Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 20:15
GKG-ingar sigursælir á Páskamóti GG

Í dag fór fram á Húsatóftavelli þeirra Grindvíkinga Páskamót GG 2013. Fjölmargir kylfingar létu kulda ekki á sig fá og léku á fínum Húsatóftavelli sem kemur vel undan vetri. Þátttakendur voru 119 og 109 luku keppni þar af 10 konur, en af þeim stóð Camilla Margareta Tvingmark, GKJ, sig best (í höggleiknum og deildi 1. sætinu meðal kvennanna með klúbbmeistara GG 2012 í punktakeppnishlutanum: Gerðu Hammer). Eins hlaut Camilla nándarverðlaun, sbr. nánar hér að neðan. Í höggleiknum bar Aron Snær Júlíusson, GKG, sigurorð af öðrum keppendum en hann spilaði völlinn á 1 yfir pari, 71 glæsihöggi!!! Í punktakeppnishlutanum sigraði Sigurjón Gunnarsson, GKG á 37 punktum. Í 2. sæti varð Helgi Axel Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 20:00
Ólafur Björn fór í gegnum niðurskurð!
Ólafur Björn Loftsson, NK, hóf í gær leik á The Championship at St. James, en mótið er hluti af eGolf mótaröðinni. Mótið fer fram dagana 27.-30. mars í Reserve Club at St. James í Southport, Norður-Karólínu. Ólafur Björn komst í dag í gegnum niðurskurð er samtals búinn að spila á 6 yfir pari, 222 höggum (73 74 75) og er í 32. sæti. Ólafur fékk 2 fugla, 11 pör og 5 skolla í dag. Það voru 56 kylfingar sem fóru í gegnum niðurskurð og fá að spila á lokahringinn á morgun! Glæsilegur árangur hjá Ólafi Birni!!! Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á The Championship at St. James SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 19:30
LET: Ariya í forystu á 2. degi í Marokkó

Í gær hófst í Marokkó Lalla Meryem Cup, sem samsvarar Hassan II Golf Trophée hjá konunum. Spilað er á Golf de l´Ocean í Agadír, Marokkó. Í 1. sæti þegar mótið er hálfnað er thaílenski kylfingurinn Ariya Jutanugarn, sem varð í 1. sæti í lokaúrtökumóti LET á sama velli, seint á s.l. ári. Ariya er búin að spila á samtals 6 undir pari, 136 höggum (69 67). Öðru sætinu deila 4 kylfingar: Beth Allen, Mallory Fraiche, Lee-Anne Pace og Charley Hull; allar á samtals 4 undir pari, 138 höggum, hver; tveimur höggum á eftir Ariyu. Golfdrottningin Laura Davies og W-7 módelið fyrrverandi Mikaela Parmlid deila síðan 7. sætinu á samtals 3 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 18:45
Afmæliskylfingur dagsins: Kirk Alan Triplett – 29. mars 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Kirk Alan Triplett, en hann er fæddur í Moses Lake, Washington, 29. mars 1962 og á því 51 ára afmæli í dag. Það fer ekki mikið fyrir þessum mikla golfsnillingi, sem spilar á PGA, en fær eftir daginn í dag þátttökurétt á Champions Tour. Triplett var á sínum tíma meðal 25 bestu á heimslistanum. Í dag hefst Shell Houston mótið á PGA mótaröðinni, en Triplett varð einmitt í 2. sæti á því móti fyrir nákvæmlega 20 árum síðan, 1992. Triplett gerðist atvinnumaður í golfi 1985. Hann hefir þrívegis sigrað á PGA Tour og 1 sinni á Nationwide. Besti árangur hans á risamótum er T-6 árangur á The Masters, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 17:30
Recari í Morning Drive – Myndskeið

Spænski kylfingurinn Beatriz Recari hefir verið mikið í golffréttamiðlum nú í s.l. viku vegna sigurs síns á Kia Classic mótinu á Aviara golfvellinum í Carlsbad, Kaliforníu sl. helgi. Golfþátturinn „Morning Drive“ á Golf Channel er í uppáhaldi hjá mörgum kylfingnum. Og auðvitað var Recari í viðtali hjá Holly Sonders í Morning Drive, þar sem ýmislegt var til umræðu m.a. stöðugleikinn, sem allir kylfingar sækjast eftir – en Recari hefir m.a. verið nefnd „járnfrúin“ á golfvellinum vegna járnaga síns og stöðugleika, sem gat ekki endað í öðru en sigri hennar. Eins voru átraskanir til umræðu en Recari hefir m.a. þurft að fást við bulimiu. Til þess að sjá myndskeið af því þar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 17:15
Evróputúrinn: Siem heldur forystunni

