Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Liebelei Elena Lawrence – 28. mars 2013

Afmæliskylfingur dagsins  er  grísk-lúxembúrgíski kylfingurinn Liebelei Elena Lawerence, en hún er fædd 28. mars 1986 og því 27 ára í dag. Liebelei fluttist frá Aþenu til Lúxembourg, þegar hún var 3 ára gömul.  Hún byrjaði að spila golf 10 ára gömul og er í dag með 1,6 í forgjöf. Gríska stúlkan með fallega nafnið spilar í dag á Evrópumótaröð kvenna (LET).

Liebelei Lawrence

Liebelei var í Vanderbilt University í Nashville Tennessee á golfstyrk, þar sem hún spilaði golf í 4 ár (2004-2008). Öll árin var hún „Letter Winner“ og spilaði á 2. „teem All-Sec“ á lokaári sínu í háskóla.
Hún varð í 19. sæti á lokaúrtökumóti LET, sem fram fór á La Manga golfvellinum á Spáni, í desember 2010.

Liebelei er sú fyrsta á LET til að keppa f.h. Grikklands og koma frá Lúxembourg, en hún er með tvöfalt ríkisfang, þ.e. hún er grískur og bandarískur ríkisborgari, en býr í Lúxembourg.

Meðal áhugamála Liebelei eru skokk. skíði, yoga, pilates, að lesa og ferðast.

Hún talar reiprennandi 5 tungumál: grísku, ensku, lúxembúrgísku, frönsku og þýsku.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tom Ray, 28. mars 1872, d.26. ágúst 1943;  Scott Langle, 28. mars 1989 (24 ára)

 … og …

F. 28. mars 1977 (36 ára)

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is