Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2013 | 18:45
Nicklaus helgar sig SNAG-golfi!
Jack Nicklaus á 22 barnabörn, en aðeins 1 þeirra er í keppnisgolfi. Önnur barnabörn Gullna Björnsins „fikta í golfi sér til skemmtunnar“ eins og hann segir sjálfur. Aðeins nokkur barnabörn þessarar miklu golfgoðsagnar ná að brjóta 80, sem Nicklaus finnst vera skýrasta merkið um að þau muni halda sér við golfið síðar í lífinu. En almennt, þrátt fyrir alla fjölskylduhefðina, ólust barnabörn hans upp með meiri áhuga á öðrum íþróttagreinum. Golfgoðsögnin, sem hefir unnið flest risamót allra í golfinu (Nicklaus) lítur á þetta sem áskorun. Á nokkrum sl.árum hefir hann haft áhyggjur af framtíð golfíþróttarinnar og hefir haldið marga fundi með fólki um það, þar sem menn hafa velt fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2013 | 17:00
Afmæliskylfingur dagsins: Wes Martin – 25. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Wes Martin. Martin er fæddur í Calgary, Alberta, 25. apríl 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Martin gerðist atvinnumaður í golfi 1994 og hefir aðallega spilað á kanadíska PGA túrnum. Hann útskrifaðist frá College of the Desert. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Chris Johnson, 25. apríl 1958 (54 ára); Grégory Bourdy 25. apríl 1982 (31 árs) ….. og ….. Fridrik Sverrisson · 45 ára Viðar Sveinbjörnsson · 47 ára Halldor Tryggvi Gunnlaugsson · 56 ára Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2013 | 16:00
Gleðilegt sumar!

Í dag er Sumardagurinn fyrsti, frídagur sem markar upphaf sumars, þó víða um land sé ekki sérlega sumarlegt. Fyrir Norðan á Akureyri var t.a.m. snjókoma í morgun. Það sama er að segja vestan- og austanlands, víða enn snjór yfir golfvöllum og sumarið virðist víðsfjarri þó dagatalið segi annað. Hér sunnanlands hefir sólin gægst feimnislega fram og það hefir verið hægt að spila golf bæði á Kirkjubólsvelli í Sandgerði og Húsatóftavelli í Grindavík, en þeir tveir vellir eru opnir. Ýmsir klúbbar voru síðan með innanfélagsmót: GKJ menn héldu mót á Hlíðavelli í Mosfellsbæ og það sama er að segja um GHR – á Hellu fór fram Vorkomu-mótið, þar sem leikformið var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 16:45
Rory á möguleika á að spila fyrir Bretland á Ólympíuleikunum 2016

Á golffjölmiðlum fór sú frétt eins og eldur í sinu í dag að R&A hefði kveðið upp úrskurð um að Rory McIlroy YRÐI að spila fyrir Írland. Hér er einfaldlega um það að ræða að orð framkvæmdastjóra R&A hafa verið oftúlkuð. Staðreyndin er sú að Rory á enn val um hvort hann keppir fyrir Bretland á Ólympíuleikunum 2016 ef hann vill þrátt fyrir komment R&A að hann væri e.t.v. aðeins hæfur til að spila fyrir Íra. Framkvæmdastjóri R&A Peter Dawson sagði að „það væri í gildi Ólympíureglugerð“ þar sem fram kæmi að Rory gæti aðeins spilað fyrir Írland vegna þess að hann hefði spilað í tveimur heimsbikarskeppnum fyrir Íra. Ólympíunefndin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 16:15
Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi og Belmont luku leik í 3. sæti á Conference of Carolinas Championship
Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2011, Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og golflið Belmont Abbey tóku þátt í Conference of Carolinas Championship. Mótið fór fram í Burlington, Norður-Karólínu, dagana 20.-22. apríl 2013. Arnór Ingi lék á samtals 6 yfir pari, 222 höggum (74 70 78) og varð í 13. sæti í einstaklingskeppninni, sem hann deildi með Christopher Baker frá Queens háskólanum, sem unnu liðakeppnina. Golflið Belmont Abbey náði þeim glæsilega árangri að landa 3. sætinu í liðakeppninni og taldi skor Arnórs Inga, sem var á 3. besta skorinu í liði sínu. Til þess að sjá úrslitin á Conference of Carolinas Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 15:00
R&A ætlar ekki að beita sér til að konum verði veitt félagsaðild í Muirfield þar sem Opna breska fer fram í sumar

