu í hendingu“ þ.e. „hent ofan í holu í einu kasti,  en nánar um það hér í viðtalinu:   Fullt nafn: Sigurður Valur Sveinsson. Klúbbur:  Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ (GKJ). Af hverju ertu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2013 | 18:00

Kynþokki selur… líka í golfi

Það sem á ensku er nefnt „Sex sells“ er hér  þýtt með „kynþokki selur.“ …. og það er söluaðferð sem er jafngömul auglýsingabransanum sjálfum. Hvað er meira tælandi…. sérstaklega fyrir okkur sem þurfum að þola, kalda, gráa vordaga …. en sumarið sem framundan er? Út á það virðast jafnvel golfútbúnaðarframleiðendur gera í markaðsherferðum sínum …. t.a.m. framleiðandi Cobra, sem auglýsir nýja COBRA AMP CELL™ dræverinn með kylfingnum og módelinu Blair O´Neal , sem oftar en einu sinni hefir verið valin kynþokkafyllsti kylfingur allra tíma. Í auglýsingunni er Blair bara í bikini… sem leiðir hugann að heitum sumardögum. Auglýsingin og markaðsherferðin, sem ber nafnið „Play Golf With Blair“ hefir vakið mikla umræðu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2013 | 16:45

Þórður Rafn ekki áfram í Egyptalandi

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tók þátt í  Red Sea Ain Sokhna Open mótinu, sem fram fer í Egyptalandi, dagana 26.-28. mars, en mótið er hluti af hinni þýsku Pro Golf Tour. Þátttakendur eru 80. Þórður Rafn lék fyrsta hringinn í gær á 6 yfir pari, 78 höggum. Á hringnum fékk hann 2 fugla, 10 pör, 5 skolla og 1 skramba.  Í dag bætti hann sig um 3 högg, var á 3 yfir pari, 75 höggum, á hring þar sem hann fékk 2 fugla, 11 pör og 5 skolla.  Samtals var Þórður Rafn því á 9 yfir pari, 153 höggum (78 75). Það dugði ekki til þess að komast í gegnum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2013 | 16:00

Nýju strákarnir á PGA 2013: Fabián Gómez – (16. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013. Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 17.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 3 strákum sem deildu 10. sætinu þeim: Michael Letzig, Jeff Gove og Fabian Gomez.  Michael Letzig og Jeff Gove  hafa þegar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Jónsdóttir – 27. mars 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Jónsdóttir. Steinunn er fædd 27. mars 1951 og er í Golfklúbbi Sandgerðis. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum, með góðum árangri. Komast má á facebook síðu Steinunnar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Steinunn Jónsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) F. 27. mars 1951 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Ignacio Garrido, 27. mars 1972 (41 árs); David Dixon, 27. mars 1977 (36 ára); rússneski kylfingurinn María Verchenova, 27. mars 1986 (27 ára) …. og …. Dansinn Lengi Lifi F. 27. mars 1947 (66 ára) Eysteinn Marvinsson F. 27. mars 1969 (44 ára) Georg Magnússon F. 27. mars Lesa meira