Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 07:30
LET: IK Kim leiðir í Helsingborg

Í gær, 5. september hófst í Helsingborg í Danmörku, The Helsingborg Open, í Vasatorp golfklúbbnum í Helsingborg, Danmörku, en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Eftir 1. hring er suður-kóreanski kylfingurinn In Kyung Kim (IK Kim) sem er í forystu. Hún spilaði 1. hring á 7 undir pari, 65 höggum; á hring þar sem hún missti hvergi högg fékk 7 fugla og 11 pör. Í 2. sæti, aðeins 1 höggi á eftir er Pernilla Lindberg frá Svíþjóð og þriðja sætinu deila 9 kylfingar þ.á.m Maria Hjorth frá Svíþjóð, en allar hafa þær spilað á 4 undir pari. Annar 7 kylfinga hópur deilir síðan 12. sætinu á 3 undir pari, en þ.á.m. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 07:00
Evróputúrinn: Lahiri efstur eftir 1. dag

Það er Indverjinn Anhirban Lahiri, sem leiðir eftir 1. dag á Omega European Masters í Crans Montana í Sviss. Lahiri yfirvann meiðsli í hné, sem hafa verið að há honum og átti frábæran 1. hring í mótinu upp á 8 undir pari, 63 högg, sem skilaði honum í 1. sætið. Þrír deila 2. sætinu Miguel Ángel Jiménez, Tommy Fleetwood og Paul Casey allir á 6 undir pari, 65 höggum. Thomas Björn er síðan í 5. sæti á 5 undir pari, 66 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Omega European Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 22:15
Afmæliskylfingur dagsins: Gressi, Ingvar Karl og Alexa – 5. september 2013

Það eru Gressi Agnars, Ingvar Karl Hermannsson og Alexa Stirling Fraser, sem eru afmæliskylfingar dagsins. Gressi eða Grétar, er fæddur 5. september 1972 og á því 41 ára afmæli í dag!!! Ingvar Karl er fæddur 5. september 1982 og á 31 árs afmæli í dag!!! Ingvar Karl Hermannsson, GA, sigurvegari Arctic Open 2009 ásamt konu sinni Birnu Blöndal Sveinsdóttur Mynd: Í einkaeigu Eiginkona Grétars er Hilda Ólafsdóttir og þau eiga tvo syni Dag Óla og Atla Má, en Atli Már er Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki, árið 2012. Grétar er í GK og Ingvar Karl GA. Gressi Agnars, GK. Mynd: Í einkaeigu Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 22:00
Þau 10 sem komast áfram í Unglingaeinvígið

Í dag fór fram forkeppni í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ. Nú liggur fyrir hverjir þeir 10 unglingar eru sem heyja einvígið en það eru þau 3 sem komust áfram í sínum aldursflokki og síðan sigurvegari síðasta árs, 2012, Aron Snær Júlíusson, GKG. Þau sem sem komust áfram í flokki 14 ára og yngri eru Ingvar Andri Magnússon, GR; Arnór Snær Guðmundsson, GHD og Kristófer Karl Karlsson, GKJ. Í flokki 15-16 ára komust eftirfarandi áfram: Birgir Björn Magnússon, GK; Kristófer Orri Þórðarson, GKG og Saga Traustadóttir, GR. Í flokki 17-18 ára komust eftirfarandi áfram: Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG; Stefán Þór Bogason, GR og Benedikt Árni Harðarson, GK. Úrslit dagsins í undankeppni Samsung Unglingaeinvígisins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 18:30
Fyrrum kæresta Martin Kaymer giftist hokkístjörnu

Fyrrum Dallas Stars miðjumaðurinn Mike Modano er í karabíska hafinu á hveitibrauðsdögum sínum, nánar tiltekið St. Bart´s eyjunni, eftir að hafa kvænst fyrrum kærestu þýska kylfingsins Martin Kaymer, Allison Micheletti. Mike Modano er 43 ára en Micheletti 24 ára. Þau giftust s.l. sunnudag í Hotel Joule í Dallas, Texas. Þetta er í 2. skiptið sem hinn geysivinsæli Modano kvænist, en nýlega lauk hjúskap hans til 5 ára við leikkonuna/módelið Willu Ford. Micheletti er dóttir fyrrum NHL leikmannsins Joe Micheletti sem nú er fréttamaður hjá fréttastöð New York Rangers. Modano er sá bandaríski leikmaður í sögu NHL sem skorað hefur flest mörk eða alls 561 og 1374 punkta. Hann spilaði 20 keppnistímabil Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 18:00
Birgir Leifur í 4. sæti eftir 9 holu leik

