Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2013 | 09:30
Evrópumótaröðin: Björn og Gallacher leiða í Crans Montana í hálfleik

Það eru Daninn Thomas Björn og Skotinn Stephen Gallacher sem leiða á Omega European Masters mótinu, sem fram fer í Crans Montana í Sviss á golfvelli Crans-sur-Sierre golfklúbbsins. Þeir Björn og Gallacher er báðir búnir að spila á samtals 10 undir pari, 132 höggum; Björn (67 65) og Gallacher (66 66). Fimm kylfingar deila síðan 3. sætinu á samtals 9 undir pari, hver þ.e.. þeir: Miguel Ángel Jiménez, Richard Finch, Tommy Fleetwood, Victor Dubuisson og Danny Willett. Annar hópur 6 kylfinga deilir síðan 8. sæti aðeins 2 höggum á eftir forystumönnunum, allir búnir að spila á samtals 8 undir pari, en það eru þeir: Anirban Lahiri, Paul Casey, Pádraig Harrington, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2013 | 09:00
Ólafur náði ekki niðurskurði
Ólafur Björn Loftsson, NK, náði ekki niðurskurði í úrtökumóti fyrir Web.Com mótaröðina, sem fram fór í Brunswick, Georgíu. Ólafur Björn lék á samtals á 13 yfir pari, 223 höggum (74 77 72) og hafnaði í 61. sæti, sem hann deildi með öðrum. Niðurskurður var miðaður við samtals 212 högg og ljóst að Ólafur var þó nokkuð frá því að komast í gegn en hann spilaði mótið meiddur á úlnlið og náði því ekki að sýna sínar réttu hliðar. Ólafur Björn mun spila á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina seinna á árinu. Sjá má stöðuna eftir 3. dag á úrtökumótinu fyrir Web.Com mótaröðina í Brunswick, Georgíu með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 21:45
Ingvar Andri sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ

Það var Ingvar Andri Magnússon, 12 ára, úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013. Hann spilaði hreint út sagt frábært golf, sem gaman var að fylgjast með! Það voru strákarnir í yngsta aldurhópnum í mótinu, Ingvar Andri og heimamaðurinn Kristófer Karl Karlsson, GKJ, sem stóðu sig eins og hetjur og Ingvar Andri stóð síðan uppi sem sigurvegari. Kristófer Karl hafnaði í 3. sæti. Í lokin voru það Ingvar Andri og Benedikt Árni Harðarson, GK, sem voru einir eftir af þeim 10 sem hófu keppnina. Úrslitaeinvígið fór fram á 16. braut Hlíðarvallar og þar sigraði Ingvar Andri með pari. Á teig var hann spurður að því af fréttamanni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 14:30
Birgir á samtals 2 undir pari eftir 2. hring

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG lauk 2. hring á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu í Pléneuf, Frakklandi, á 3 yfir pari, 73 höggum og er því samtals á 2 undir pari, 138 höggum (65 73). Birgir Leifur byrjaði á 1. teig í morgun, eftir að hafa lokið við 6 holur sem hann átti eftir af 1. hring eldsnemma í morgun. Birgir Leifur spilaði því í raun 24 holur í dag. Á 2. hring fékk hann skolla á 4. holu sem hann tók aftur á 8. holu með fugli en fékk síðan aftur skolla á 9. holu. Fyrri 9 spiluðust því á 36 höggum. Síðan fékk Birgir Leifur slæman skramba á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 14:00
Obama þrípúttar – Myndskeið

