Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 09:15
Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State í 4. sæti á WAC

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og „The Bobcats“ golflið Texas State keppa dagana 22.-24. á WAC Women´s Golf Championship. Mótið fer fram í Long Bow golfklúbbnum í Mesa, Texas. Þátttakendur eru 35 frá 7 háskólum. Valdís Þóra er búin að spila á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (79 75) og er á 3. besta skori í liði sínu, sem er sem stendur í 4. sæti í liðakeppninni. Valdís Þóra deilir 21. sæti í einstaklingskeppninni ásamt Nicole Gaddie frá Seattle háskólanum. Lokahringurinn verður leikinn í kvöld. Fylgjast má með gengi Valdísar Þóru og Texas State á lokahringnum á WAC Women´s Golf Championship með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 09:00
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór í 8. sæti fyrir lokahring SCC
Andri Þór Björnsson, GR og „The Geaux Colonels“, golflið Nicholls State, leika í dag lokahringinn á Southland Conference Championship. Mótið stendur dagana 22.-24. apríl og leikið er á Dye golfvelli Stonebridge Ranch Country Club í McKinney, Texas. Þátttakendur eru 40 frá 8 háskólum. Andri Þór hefir leikið fyrri 2 hringina á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (80 74) og er á besta skorinu í sínu liði, en Nicholls State er í 7. sæti í liðakeppninni. Fylgjast má með gengi Andra Þórs og golfliðs Nicholls State með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 08:00
Merion golfvöllurinn þar sem Opna bandaríska fer fram í ár verður með erfiðasta móti!

„Hann verður þykkri – miklu mun þykkri“ sagði Scott Nye, yfirgolfkennari á Merion, í Pennsylvaníu um kargann á vellinum og átti þar við umbreytinguna, sem mun verða fyrir 13.-16. júní n.k. þegar Opna bandaríska risamótið fer fram á hinum sögufræga Austurvelli Merion. Hann segir þetta ekki af illkvitni, hann er einungis að fara með staðreynd. Allt hefir verið gert til þess að gera Austurvöll Merion með erfiðasta móti, þannig að PGA Tour kylfingarnir, bestu kylfingar heims, fái næga áskorun, þegar Opna bandaríska risamótið fer fram þar. Margir sem fjalla um Merion talaum Merionvöllinn og eiga líklegast við Austurvöllinn en golfvellir Merion eru tveir Austur- og Vesturvöllurinn. Á hinum fyrri, sögurfrægari Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 07:30
Golfútbúnaður: Phrankenwood kylfa Phil Mickelson

Einn af kostum þess að vera atvinnumaður á PGA mótaröðinni bandarísku er sá að golfútbúnaðarfyrirtækin keppast um að ná samningum við kylfinganna og búa til útbúnað sem svarar til þarfa viðkomandi. Þetta er nákvæmlega það sem gerðist við nýjustu afurð Callaway: X Hot Phrankenwood. Kylfan er hugarsmíð kylfingsins Phil Mickelson og í grunninn er X Hot Phrankenwood kylfan nútímalegt 2-tré. Mickelson setti X Hot brautartréð fyst í pokann í febrúar á þessu ári á Northern Trust Open mótinu. Hann tók strax eftir lengdaraukningunni sem hann fékk frá X Hot kylfinunni, en kylfuhausinn er búinn til úr mjög sterku járni sem er samt örþunnt. En maður fær ekki viðurnefnið“Phil The Thrill“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2013 | 14:30
Anna Sólveig 14. á Irish Girls Open!

Anna Sólveig Snorradóttir, Golfklúbbnum Keili, stóð sig best af þeim 5 íslensku þátttakendum á Irish Girls Open, sem fram fór á golfvelli Roganstown Golf & Country Club, rétt fyrir utan Dublin á Írlandi 20.-21. apríl s.l. (þ.e. nú um helgina). Þátttakendur í mótinu voru 71. Anna Sólveig, GK hafnaði í 14. sæti lék á samtals 21 yfir pari, 234 höggum (81 76 77). Glæsilegur árangur hjá Önnu Sólveigu!!! Sara Margét Hinriksdóttir, GK varð í 25. sæti á samtals 28 yfir pari, 241 höggi, (80 81 80). Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG varð í 43. sæti, Særós Eva Óskarsdóttir, GKG varð í 49. sæti og nýliðinn í keppnisferðum erlendis Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, komst Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2013 | 14:00
Alan Dunbar gerist atvinnumaður