Skoski golfklúbburinn Muirfield, þar sem 142. Opna breska fer fram 13. júlí í sumar mun ekki þurfa að láta undir neinum þvingunum eða hótunum til þess að konum verði heimilað að gerast félagsmenn, en í þessum forna golfklúbbi fá aðeins karlar að gerast félagar. Þetta er álit Peter Dawson, framkvæmdastjóra R&A og annarra skipuleggjenda Opna breska. Konum er þó heimilað að heimsækja klúbbinn og eins hefir Curtis Cup farið fram þar, sem er mót milli kvenáhugamannaliða Íra&Breta annars vegar og Bandaríkjanna, hins vegar. Aðeins í 3 golfklúbbum, þar sem Opna breska fer skv. hefð fram, er einungis körlum heimiluð félagsaðild en fyrir utan Muirfield eru það Royal Troon og St. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 13:30
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og Queens luku leik í 1. sæti á Conference Carolinas Championship

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og „The Royals“ golflið Queens tók nú á dögunum þátt í Conference Carolinas Championship, en leikið var í Burlington, Norður-Karólínu. Þátttakendur voru 55 frá 11 háskólum og fór mótið fram 20.-22. apríl s.l. Íris Katla og „The Royals“ luku leik í 1. sæti í liðakeppninni og það sama er að segja um karlalið skólans, strákarnir í Queens urðu líka í 1. sæti!!! Glæsilegur árangur það!!! Íris Katla lauk leik á 250 höggum (91 82 77). Þriðja og lokahringinn sinn varð hún í 3. sæti í einstaklingskeppninni en því sæti deildi hún með liðsfélaga sínum Shannon Fraser og Elisabeth Swallow úr Kings College. Til þess lokastöðuna hjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Lee Westwood – 24. apríl 2013

Það er aldeilis stórskotalið kylfinga sem á afmæli í dag. Að þessu sinni verður aðeins einn tekinn út úr en það er nr. 12 á heimslistanum Lee Westwood, sem er fæddur 24. apríl 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Lee gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 20 árum síðan, þ.e. 1993 og hefir á ferli sínum sem atvinnumaður sigrað 39 sinnum þar af 2 sinnum á PGA Tour og 23 sinnum á Evrópumótaröðinni (og situr þar í 9. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast á þeirri mótaröð). Þrátt fyrir margar góðar tilraunir hefir Lee ekki enn tekist að sigra á risamóti, sem er draumur allra kylfinga. Kannski Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 12:30
Golfreglur: Rangur bolti

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi: Í höggleikskeppni tekur keppandi högg að röngum bolta en hittir ekki. Hvernig dæmist? A. Þetta er vítalaust því höggið missti marks og ekki var slegið í boltann. B. Keppandinn fær almennt 2 högga víti og höggið sem greitt var að boltanum telur. C. Keppandinn fær almennt 2 högga víti og höggið sem greitt var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 09:30
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU luku leik í 2. sæti á Atlantic Sun Championship

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU léku í gær lokahringinn á Atlantic Sun Championship en mótið fór fram 21.-23. apríl 2013 á Legends golfvellinum í Chateau Elan. Þátttakendur voru 50 frá 10 háskólum. Golflið ETSU hafnaði í 2. sæti í liðakeppninni, sem er glæsilegur árangur!!! Guðmundur Ágúst lék á samtals 19 yfir pari 235 höggum (80 76 79) og var á 4. besta skori liðs síns, sem taldi í glæsiárangrinum í liðakeppninni. Til þess að sjá úrslitin á Atlantic Sun Championship SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