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, er í 4. sæti eftir 9 leiknar holur á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu, en mótinu seinkaði í dag um 4 tíma vegna þoku. Birgir Leifur fór því ekki út fyrr en kl. 17:10 að staðartíma og hlýtur leik að fara að ljúka núna kl. 20:00 að staðartíma í Crans Montana í Sviss. (Kl. 18:00 hjá okkur heima á Íslandi) Birgir Leifur hóf leik á 10. teig og byrjaði gífurlega vel; fékk strax 2 fugla, á 10. og 11. holu, en fékk síðan skolla á par-4 14. holuna. Síðan komu góðir fuglar á 15. og 16. holu og nú er Birgir Leifur á 3 undir pari! Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 15:10
Birgir Leifur var að fara út

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, var að fara út nákvæmlega við birtingu þessarar fréttar, á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu í dag, en mótið er hluti Áskorendamótaraðarinnar. Leikið er á Blue Green de Pléneuf Val André vellinum, í Pléneuf, Frakklandi. Upphaflega átti Birgir Leifur rástíma kl. 11:10 að íslenskum tíma en mótinu seinkaði um 4 tíma vegna þoku og fór hann því út núna kl. 15:10 (kl. 17:10 í Crans). Birgir Leifur nær hugsanlega ekki að spila nema 9 holur því það dimmir í kringum kl. 19:00 í Crans. Vonandi gengur Birgi Leif sem allra best!!! Til að fylgjast með gengi Birgis Leifs á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 14:30
Omega European Masters í beinni

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Omega European Masters, en spilað er í Crans Montana í Sviss á Alpagolfvellinum flotta Crans-sur-Sierre. Sem stendur er það Indverjinn Anirban Lahiri sem leiðir en hann átti draumabyrjun og hring upp á 63 högg í dag! Ye We-chong 13 ára kínverski strákurinn, sem spilar í mótinu í boði styrktaraðila lauk hring sínum á 7 yfir pari og er í 3. neðsta sæti. Miguel Ángel Jiménez sem gagnrýndi þátttöku stráksins og aðallega pressuna sem verið væri að setja á hann, lauk sínum hring á 65 höggum og deilir sem stendur 2. sætinu með Englendingnum unga Tommy Fleetwood. Til þess að sjá mótið í beinni SMELLIÐ HÉR: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 12:45
GK: Minningarmót Hrafnkels Kristjáns

Á morgun, 6. september 2013 fer fram minningarmót um einn ástsælasta íþróttafréttamann þjóðarinnar, Hrafnkel Kristjánsson, sem lést langt um aldur fram af áverkum sem hann hlaut í bílsslysi 25. desember 2009. Hrafnkell var fæddur 18. janúar 1975 og því aðeins 34 ára þegar hann lést. Hrafnkell var mikill Hafnfirðingur, bæði í FH og GK. Minningarmótið um Hrafnkel fer fram á Hvaleyrinni. Leikfyrirkomulag er höggleikur með og án forgjafar og eru nú þegar 66 skráðir í mótið. Endilega fjölmennið í mót til minnis um góðan dreng! Það má skrá sig í mótið með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 12:15
Furyk vonsvikinn

Jim Furyk vonaði fram á síðustu stundu að síminn hringdi og Fred Couples veldi hann í bandaríska liðið í Forsetabikarskeppninni, sem fram fer í Dublin, Ohio 3.-6. október 2013. En síminn hringdi ekkert. Fred Couples valdi nýliðann á PGA Tour, Jordan Spieth og Webb Simpson, í lið sitt og eftir situr Furyk sár, en þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1997, sem hann tekur ekki þátt í Forsetabikarnum. Furyk er sem sagt næstum búinn að spila í öllum Forsetabikarskeppnum. „Ég er vonsvikinn“ sagði Furyk, sem komist hefir í 15 lið Bandaríkjanna allt frá hann var valinn í 1997 Ryder Cup lið Bandaríkjamanna. „Ég er líka viss um að Dustin Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

