Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 20:30

Evróputúrinn: Ormsby og Vongvanij leiða á Ballantines í Kóreu

Það eru Ástralinn Wade Ormsby og Thaílendingurinn Arnond Vongvanij sem leiða þegar Ballantine´s Open er hálfnað í Icheon í Suður-Kóreu. Báðir hafa leikið á 7 undir pari, 137 höggum; Ormsby (70 67) og Vongvanij (68 69). Þrír kylfingar deila 3. sætinu: Jbe Kruger frá Suður-Afríku, Svíinn Alexander Noren og Englendingurinn James Morrison, á 6 undir pari. Leik var frestað í dag vegna myrkurs og eiga örfáir eftir að klára 2. hring. Nokkuð ljóst er hins vegar að t.a.m. Daninn Thomas Björn og landi hans Andreas Hartö verða á meðal þeirra sem ekki komast í gegnum niðurskurð að þessu sinni. Til þess að sjá stöðuna á Ballantine´s Open eftir 2. keppnisdag SMELLIÐ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Laufey Sigurðardóttir – 26. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Laufey Sigurðardóttir, GO. Laufey er fædd 26. apríl 1967 og á því 46 ára afmæli í dag Laufey hefir tekið þátt í mörgum innanfélagsmótum, m.a. púttmótum hjá GO sem opnum mótum og staðið sig vel. Hún er í stjórn Golfklúbbsins Odds. Hún var svo heppin að finna golfbolta í afmælisleik Hótel Sögu s.l. sumar Sjá frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: Laufey er gift Bjarka Sigurðssyni og eiga þau synina Sigurð Björn og Arnór Inga. Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Laufey Sigurðardóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 09:00

Golfreglur: Lausung

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi: Leikmaður tekur þátt í höggleikskeppni. Hann slær bolta sínum í sandglompu. Bananahýði liggur í sandglompunni og truflar sveiflu leikmanns við að leika bolta úr glompunni.  Hann tekur því upp hýðið og hendir því úr glompunni. Hvernig dæmist? A. Þetta er vítalaust. B. Leikmaðurinn fær 1 högg í víti. C. Leikmaðurinn fær almennt 2 högga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 08:00

Mömmu GMac bjargað af strandverði

Mömmu Graeme Dowell var bjargað af strandverði þegar hún var í Harbour Town, Suður-Karólínu að fylgjast með syni sínum á RBC Heritage mótinu, sem hann sigraði síðan á um s.l. helgi. Scott Ohlson hét strandvörðurinn sem svaraði kallinu, sem sagði honum að kona að nafni Marion McDowell hefði verið saknað í 3 tíma, en þetta var 3 dögum fyrir mótið.  Komið var fram á kvöld. Scott keyrði síðan fram á konu sem virtist týnd og sagðist ekki finna húsið sem sonur hennar hefði tekið á leigu í Harbour Town;  það var orðið niðadimmt og það eina sem hún vissi var að það væri 38 í húsnúmerinu. Húsin í Harbour Town Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 07:15

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór lauk leik í 4. sæti á Southland Conference!

Andri Þór Björnsson, GR og „The Geaux Colonels“, golflið Nicholls State, tóku þátt í  Southland Conference Championship, en mótið fór fram dagana 22.-24. apríl. Leikið var  á Dye golfvelli Stonebridge Ranch Country Club í McKinney, Texas og þátttakendur eru 40 frá 8 háskólum. Andri Þór lauk keppni á samtals 10 yfir pari, 226 höggum (80 74 72) og var á besta skorinu í sínu liði. Nicholls State hafnaði í 7. sæti í liðakeppninni. Sjá má úrslitin á SCC (Southland Conference Championship) með því að  SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State luku leik í 3. sæti á WAC

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og „The Bobcats“ golflið Texas State kepptu dagana 22.-24. á WAC Women´s Golf Championship. Mótið fór fram í Long Bow golfklúbbnum í Mesa, Texas. Þátttakendur voru 35 frá 7 háskólum. Valdís Þóra lauk leik á samtals 10 yfir pari, 227 höggum (79 75 72)  spilaði betur með hverjum hringnum og var á 3. besta skori í liði sínu. Valdís Þóra varð í 12. sæti í einstaklingskeppninni og Texas State í 3. sæi í liðakeppninni og taldi skor Valdísar Þóru. Sjá má úrslitin á WAC Women´s Golf Championship með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 04:15

PGA: Krókódíll á Zurich Classic

Það vakti athygli þeirra sem voru að horfa á Zurich Classic golfmótið í gær að krókódill nokkur gerði atlögu að golfdómurum mótsins. Hér var á ferðinni þekktur krókódíll, Stumpy, sem aðeins er með 3 fætur og haltrar því áfram. Stumpy er gengur líka undir nafninu Þrífótur (ens. Tripod). Dómarinn á golfbílnum sá sér vænna að forða sér þegar risaflykkið stefndi í áttina að sér enda aldrei að vita hvað kvikyndi sem Stumpy geta tekið upp á! Kynnir mótsins lýsti þessu skemmtilega út frá sjónarhorni Stumpy og sagði að hann hefði aðeins fengið veður af „kjöti í garði sínum“ (ens. meat in my garden). Hér má sjá myndskeið af krókódílnum Stumpy Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 04:00

PGA: Ricky Barnes leiðir eftir 1. dag Zurich Classic

Í gær hófst á TPC Louisiana vellinum, Zurich Classic at New Orleans mótið  í Avondale, Louisiana, en mótið er hluti af PGA mótaröðinni bandarísku. Í efsta sæti eftir 1. dag mótsins er Ricky Barnes, en hann lék á 8 undir pari, 64 höggum; fékk 1 örn, 7 fugla, 9 pör og 1 skolla. Aðeins 1 höggi á eftir Barnes, í 2. sæti eru bandarísku kylfingarnir Lucas Glover og Boo Weekly. Fjórða sætinu deila síðan landar þeirra Morgan Hoffman og DA Points á 6 undir pari, 66 höggum, hvor. Í 6. sæti er síðan hópur 10 kylfinga, m.a. Ernie Els og Rickie Fowler á 5 undir pari, 65 höggum, hver. Til þess að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2013 | 20:30

Golfreglur: Óhreyfanleg hindrun

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi:  Í höggleikskeppni, getur keppandi ekki staðið við bolta sinn vegna truflunar af óhreyfanlegri hindrun, sem boltinn hefir lent við þannig að keppandinn á rétt á lausn skv. reglu 24-2.  Hann ákveður að næsta stað lausnar með 5-járni sínu þar sem hann ætlar að leika næsta högg með þeirri kylfu og droppar boltanum innan 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2013 | 19:30

Evróputúrinn: 5 í forystu þegar leik frestað vegna myrkurs á Ballantines í Kóreu

Það eru 5 kylfingar sem deila 1. sætinu á Ballantines Championship, sem hófst á golfvelli Blackstone golfklúbbsins í Icheon, Kóreu í dag. Þessir 5 eru Frakkinn Jean-Baptiste Gonnet, Ástralinn Kieran Pratt, Englendingurinn Matthew Baldwin, Svíinn Johan Edfors og heimamaðurinn Ki-whan Kim. Þessir 5 eru allir búnir að klára 1. hring á 5 undir pari, 67 höggum. Aðeins 1 höggi á eftir þeim eru Peter Lawrie og Jung Hwan Lee á 4 undir pari, 68 höggum og það sama er að segja um þá Tommy Fleetwood og Louis Oosthuizen, en Fleetwood á eftir að ljúka leik á 1 holu og Oosthuizen 2 holum, þannig að þeir geta báðir enn komið sér Lesa meira