Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 20:45

Anna Sólveig, Sara Margrét, Hafdís Alda, Gunnhildur og Særós Eva taka þátt í Irish Girls Open

Fimm stúlkur taka þátt í Irish Girls Open í Roganstown Golf & Country Club rétt hjá Dublin á Írlandi. Mótið fer fram 20.-21. apríl 2013. Stúlkurnar sem þátt taka eru: Anna Sólveig Snorradóttir, Sara Margrét Hinriksdóttir og Hafdís AldaJóhannsdóttir, allar úr Golfklúbbnum Keili og Gunnhildur Kristjánsdóttir og Særós Eva Óskarsdóttir úr GKG. Mótið er tveggja daga. Á þeim fyrri eru leiknar 36 holur og komast 50 efstu stúlkurnar í gegnum niðurskurð. Sjá má þátttakendalistann í mótinu með því að SMELLA HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 20:00

EPD: Þórður Rafn hlaut €240 í verðlaunafé í Marokkó

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tók þátt í sterku móti, Open Dar Es Salam mótinu í Marokkó, en mótið er hluti af EPD-mótaröðinni þýsku. Mótið stóð dagana 15. -17. apríl og lauk í gær. Leikið var á rauða golfvelli Royal Golf Dar Es Salam í Rabat, í Marokkó. Þórður Rafn komst í gegnum niðurskurð en hann lauk keppni í 45. sæti. Þórður var á samtals 13 yfir pari, 151 höggi (76 75 81) og fékk €  240  í verðlaunafé (sem eru tæp 40.000 íslenskar krónur). Til þess að sjá úrslitin á Open Dar Es Salam mótinu í Marokkó SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra og USF luku leik í 5. sæti á WCC Championship

Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og golflið University of San Francisco luku í gær leik á West Coast Conference Championship, en mótið fór fram í the Gold Coast GC í Bremerton í Washington. Þátttakendur voru 30 frá 6 háskólum. Eygló Myrra lék samtals 38 yfir pari (83 83 88) og var á lakasta skorinu í liði sínu.  Hún varð í 26. sæti í einstaklingskeppninni. Sigurvegarinn í einstaklingskeppninni varð Grace Na. Golflið University of San Francisco varð í 5. sæti í mótinu. Sjá má úrslitin á WCC Championship með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 11:55

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn lauk leik á SSAC Championship í 5. sæti

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012, og „The Eagles“ golflið Faulkner háskólans luku í gær leik á Southern States Athletic Conference (skammst. SSAC) Championships, sem fram fór í Lagoon Park, Montgomery, Alabama, dagana 15.-17. apríl.  Þátttakendur voru 54 frá 11 háskólum. Hrafn lauk leik í 5. sæti í einstaklingskeppninni, en hann var á samtals 1 undir pari, 215 höggum (69 75 71). 8 höggum munaði á Hrafni og þeim sem efstur varð í mótinu í einstaklingskeppninni, Florian Loutre, frá Lee University. Í liðakeppninni urðu „The Eagles“ golflið Faulkner háskóla í 2. sæti og taldi skor Hrafns, sem var á 3. besta skori í liði sínu. Til þess að sjá úrslitin í einstaklingskeppninni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 11:30

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhanna Þorleifsdóttir – 18. apríl 2013

Það er Jóhanna Þorleifsdóttir, GKS, sem er afmæliskylfingur dagsins.  Hún er fædd 18. apríl 1961. Jóhanna er fyrrum formaður Golfklúbbs Siglufjarðar. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins hér: Jóhanna Þorleifsdóttir, GKS F. 18. apríl 1961 (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Anne-Marie Palli, 18. apríl 1955 (58 ára, frönsk, var á LPGA); David Wayne Edwards, 18. apríl 1956 (57 ára, var á PGA); Ian Doig, 18. apríl 1961 (52 ára, kanadískur); Jeff Cook, 18. apríl 1961 (52 árs) …. og ….. List Án Landamæra Listahátíð Ragnar Olafsson F. 18. apríl 1976 (37 ára) Þórey Petra F. 18. apríl 1997 (16 ára) Ólafur Hjörtur Ólafsson Golf 1 óskar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 10:00