Sunnudaginn 11. ágúst s.l. var Bandaríkjaforseti, Barack Obama, í fríi í Martha´s Vinyard …. og hvað er betra til að slappa af heldur en að taka einn golfhring? Svolítið erfitt samt, því allskyns ráðgjafar voru í slagtogi til þess að halda forsetanum við efnið í pólítíkinni og ef eitthvað mikilvægt kynni að koma upp þá yrði hann snarast að hætta. Þannig að það er ekki laust er við að einbeitingin hafi ekki alveg verið upp á 10 hjá forsetanum, eflaust þúsundir annarra mála sem hann hefir haft hugann við umfram golfið.. a.m.k. þrípúttaði hann á 1. flöt þar sem fréttamenn fengu að fylgjast með honum. Hér má sjá þrípútt forsetans Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ragnhildur Kristinsdóttir – 6. september 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ragnhildur Kristinsdóttir, GR. Hún er fædd 6. september 1997 og á því 16 ára afmæli í dag! Ragnhildur er einfaldlega ein af okkar alefnilegustu ungu kvenkylfingum. Ragnhildur var Íslandsmeistari í höggleik í telpnaflokki og varð í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2012. Ragnhildur sigraði telpnaflokkinn á Unglingamótaröð Arionbanka, þ.e. 6. og síðasta mótið á Urriðavelli, 3. mótið á Korpúlfsstaðavelli og varð í 2. sæti á 2. mótinu að Hellishólum og í 3. sæti á 1. móti 2012- tímbilsins á Skaganum, þ.e. í verðlaunasæti á öllum mótum Unglingamótaraðar Arion banka, 2012 En Ragnhildur lét ekki við það sitja. Aðeins 14 ára, í fyrra 2012, keppti hún á mótaröð þeirra Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 10:24
Birgir Leifur lauk 1. hring í Pléneuf á 5 undir pari – 65 höggum og er í 2. sæti!!!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, átti eftir að spila síðustu 6 holurnar á 1. hring Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu, vegna 4 tíma þokuseinkunnar sem var í Pléneuf í gær. Þær spilaði hann í morgun og kláraði hringinn með glæsilegum hætti, missti hvergi högg og fékk 2 fugla. Fuglarnir komu á 14. og 18. holu á hring hans (þ.e. 5. og 9. holu vallarins, en Birgir Leifur hóf leik á 10. braut í gær). Hann deildi því 2. sætinu með Norðmanninum Joakim Mikkelsen, sem er stórglæsilegur árangur!!! Nú þegar hefur Birgir Leifur hafið leik á 2. hring (þegar klukkan er 10:20 hér á landi 12:20 í Pléneuf) og eftir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 09:45
Síðustu mót Íslandsbanka mótaraðanna á morgun
Á morgun (og hinn) fara fram síðustu mót keppnistímabilsins hjá Íslandsbankamótaröðinum. Sjöunda mót Íslandsbankamótaraðarinnar fer fram dagana 7.-8. september á Grafarholtsvelli. Það eru 147 unglingar skráðir í mótið 111 karlkylfingar og 36 kvenkylfingar. Sjötta og síðasta mót Áskorendamótaraðar Íslandsbanka verður haldið á morgun, laugardaginn 7. september á Korpúlfsstaðarvelli. Þar eru 54 skráðir í mótið ; 46 karl og 8 kvenkylfingar.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 08:30
Birgir Leifur spilaði 12 holur

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, náði að spila 12 holur í gær á 1. hring Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu, sem frestaðist í gær um 4 tíma vegna þoku. Mótið fer fram í Pléneuf í Frakklandi. Birgir Leifur er enn á 3 undir pari eftir 12 holur og vonandi að hann haldi því skori eða bæti það jafnvel! Birgir Leifur hóf leik á 10. teig og byrjaði gífurlega vel; fékk strax 2 fugla, á 10. og 11. holu, en fékk síðan skolla á par-4 14. holuna. Síðan komu góðir fuglar á 15. og 16. holu og Birgi Leif tókst að fá 3 pör á fyrstu 3 holurnar á fyrri hluta vallarins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 08:00
Ólafur Björn meiddur á úlnlið
Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur þátt í úrtökumóti fyrir Web.Com mótaröðina, í Brunswick, Georgíu. Leiknir eru 3 hringir án niðurskurðar og eftir 2 hringi er Ólafur búinn að spila á samtals 11 yfir pari, 151 höggi (74 77). Ólafur Björn er í 65. sæti og hafa þetta væntanlega verið vonbrigði fyrir hann, en óvanalega hátt skor hans skýrist í ljósi þess að hann er meiddur á úlnlið. Sjá má stöðuna eftir 2. dag á úrtökumótinu fyrir Web.Com mótaröðina í Brunswick, Georgíu með því að SMELLA HÉR: Á facebook síðu Ólafs Björns skrifaði hann: „Spilaði annan hringinn á 77 (+7) höggum í dag. Gríðarlega erfiður dagur en ég var á báðum áttum Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

