Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 17:00
Snedeker um gengið á the Masters

Í gær hófst á PGA Tour RBC Heritage mótið og fer það fram í Harbour Town Golf Links á Hilton Head, Suður-Karólínu. Meðal keppenda er bandaríski kylfingurinn Brandt Snedeker sem var í forystu fyrir lokahring the Masters risamótsins, en glutraði síðan forystunni niður og var ekkert nema skugginn af Ángel Cabrera, sem spilaði með honum í lokahollinu. Á blaðamannafundinum fyrir RBC var Snedeker spurður úti í gengi sitt á the Masters 2013. Hér fara spurningar blaðamanna og svör Snedeker: Blaðamaður: Afsakaðu að ég skuli spyrja þig strax að þessu (gengi Snedeker á the Masters risamótinu s.l. helgi) BRANDT SNEDEKER: Allt í lagi. Ég vissi að von væri á þessu Blaðamaður: Samanborið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Matteo Manassero – 19. apríl 2013

Það er ítalski kylfingurinn Matteo Manassero sem er afmæliskylfingur dagins. Manasero er fæddur 19. apríl 1993 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Golf 1 hefir kynnt afmæliskylfing dagsins í 4 greinum, sem rifja má upp með því að smella á eftirfarandi: MANASSERO 1; MANASSERO 2; MANASSERO 3; MANASSERO 4; Matteo Manassero tók þátt í the Masters risamótinu s.l. helgi, var í ráshóp með kínverska undraunglingnum Guan Tianlang og tvöföldum risamótsmeistara Ben Crenshaw. Því miður komst Manassero ekki í gegnum niðurskurð. Nú um helgina er hann kominn til Valencia á Spáni, þar sem hann tekur þátt í Open de España. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 13:00
Bandaríska háskólagolfið: Axel og Mississippi State hefja leik í dag á SEC Championship

Axel Bóasson, GK og „the Bulldogs“ golflið Mississippi State hefja leik í dag á SEC Championship. Leikið er á Seaside golfvellinum í Sea Island golfklúbbnum á St. Simmons Island í Georgíu, dagana 19.-21. apríl 2013 Þátttakendur eru 70 frá 14 háskólum. Fylgjast má með gengi Axels og Mississippi State með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 12:30
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn hefur leik í dag á ACC Championship

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest hefja í dag leik á ACC Championship. Mótið fer fram á golfvelli Sedgfield Country Club í Greensboro, Norður-Karólínu, dagana 19.-21. apríl 2013. Þátttakendur eru 45 frá 9 háskólum. Til þess að fylgjast með gengi Ólafíu Þórunnar og Wake Forest SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 11:45
LPGA: Suzann Pettersen efst þegar Lotte mótið er hálfnað á Hawaii

Það er „norska frænka okkar“ Suzann Pettersen sem er efst þegar LPGA Lotte Championship á Hawaii er hálfnað. Suzann er samtals búin að spila á 10 undir pari, 134 höggum (65 69). Í 2. sæti er sú sem á titil að verja, japanska golfdrottningin Ai Miyazato, fv. nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna. Ai hefir leikið samtals á 9 undir pari, 135 höggum (67 68). Þriðja sætinu deila síðan 3 góðar Beatriz Recari frá Spáni og Hee Kyung Seo og Hyo Joo Kim frá Suður-Kóreu, allar á samtals 7 undir pari, hver. Fyrrverandi nr. 1 á heimslistanum Stacy Lewis frá Bandaríkjunum er ein í 6. sæti á samtals 6 undir pari Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 10:00
Golfreglur: Af óviðkomandi á púttflöt

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi: Keppandi í höggleikskeppni er að pútta á einni púttflötinni í mótinu. Á meðan bolti hans er á hreyfingu kemur hundur aðvífandi og tekur golfboltann í kjaft sér, þar sem hann heldur að um leik sé að ræða, hleypur með hann nokkra hringi á flötinni og setur hann síðan niður á holubrúninni. Hvernig dæmist? A. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 07:00
GN: Árni Guðjónsson og Brynja Garðarsdóttir hlutu Starfsmerki UÍA

Á ársþingi UÍÁ um helgina var Árni Guðjónsson „yfirsmiður“ Golfklúbbs Norðfjarðar sæmdur Starfsmerki UÍA. Árni er mjög vel að þessum heiðri kominn, enda drifkrafturinn í öllu uppbygingarstarfi GN frá því innrétting golfskálans hófst á haustdögum 1998. Hann hefur síðan stjórnað öllum byggingarframkvæmdum klúbbsins – innrétting golfskálsns, bygging véla- og áhaldageymslu, smíði palls við golfskálann, smíði og uppsetning á aðstöðu við æfingasvæðið og nú í vetur breyting á golfskálanum að innan. Öllu þessu hefur hann sinnt af áhuga og dugnaði í sjálfboðavinnu, auðvitað í samstarfi við aðra klúbbfélaga. Árni var á árinu 2005 sæmdur silfurmerki GSÍ fyrir störf sín í þágu klúbbsins. Allir eiga þeir Árni og félagar ómældar þakkir skildar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 01:15
PGA: Brian Davis leiðir á RBC – Hápunktar og högg 1. dags

Það er enski kylfingurinn Brian Davis, sem tekið hefir forystuna á RBC Heritage mótinu sem hófst á Hilton Head í Suður-Karólínu í kvöld. Davis lék 1. hring á 6 undir pari, 66 höggum. Í 2. sæti eru Bandaríkjamennirnir Kevin Streelman og Charley Hoffman aðeins 1 höggi á eftir á 5 undir pari, 67 höggum. Jafnir í 4. sæti eru síðan Ástralarnir snjöllu Marc Leishman og Jason Day ásamt Bandaríkjamanninum Johnson Wagner á 4 undir pari, 67 höggum. Til þess að sjá stöðuna í heild á RBC Heritage mótinu eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á RBC Heritage SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá högg 1. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2013 | 01:00
PGA: Tiger kylfingur marsmánaðar

Tiger hefir verið útnefndur kylfingur mars mánaðar á PGA Tour. Það sem varð einkum til þess að hann hlaut þessa heiðursnafnbót eru tveir sigrar hans s.l. mars á PGA Tour: sá fyrri á Cadillac Championship og sá síðari á Arnold Palmer Invitational. Hann hlaut 61% atkvæða í netkosningu þar sem menn gátu kosið á milli hans og D.A. Points, Kevin Streelman og Michael Thompson. Til þess að sjá myndskeið af því hvað leitt hafi til vals Tigers sem kylfings marsmánaðar SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 21:00
Evróputúrinn: 3 leiða í El Saler

Það eru 3 sem eru efstir og jafnir á Open de España í Parador de El Saler, rétt hjá Valencia á Spáni. Þessir þrír eru Felipe Aguilar frá Chile, Gary Stal frá Frakklandi og Morten Örum Madsen. Þeir eru allir á 4 undir pari, 68 höggum. Hópur 8 kylfinga deilir síðan 4. sætinu aðeins höggi á eftir og í þeim hóp er m.a. Gonzalo Fdez-Castaño. Enn annar hópur er aðeins 2 höggum á eftir forystunni á 70 höggum en í honum er m.a. bandaríski kylfingurinn Peter Uihlein. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Open de España SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