Golfreglur: Skil á skorkorti

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi:  Í höggleikskeppni, gefur mótsnefnd út skorkort þar sem á er rituð forgjöf keppanda að viðbættu nafni hans og dagsetningu. Mótsnefndin skráir ranglega forgjöf keppanda á skorkortið sem 7 í stað 6 og það hefir áhrif á skor hans, þannig að skor hans er betra en ef skor hans væri reiknað skv. lægri forgjöf hans. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2013 | 09:30

LPGA: Ariya leiðir í Hawaii

Thaílenski táningurinn Ariya Jutanugarn var á 8 undir pari, 64 höggum á frekar vindasömum Ko Olina vellinum, í Hawaii þar sem Lotte mótið á LPGA hófst í nótt. Hún er í 1. sæti og á 1 högg á  „norsku frænku okkar” Suzann Pettersen og Hee Kyung Seo eftir 1. hring LPGA Lotte Championship. Ariya lék fyrri 9 á 6 undir pari, 30 höggum, missti högg á par-4 10. holu með eina skolla hennar á hringnum, fékk örn á par-5 14. holuna og fugl á par-4, 15. holuna. Eftirminnilegt er þegar Ariyu gafst færi á að vinna fyrsta mót sitt á heimavelli s.l. febrúar á LPGA Thailand, en stóðst ekki álagið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2013 | 23:30

Bjarki Pétursson fór holu í höggi!

Afrekskylfingurinn Bjarki Pétursson, GB,  fór holu í höggi á 15. braut Islantilla á Spáni, fyrir 4 dögum síðan þ.e. þ. 13. apríl s.l. af hvítum teigum. Á facebook síðu sinni segir Bjarki um draumahöggið: „var um það bil hálfan metra hægra megin við flagg í stefnu, en lenti 3 metra yfir holu og spann til baka 🙂 […]  þetta (er alltaf)  jafn skemmtileg tilfinning að fara holu í höggi :)“ Þetta er ekki í 1. skiptið sem Bjarki nær draumahöggi allra kylfinga, en hann fór holu í höggi 11. júlí á síðasta ári, 2012, á 2. degi Meistaramóts Golfklúbbs Borgarness.  Draumahöggið þá sló hann á 14. braut Hamarsvallar, sem er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2013 | 16:30

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og Faulkner í 2. sæti eftir 2. dag á SSAC Championship

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012, og „The Eagles“ golflið Faulkner háskólans taka sem stendur þátt í svæðamótinu, Southern States Athletic Conference (skammst. SSAC) Championships, sem fram fer í Lagoon Park, Montgomery, Alabama, dagana 15.-17. apríl.  Þátttakendur eru 54 frá 11 háskólum. Eftir annan dag keppninnar er Hrafn í 9. sæti  í einstaklingskeppninni en hann dalaði svolítið í gær eftir 3 undir pari, 69 högga upphafshringinn sem skilaði honum í 2. sætið eftir 1. dag. Hrafn er samtals búinn að leika á sléttu pari, 144 höggum (69 75) og er T-9 þ.e. deilir 9. sætinu með liðsfélaga sínum Hunter Fikes. Þeir félagar eru á 3.-4. besta skori í liðinu og telur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2013 | 15:55

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst í sigurliði ETSU á Wofford Inv.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og the golflið East Tennessee State University, ETSU Bucs luku í gær keppni á Wofford Coca-Cola Invitational í Spartansburg, Suður-Karólínu. Mótið var tveggja daga frá 15.-16. apríl og þátttakendur eru 88 frá 16 háskólum.  Golflið ETSU hefir unnið síðustu Coca-Cola Invitational mót á s.l. 2 árum og í þetta sinn varð enginn breyting á. ETSU stóð uppi sem sigurvegari á Wofford Coca-Cola Invitational 3. árið í röð!!!! Guðmundur Ágúst samtals á  10 yfir pari, 226 höggum (74 73 79 ) og varð T-62 í einstaklingskeppninni, þ.e. jafn öðrum í 62. sæti. Hann var á lakasta skori af 5 liðsmönnum ETSU Bucs og taldi skor hans ekki í Lesa meira