Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 03:00

Birgir Leifur áfram á 67!

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lauk keppni í gær á 1. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina, en sú mótaröð er stökkbretti inn á PGA Tour, sterkust mótaröð heims. Keppt var á Callaway Gardens Mountain golfvellinum í Pine Mountain, Georgíu, sem Golf 1 hefir áður fjallað um – sjá með því að SMELLA HÉR:  og SMELLA HÉR:  Birgir Leifur lék samtals  á 3 undir pari, 285 höggum (71 73 74 67), en það var frábær lokahringur hans upp á 5 undir pari, 67 högg, sem fleyttu honum yfir á 2. stig úrtökumótsins. Á hringnum missti Birgir Leifur hvergi högg, fékk 5 fugla og 13 pör. Stórglæsilegur árangur þetta hjá okkar besta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 19:55

Golfvellir í Frakklandi: Saint Cloud (2/10)

Nú er komið að kynningu Golf 1 á golfvelli nr. 2 í kringum París, í Frakklandi.  Hér í kvöld verður fjallað um uppáhaldsvöll Steinunnar Sæmundsdóttur, GR, erlendis en Steinunn er margfaldur klúbbmeistari GR og  Íslandsmeistari í golfi. Uppáhaldsgolfvöllur Steinunnar erlendis er Saint Cloud í París, sjá með því að SMELLA HÉR:  Saint Cloud á einmitt 100 ára afmæli í ár en 100 ár eru frá því að hann opnaði eða 1913. Hönnuður vallarins er Harry Colt. Á staðnum eru tveir golfvellir. Keppnisvöllurinn þ.e. Græni völlurinn (Vert) er 18 holu skógarvöllur, par-71, 5914 metra af öftustu teigum.  Þetta er fremur flatur völlur og auðveldur undir fótinn fyrstu 7 holurnar en síðan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 19:00

GK: Rúnar spilaði best á 1. hring EM

Rúnar Arnórsson, GK spilaði best á EM klúbbliða sem loks hófst í dag í Portúgal. Hann lék fyrsta hring á 1 yfir pari 73 höggum. Næstbest af Keilisstrákunum lék klúbbmeistarinn 2013; Birgir Björn Magnússon en hann var á 4 yfir pari, 76 höggum. Gísli Sveinbergsson var ekki að finna sig og óvanalegt að sjá hann á 80 höggum!  GK er í 14. sæti af 24  í liðakeppninni eftir 1. hring á 149 höggum. Í efsta sæti eru heimamennirnir úr Vilamoura golfklúbbnum í Portúgal, á samtals 140 höggum, en tvö bestu skor telja! Sjá má stöðuna eftir 1. dag EM klúbbliða með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 12:00

Kaymer bjartsýnn

Martin Kaymer er ekkert alltof hrifinn af gengi sínu á árinu og viðurkennir það fúslega. Hann verður manna fegnastur þegar þessu ári lýkur, rétt eins og félagi hans Rory McIlroy. Kaymer, sem er fyrrum nr. 1 á heimslistanum er t.a.m. fallinn niður í 38. sætið á heimslistanum og ef fram heldur sem horfir kemst hann ekkert inn á risamótin á næsta ári (að undanskildu PGA Championship). Hann hefir hins vegar tilefni til bjartsýni nú. Hann sigraði nefnilega  í Sheshan International Golf Club fyrir tveimur árum, þar sem  WGC-HSBC Champions, fer fram 31. október- 3. nóvember n.k. og kann einkar vel við sig þar. Hann hefir hægt og rólega verið að jafna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 11:50

Afmæliskylfingur dagsins: Muffin Spencer Devlin – 25. október 2013

Muffin Spencer Devlin  fæddist í Piqua, Ohio, 25. október 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Hún komst á LPGA árið 1979 og vann á ferli sínum 3 mót þar. Muffin lék hlutverk í Starfleet Medical í kvikmyndinni Star Trek Generations, sem kom út árið 1994 og var einnig með lítið hlutverk í „The Chute“,þriðju þáttaröð  Star Trek: Voyager þáttanna, sem komu út 1995. Muffin Spencer Devlin vakti athygli á LPGA fyrir það að hún lýsti því opinberlega yfir að hún væri lesbísk. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Dennis Shute f. 25. október 1904 – d. 13. maí 1974;  Guan Tian-lang, 25. október 1998 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 11:25