Þjóðverjinn Marcel Siem, heldur forystunni á Hassan II Golf Trophée mótinu í Marokkó; er búinn að spila á samtals 12 undir pari 132 höggum (64 68). „Mér finnst að þetta (seinni hringurinn) hefði átt að vera betri en hann var,“ sagði Siem eftir 2. hring. „Skollarnir sem ég fékk á 4. og 7. braut voru svolítið skrítnir,“ en Siem fékk 7 fugla, 7 pör og 4 skolla á hringnum í dag. Siem hefir 3 högga forystu á Englendinginn David Horsey og Mikko Ilonen, en þeir eru báðir búnir að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum, hvor. Í 4. sæti er síðan Spánverjinn Pablo Larrazábal á 8 undir pari, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2013 | 00:15
PGA: DA Points í forystu á Shell Houston – Hápunktar og högg 1. dags

Það er bandaríski kylfingurinn DA Points, sem tekið hefir forystu á Shell Houston mótinu, sem hófst í kvöld á keppnisvelli Redstone golfklúbbsins í Humble, Texas. Points lék á 8 undir pari, 64 höggum og þakkar góða frammistöðu pútter móður sinnar, sem hann fékk lánaðan. Spurning hvort mamman fái gripinn aftur á næstunni? Í 2. sæti eru Bandaríkjamennirnir Cameron Tringale og John Rollins á 7 undir pari, 65 höggum. Fjórða sætinu deila síðan Jason Kokrak og gamla brýnið Angel Cabrera frá Argentínu, báðir á 6 undir pari, 66 höggum. Fyrrum nr. 1 á heimslistanum. Rory McIlroy, virðist ekki hafa farið að ráðum Tiger og fjarlægt neitt úr líkama sínum – spilaði á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 23:59
GS: Sigurður Jónsson og Óttar Helgi Einarsson sigruðu á Egils Gullmótaröð nr. 2 – Myndasería
Í dag fór fram í alveg yndislegu veðri í Leirunni 2. mótið í Egils Gullmótaröðinni. Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu frá mótinu með því að SMELLA HÉR: Leikfyrirkomulagið var höggleikur og punktakeppni með forgjöf. Fyrir besta skor voru veitt 1 verðlaun: Vörur frá Ölgerðinni að fjárhæð kr. 20.000,- Fyrir punktakeppnina voru veitt fern verðlaun, fyrir 1. sætið vörur frá Ölgerðinni að fjárhæð kr. 20.000, fyrir 2. sætið fyrir 15.000,- fyrir 3. sætið fyrir 10.000,- og fyrir 4. sætið fyrir kr. 8.000,00 Skráðir til keppni voru 119 og 117 luku keppni, þar af 5 konur og af þeim stóð Camilla Margareta Tvingmark sig best (bæði í höggleik Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 22:31
GÞ: Helgi Dan fór holu í höggi! – Myndasería
Í dag fór fram Opna páskamót GÞ. Mótið var jafnframt opnunarmót Þorláksvallar. Golf 1 var á staðnum, en auk þess tók Ingvar Jónsson, GÞ, nokkrar góðar myndir sem sjá má í meðfylgjandi myndaseríu með því að SMELLA HÉR: Það voru 69 skráðir í mótið og 63 luku keppni, þar af 5 konur. Kvennaflokkinn vann Ragnhildur Kristinsdóttir, afrekskylfingur úr GR með yfirburðum, bæði punktakeppnina (29 punktar) og höggleikinn (80 högg). Hún var jafnframt í 2. sæti yfir alla keppendur í höggleikshluta mótsins. Glæsilegt hjá Ragnhildi sem er að taka þátt í sínu fyrsta móti á árinu!!! En það voru fleiri glæsitaktar á Þorláksvelli í dag, því Helgi Dan Steinsson, klúbbmeistari GL 2012, fór nefnilega holu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2013 | 20:35
GSG: Þór Ríkharðsson og Karl Hólm sigruðu í Nóa Síríus Texas Scramble páskamóti – Myndasería

Í dag fór fram á Kirkjubólsvelli þeirra Sandgerðinga Nóa Síríus Texas Scrable páskamót GSG. Þátttakendur voru 128 eða 64 tveggja manna lið. Golf 1 var á staðnum og sjá má litla myndaseríu með því að SMELLA HÉR: Úrslitin voru eftirfarandi: 1.sæti: Þór Ríkharðsson og Karl Hólm 63 högg 2.sæti: Bjarki Þ Atlason og Halldór Halldórsson 67 högg 3.sæti: Hafþór Hafliðason og Gestur Már Sigurðsson 67 högg 4.sæti: Arnar Unnarsson og Hjörtur Þór Unnarsson 67 högg 5.sæti: Gísli Ölvir Böðvarsson og Jakob Már Böðvarsson 67 högg Nándarverðlaun: 2.braut: Sveinn Blöndal 1,85 m 15.braut: Sigurgeir Marteinsson 1,21 m 17.braut: Sigurður M Þórhallsson 1,16 m 18.braut í 3.höggi : Hjörleifur Þórðarson / Björn K Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

