Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 16:30
GK: Strákarnir hófu ekki leik á EM klúbbliða vegna veðurs

Keilisstrákarnir gátu ekki hafið leik á EM klúbbliða vegna slæms veðurs í Lissabon, Portúgal í dag. Þeir Rúnar Arnórsson, Gísli Sveinbergsson og Birgir Björn Magnússon ásamt Björgvini Sigurbergssyni, yfirþjálfara Keilis komu á mótssvæðið í Lissabon á Evrópumót klúbbliða síðastliðinn mánudag. Hafa strákarnir verið við æfingar á vellinum síðastliðna tvo daga og er vonandi að það takist að hefja leik á morgun – en óvíst er á þessari stundu hvort spilaðir verða 2 hringir á morgun eða hvort mótið verður stytt í 2. hringja mót. Fylgjast má með gengi strákanna á morgun með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ian Michael Baker Finch – 24. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ian Michael Baker Finch. Hann fæddist 24. október 1960 í Nambour, Queensland í Ástralíu og er því 53 ára í dag. Ian Michael ólst upp í sama nágrenni í Queensland og heimsþekktir ástralskir kylfingar þ.e. Greg Norman og Wayne Grady. Þekktastur er Ian Michael fyrir að sigra á Opna breska, árið 1991. Ian Michal gerðist atvinnumaður í golfi 1979. Hann segir Jack Nicklaus hafa haft mest áhrif á feril sinn, þar sem hann segist hafa byggt golfleik sinn á bók Gullna Björnsins (Nicklaus) „Golf My Way”. Á atvinnumannsferli sínum sigraði Ian Michael 17 sinnum; 2 sinnum á PGA; 2 sinnum á Evróputúrnum; 3 sinnum á japanska PGA; 17 sinnum á Ástralasíutúrnum (sum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 15:45
Golfvellir í Frakklandi: Golf-de-Saint-Nom-La-Bretéche (1/10)

Hér á næstu dögum verða kynntir 10 golfvellir nálægt París, í Frakklandi. Byrjað verður á golfstað sem þekktur er um alla Evrópu, einkum í kvennagolfinu því þar fer fram hið árlega Trophée Lancôme, sem er eitt virtasta kvennamót Evrópu (fór fram óslitið þar á árunum 1970-2003) og á sér e.t.v. einhverja samsvörun í Lancôme mótinu sem haldið er að Hellu á hverju vori og markar upphafið hjá mörgum kvenkylfingnum hér á landi. A.m.k. hefir Lancôme um langt árabil verið sterkur styrktaraðili golfs. Saint-Nom-La-Bretéche vellirnir eru tveir: Rouge og Bleu, báðir par-72, 18 holu þ.e. Rauði og Blái völlurinn og báðir hannaðir af Fred Hawtree. Sá rauði er lengri eða 6252 m Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 13:30
Evróputúrinn: Guthrie efstur – Daly í 2. sæti!

Í dag hófst BMW Masters styrkt af SRE Group, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Mótið fer fram í Lake Malaren golfklúbbnum í Shanghaí, Kína. Í efsta sæti eftir 1. dag á 7 undir pari, 65 höggum er Luke Guthrie og í 2. sæti er enginn annar en John Daly, 3 höggum á eftir á 4 undir pari. Einn í 3. sæti er Titleist erfinginn Peter Uihlein á 3 undir pari, 69 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á BMW Masters mótinu styrktu af SRE Group SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 10:00
Westwood vonast til að setja Stenson undir pressu

Sænski kylfingurinn Henrik Stenson er þeirrar trúar að hann þurfi aðeins einn góðan árangur í móti til þess að verða nr. 1 í Evrópu í fyrsta sinn – en Lee Westwood vonast til að tryggja sér slíkan titil í þriðja sinn. Stenson er með $425,573 (£362,660) forskot fram yfir Graeme McDowell á peningalista Evrópumótaraðarinnar Race to Dubai fyrir BMW Masters í Shanghai — sem er fyrsta mótið í síðustu 4 mótum á Evróputúrnum. Sigurvegarinn á Lake Malaren hlýtur . $850,000 (£725,000) en heildarvinningsupphæð er £20 milljónir í öllum mótunum fjórum. Lee Westwood hefir ekki gefið upp vonina um að vinna $1 milljón og setja þar með pressu á Stenson. „Þetta eru fjórar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 07:30
Tökur hafnar á nýrri golfkvikmynd – „The Squeeze“