PGA: Mickelson gengur ekki vel í Malasíu – Bradley efstur eftir 2. hringi

Nr. 3 á heimslistanum, Phil Mickelson gengur ekkert vel sem stendur, en hann tekur nú þátt í móti vikunar á PGA Tour, CIMB Classic í Malasíu. Mickelson er nú í 25. sæti á samtals 3 undir pari, 141 höggi (71 70). Í gær hafði hann m.a. eftirfarandi að segja um hring sinn: „Ég minnist þess ekki að slátturinn hafi verið svona slæmur í lengri tíma. Ég tek kylfuna of mikið inn og missi hana alltof bratt þar á eftir. Höfuðið á mér er ekki kjurt og fæturnir eru arfaslakir. Þetta er slæmt – en ég er samt að pútta vel.“ Í efsta sæti eftir 2 spilaða hringi er mikill vinur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 11:00

LPGA: Pettersen leiðir í Taíwan

Hola í höggi varð til þess að Suzann Pettersen jók enn forystu sína á  Sunrise LPGA Taiwan Championship í dag en Suzann er nú með 5 högga forystu á næstu keppendur eftir aðeins 2 keppnisdaga. Eftir 1. dag var Suzann með 3 högga forystu eftir hring upp á 68 og hún fylgdi honum eftir í dag með hring upp á 69, þar sem hún fékk m.a. ás á 2. holu vallarins af 133 yarda (122 metra) færi. Samtals er Suzann á 7 undir pari, 137 höggum (68 69). Solheim stjarnan Pettersen fékk líka fugl á 9. braut;  lauk fyrri 9 á 33 höggum og tók skolla á 14. aftur með fugli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 09:45

Evróputúrinn: Guthrie eykur forskot sitt

Eftir 2. dag BMW Masters styrkt af SRE Group, í Lake Malaren golfklúbbnum í Shanghaí, Kína, er það Bandaríkjamaðurinn Luke Guthrie sem leiðir. Hann var í forystu eftir 1. dag en jók enn forystu sína, er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum (65 71). Næstu menn á eftir h0num eru 4 höggum á eftir á samtals 4 undir pari, hver, en það eru þeir: Simon Dyson, Thongchai Jadee, Paul Casey, Craig Lee, Scott Jamieson og Ricardo Gonzales, og  deila þessir 6, 2. sætinu. Einn í 8. sæti er Rafa Cabrera-Bello frá Kanarí-eyjum á samtals 3 undir pari  og síðan deila 3 kylfingar 9. sætinu á samtals 2 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 09:30

Evróputúrinn: Luke Donald óánægður með reglurnar sem knúðu Luiten til að taka 1 högg á BMW Masters

Fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Luke Donald, er óánægður með nýjar reglur Evrópumótaraðarinnar sem ollu heldur óvæntri uppákomu í gær á BMW Mastes á Lake Malaren í Shanghai, Kína. Hollendingurinn Joost Luiten sem var í ráshóp með Luke Donald sló aðeins 100 m högg af 1. teig en dró sig síðan úr mótinu vegna axlarmeiðsla sem hann hlaut á æfingu fyrr í vikunni. Nýju reglurnar ganga út á að kylfingar Evrópumótaraðarinnar verði a.m.k. að hafa spilað í 2 mótum  af 3 rétt áður en og til þess að geta spilað í DP World Championship í Dubai í November. „Ef þessi nýja regla hefði ekki verið í gildi myndi Joost hafa dregið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2013 | 09:00

Birgir Leifur í 52. sæti eftir 3. dag

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lauk við 3. hring á 1. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina. Keppt er á Callaway Gardens Mountain golfvellinum í Pine Mountain, Georgíu, sem Golf 1 hefir áður fjallað um – sjá með því að SMELLA HÉR:  og SMELLA HÉR:  Birgir Leifur er samtals búin að leik á 2 yfir pari, 218 höggum (71 73 74). Sem stendur er Birgir Leifur einn í 52. sæti. Vonandi á Birgir Leifur hring ævinnar í dag en hann verður a.m.k. að vinna upp 5 högg til þess að verða meðal efstu 30. og þeirra sem deila 30. sætinu, en það er markið sem hann verður að ná til þess Lesa meira