Alan Dunbar, sigurvegari British Amateur, sem keppti á Augusta National á the Masters risamótinu mun keppa í fyrsta sinn sem atvinnumaður á móti nú í vikunni. Hann fékk þátttökurétt á móti Áskorendamótaraðarinnar sem fram fer á golfvelli El Encin Golf Hotel í Alaca de Henares á Spáni. Með því að gerast atvinnumaður verður hann af þátttökurétti sínum á Opna bandaríska risamótinu, sem fram fer í júní á Merion golfvellinum í Pennsylvaníu. Dunbar er kominn með samning við ISM, sem eru m.a. umboðsaðilar Louis Oosthuizen, Darren Clarke, Charl Schwartzel og Lee Westwood. Gengið á Masters risamótinu voru Dunbar vonbrigði en hann var með skor upp á 83 77 og náði ekki Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2013 | 13:45
Evróputúrinn: DJ og Zach Johnson keppa ekki í Kóreu

Bandarísku kylfingarnir Dustin Johnson (líka kallaður DJ) og risamótssigurvegarinn Zach Johnson munu ekki verða meðal keppenda á Ballantines Championship sem hefst nú í þessari viku í Icheon í Suður-Kóreu, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Í fréttatilkynningu frá Evrópumótaröðinni sagði að ástæður fyrir hætt hefði verið við þátttöku væru í báðum tilvikum spennan sem ríkir milli Suður- og Norður-Kóreu, en Norður-Kóreumenn hafa látið ófriðlega og verið með hótanir og stríðsyfirlýsingar í garð Suður-Kóreu og þar með Bandaríkjamanna, sem styðja Suður-Kóreu. Meðal annarra kylfinga sem ekki taka þátt í mótinu vegna spennuástandsins er spænski kylfingurinn Alvaro Quiros. Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku (nr. 7 á heimslistanum) er sá kylfingur meðal þátttakenda sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Karen Guðnadóttir – 23. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Karen Guðnadóttir, afrekskylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja. Hún er fædd 23. apríl 1992 og er því 21 árs í dag!!! Karen lék m.a. á Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar með góðum árangri. Hún varð í 2. sæti í meistaraflokki á Meistaramóti GS 2012 aðeins 2 höggum á eftir nöfnu sinni Sævarsdóttur! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Karenu til hamingju með afmælið hér að neðan Karen Guðnadóttir F. 23. apríl 1992 (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Don Ray Massengale, 23. apríl 1937 – d. 2. janúar 2007; Ramón Sota Ocejo 23. apríl 1938 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2013 | 11:30
Golfreglur: Æfing

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi: Í 36 holu höggleikskeppni, þar sem leika átti 18 sitthvorn daginn, var einn keppandinn búinn að setja púttið sitt niður á 3. holu en tekur síðan æfingapútt á 3. flöt í mótinu. Hvernig dæmist? A. Keppandinn fær frávísun fyrir æfingu meðan á keppni stendur. B. Keppandinn fær almennt 2 högga víti. C. Keppandin fær Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2013 | 09:00
Bömmer! Adam Scott ekki á lausu!!!

Heyrst hafði orðrómur um að Masters sigurvegarinn Adam Scott hefði fengið tilboð til þess að vera næsti „piparsveinninn“ í samnefndum bandarískum þáttum, sem notið hafa nokkurrar vinsælda. En Adam Scott er langt frá því að vera á lausu …… Það kom fram í meðfylgjandi viðtali við hann á CBS SMELLIÐ HÉR: Þar sagði hann að hann væri alls ekki á lausu, þvert á móti mjög mikið á föstu – og stúlkan héti Marie. Fjölmiðlar virðast sammála um að Adam eigi hér við sænskan arkítekt Marie Kojzar, sem Adam hefir átt í sambandi við af og til og er jafnaldri hans, 32 ára. Hér má sjá mynd af „kærestu“ Adams, Marie Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