Tökur eru hafnar á nýrri golfkvikmynd: „The Squeeze“ en með aðalhlutverk fara Chris McDonald (sem áður hefir leikið í golfkvikmyndunum „Happy Gilmore“ og „Requiem for a Dream“) og Jeremy Sumpter („Peter Pan,“ „Friday Night Lights“). Með önnur hlutverk fara Michael Nouri („Flashdance,“ „The Proposal“), Katherine LaNasa („The Campaign,“ „Alfie“) og Jillian Murray („Never Back Down,“ „Cougar Hunting“). Kvikmyndinni er leikstýrt af Terry Jastrow – sjöföldum sigurvegara Emmy verðlauna og sem hlotið hefir 17 tilnefningar sem sjónvarpsíþróttastjóra fyrir Ólympíuleikana og Wide World of Sports. Framleiðendur eru George Parra („Sideways,“ „The Descendants,“ „Silver Linings Playbook“); Anne Archer („Fatal Attraction,“ „Patriot Games,“ „Clear and Present Danger“); Michael Doven („Mission Impossible,“ „The Last Samurai“); Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 06:45
Ko gerist atvinnumaður – Myndskeið

Lydia Ko gerðist opinberlega atvinnumaður í golfi í gær … en það gerðist á golfhring með geysivinsælum nýsjálenskum rugby leikmanni, sem er 9 árum eldri en hún eða 25 ára og heitir „Izzy“ eða fullu nafni Israel Dagg. Búið var til skemmtilegt myndskeið þar sem Ko tilkynnir að hún gerist pro á hringnum með Izzy, en það má sjá með því að SMELLA HÉR: Í myndskeiðinu kom jafnframt fram að Ko muni spila í sínu fyrsta móti sem atvinnumaður í Flórída um miðjan næstan mánuð.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2013 | 22:00
Birgir Leifur á pari eftir 2. dag

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf í gær keppni á 1. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina. Keppt er á Callaway Gardens Mountain golfvellinum í Pine Mountain, Georgíu, sem Golf 1 hefir áður fjallað um – sjá með því að SMELLA HÉR: og SMELLA HÉR: Birgir Leifur lék fyrsta hringinn í gær á 1 undir pari, 71 höggi og fylgdi þeim hring eftir með hring upp á 1 yfir pari, 73 höggum og er samtals á sléttu pari, eftir tvo leikna hringi. Sem stendur er Birgir Leifur í 46. sæti.og ljóst að hann verður að gefa í því aðeins komast 30 efstu og þeir sem eru jafnir í 30. sæti áfram á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2013 | 20:00
Afmæliskylfingur dagsins: Óðinn Þór Ríkharðsson – 23. október 2013

Það er Óðinn Þór Ríkharðsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Óðinn Þór er fæddur 23. október 1997 og er því 16 ára í dag!!! Óðinn Þór er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hann spilaði með góðum árangri á Íslandsbankamótaröðinni og Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar. M.a. sigraði hann drengjaflokk i á 1. mótinu á Þórláksvelli og í 7. mótinu í Grafarholtinu, þar sem hann fékk m.a. örn tvo daga í röð á 12. holunni!!! Óðinn Þór varð í 3. sæti á stigalista GSÍ 2013, í drengjaflokki og er í afrekshóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara. Hann tók þátt í keppninni um KPMG bikarinn 2013og var einn af fáum í liði höfuðborgarinnar, sem vann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2013 | 18:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn Reyr Sigurðsson – 22. október 2013

Í gær fór því miður fram viðgerð á Golf 1 golffréttavefnum og því voru engar fréttir skrifaðar í rúman sólarhring. Ekki var skrifuð afmælisgrein og birtist hún því í dag. Afmæliskylfingur gærdagsins, 22. október 2013 er Kristinn Reyr Sigurðsson. Kristinn Reyr er fæddur 22. október 1996 og varð því 17 ára í gær. Kristinn Reyr er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann spilaði m.a. á Íslandsbankaröðinni s.l. sumar með góðum árangri. Þannig varð Kristinn Reyr í 8. sæti í piltaflokki á 1. mótinu uppi í Þórlákshöfn; hann varð í 10. sæti á 2. mótinu á Strandarvelli; Kristinn Reyr varð síðan í 3. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni – vann leikinn um 3. sætið Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

