Ingvar Andri GR og Benedikt léku til úrslita í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2013 | 21:45

Ingvar Andri sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ

Það var Ingvar Andri Magnússon, 12 ára, úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013.

Hann spilaði hreint út sagt frábært golf, sem gaman var að fylgjast með!

Ingvar Andri Magnússon, GR. Mynd: Golf 1

Ingvar Andri Magnússon, GR. Mynd: Golf 1

Það voru strákarnir í yngsta aldurhópnum í mótinu, Ingvar Andri og heimamaðurinn Kristófer Karl Karlsson, GKJ,  sem stóðu sig eins og hetjur og Ingvar Andri stóð síðan uppi sem sigurvegari.  Kristófer Karl hafnaði í 3. sæti.

Kristófer Karl Karlsson, GKJ, í sveiflu. Mynd: Golf 1

Kristófer Karl Karlsson, GKJ, í sveiflu. Mynd: Golf 1

Í lokin voru það Ingvar Andri og Benedikt Árni Harðarson, GK, sem voru einir eftir af þeim 10 sem hófu keppnina.

Ingvar Andri 1. sæti og Benedikt Árni 2. sæti á 16. teig á Hlíðarvelli. Mynd: Golf 1

Ingvar Andri 1. sæti og Benedikt Árni 2. sæti á 16. teig á Hlíðarvelli. Mynd: Golf 1

Úrslitaeinvígið fór fram á 16. braut Hlíðarvallar og þar sigraði Ingvar Andri með pari.

Á teig var hann spurður að því af fréttamanni Stövar 2 hvort hann væri ekki stressaður og Ingvar Andri sagðist vera svolítið stressaður.

Aðspurður hvort hann hefði æft stutta spilið, var svarið stutt og laggott: „Já.“ Enda kom það á daginn!!

Ingvar Andri, sigurvegari Unglingaeinvígisins 2013! Mynd: Golf 1

Ingvar Andri, sigurvegari Unglingaeinvígisins 2013! Mynd: Golf 1

Langa spilið var ekkert síðra og reyndar ekki að sjá neina veika parta í leik Ingvars Andra.  Hann átti fallegt dræv af teig sem endaði því miður  í einni af hæðunum sem aðskilja 2. og 16. braut. Högg hans var aðeins framar en högg Benedikts, en högg Benedikt  þó nær braut.

Lega Ingvars var ekkert sú einfaldasta en hann stóð í halla þegar hann sló aðhögg sitt með fréttamenn beint ofan í sig við myndatökur.  En Ingvar Andri lét það ekkert á sig fá – með einbeitinguna og rólegheitin í góðu lagi! Og aðhögg hans var flott!!!

Ingvar Andri, GR í 1. sæti og Benedikt Árni, GK í 2. sæti í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013 - á úrslitateignum þeim 16. í kvöld, 6. september 2013. Mynd: Golf 1

Ingvar Andri, GR í 1. sæti og Benedikt Árni, GK í 2. sæti í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013 – á úrslitateignum þeim 16. í kvöld, 6. september 2013. Mynd: Golf 1

Ingvar Andri sló bolta sínum hægra megin við flöt í beina línu við stöng og átti síðan frábært vipp inn á flöt, sem næstum fór í holu fyrir fugli!!! Ingvar Andri  átti síðan létt par-pútt fyrir sigri, en Benedikt var áður búinn að missa par-pútt sitt, sem var af u.þ.b. 2 metra færi.

Unglingaeinvígið 2013 var einstaklega skemmtilegt og verðlaunin ekki af verri endanum en efstu 6 fengu Samsung Galaxy síma!

Samsung styrkti Unglingaeinvígið

Samsung styrkti Unglingaeinvígið

Svona var röð þeirra sem 9 sem duttu úr keppni þar til Ingvar Andri Magnússon, GR, stóð einn eftir uppi, sem sigurvegari:

Kristófer Orri Þórðarson GKG – féll úr á 1. holu

Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG – féll úr á 2. holu

Aron Snær Júlíusson GKG – féll úr á 3. holu

Aron Snær Júlíusson, sigurvegari Unglingaeinvígisins í Mosfellsbæ 2012. Mynd: Golf 1

Aron Snær Júlíusson, GKG, sigurvegari Unglingaeinvígisins í Mosfellsbæ 2012. Mynd: Golf 1

Arnór Snær Guðmundsson GHD – féll úr á 4. holu

Saga Traustadóttir stóð sig vel í Unglingaeinvíginu!!! Golf 1

Saga Traustadóttir, GR stóð sig vel í Unglingaeinvíginu!!! Mynd: Golf 1

Saga Traustadóttir GR – féll úr á 5. holu

Stefán Þór Bogason GR – féll úr á 6. holu

Birgir Björn Magnússon GK – féll úr leik á 7. holu

Birgir Björn Magnússon. Mynd: Golf 1

Birgir Björn Magnússon. Mynd: Golf 1

Kristófer Karl Karlsson GKj. – féll úr leik á 8. holu og hafnaði í 3. sæti

Benedikt Árni Harðarson GK, – féll úr leik á 9. holu og hafnaði í 2. sæti

Sjá má flotta umfjöllun um Unglingaeinvígið í Mosfellsbæ á facebook síðu mótsins SMELLIÐ HÉR: 

Þau 6 í verðlaunasætum á Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013. F.v.: Saga Traustadóttir, GR; Stefán Þór Bogason, GR; Kristófer Karl Karlsson, GKJ; sigurvegarinn Ingvar Andri Magnússon, GR, Benedikt Árni Harðarson, GK, sem varð í 2. sæti og Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: facebook síða Unglingaeinvígisins

Þau 6 í verðlaunasætum á Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013. F.v.: Saga Traustadóttir, GR; Stefán Þór Bogason, GR; Kristófer Karl Karlsson, GKJ; sigurvegarinn Ingvar Andri Magnússon, GR, Benedikt Árni Harðarson, GK, sem varð í 2. sæti og Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: facebook síða Unglingaeinvígisins