Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 10:30

Evróputúrinn: Gonzo vann í Shanghaí

Það var spænski kylfingurinn Gonzalo Fdez-Castaño sem sigraði á BMW Masters í Lake Malaren í Shanghaí, Kína, í morgun. Það var erfiður lokahringurinn hjá Gonzalo, sem kallaður er Gonzo af vinum sínum, a.m.k. hefir honum verið ansi ómótt á síðustu holunni þar sem hann fékk skramba þ.e. var með 6 högg á par-4 holunni, þar sem hann lenti m.a. tvívegis í glompum. Gonzo var þó búinn að spila svo vel á 17 holunum þar á undan að hann átti inni fyrir skrambanum. „Ég vissi að þetta yrði ekki auðveldur hringur, sérstaklega þegar litið er til hvernig ég byrjaði,“ sagði Gonzo m.a. eftir að sigurinn var í höfn. „En kylfusvinninn minn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 10:00

LPGA: Pettersen sigraði í Taíwan

Norska frænka okkar, Suzann Pettersen, sigraði á Sunrise LPGA Taíwan Championship í morgun. Suzann skilaði sér inn á lokahringnum á 3 undir pari, 69 höggum og vann þannig 14. LPGA Tour sigur sinn og varði þar að auki titil sinn frá því í fyrra. Lokahringurinn var í raun aðeins einvígi milli Suzann og hinnar spænsku Azahara Muñoz. Samtals lék Suzann á 9 undir pari, 279 höggum (68 69 73 69) og átti að lokum 5 högg á Muñoz, sem varð í 2. sæti á samtals 4 undir pari. Eftir hringinn sagði Suzann: „Tilfinningin er frábær að koma hingað og verja titil minn og spila eins vel og ég gerði.  Það voru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 06:00

Nýtt golfbókunarkerfi 247golf.net frá Vestmannaeyjum vekur athygli

Nýtt bókunarkerfi fyrir golfvelli, sem hannað hefir verið af íslenska fyrirtækinu 247golf.net, frá Vestmannaeyjum vakti mikla athygli á 8. ráðstefnu golfvallareigenda í Evrópu. Rástefnan fór fram í Lissabon, Portúgal, dagana 23.-25. október s.l. en sjá má kynningarmyndskeið frá ráðstefnunni með því að SMELLA HÉR:  Framkvæmdastjóri 247golf.net Sæþór Orri Guðjónsson sagði í viðtali í Eyjafréttum að viðbrögðin við nýja kerfinu þeirra, sem hefði verið 18 mánuði í þróun, hefði verið mjög góð. Sjá má frétt Eyjafrétta um bókunarkefisnýjung 247golf.net fyrir golfvelli með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Jóhannsdóttir – 26. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Jóhannsdóttir. Helga er fædd 26. október 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!!! Helga er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Helga hefir verið virk í kvennastarfi Keilis og hefir tekið þátt í mörgum opnum golfmótum hérlendis með góðum árangri og spilar golf hér á landi sem erlendis. Helga er gift Aðalsteini Svavarssyni og á tvær dætur: Írisi Ösp og Agnesi Ýr. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Helga Jóhannsdóttir; GK (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mark Bucek, f. 26. október 1961 (52 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 22:00

GK: Keilir varð í 11. sæti á EM klúbbliða

Rúnar Arnórsson, GK spilaði enn best af Keilisstrákunum á EM klúbbliða á síðari hring mótsins. Rúnar lék fyrri hring í gær á 1 yfir pari 73 höggum og bætti sig um 1 högg í dag var á sléttu pari, 72 höggum eða samtals 145 höggum. Næstbest lék Gísli Sveinbergsson, sem var á 80 höggum í gær, en bætti sig um 6 högg í dag, lék á 74 höggum! Samtals er Gísli á næstbesta skorinu 10 yfir pari, 154 höggum (80 74). Birgir Björn Magnússon, var á lakasta skorinu í dag af Keilisstrákunum 86 höggum.  Samtals lék Birgir Björn á 18 yfir pari, 162 höggum (76 86). Sveit Keilis lauk keppni í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 12:00

Wie í Vogue

Michelle Wie hefir ekkert átt sérstakt ár á golfvellinum, þrátt fyrir miklar æfingar og vonir um að þetta fari nú að smella hjá henni.  Hún er þar í raun í sömu sporum og Martin Kaymer og Rory McIlroy og reyndar flestir kylfingar sem á einhverjum hluta á ferlinum ganga í gegnum lægð golflega sérð. Hér verður rifjuð upp 4 ára grein og myndir sem birtust af Michelle Wie í kóreanska tískutímaritinu Vogue.  Þar sagði Michelle m.a.: „Ég hef alist upp við að líta á Vogue tímaritin allt frá því ég var lítil. Þegar ég horfi á brosandi módelin hugsa ég um hversu falleg þau eru og mér finnst ég hamingjusöm. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 10:45

PGA: Stroud og Moore leiða eftir 3. dag í Malasíu

Það eru Bandaríkjamennirnir, Chris Stroud og Ryan Moore, sem leiða eftir 3. dag á CIMB Classic mótinu, sem fram fer í Kuala Lumpur G&C Club, í Malasíu. Báðir eru þeir búnir að spila á 12 undir pari, 204 höggum; Stroud (67 69 68) og Moore (63 72 69). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir eru þeir Gary Woodland og Kiradech Aphibarnrat á 11 undir pari, hvor. Jerry Kelly frá Bandaríkjunum er einn í 4. sæti á samtals 10 undir pari og síðan deila 3 kylfingar 6. sætinu á samtals 9 undir pari, hver þ.á.m. forystumaður gærdagsins, Keegan Bradley. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á CIMB Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 10:30

Evróputúrinn: Dyson úr leik á BMW Masters fyrir að snerta púttlínu

Simon Dyson er úr leik á BMW Masterss mótinu í Shanghai fyrir að snerta púttlínu. Dyson var aðeins 4 höggum á eftir forystunni, en var vítaður fyrir að setja niður pútterinn sinn á föt milli bolta og bolla á 3. hring mótsins. Hinn 35 ára Dyson bætti ekki við 2 högga víti á skorkort sinn eftir að þetta gerðist á 8. holu og því varðaði það frávísun. Dyson  er í 66. sæti á peningalista Evrópumótaraðarinnar og aðeins 60 efstu fá að spila í Dubai í næsta mánuði. Sexfaldur sigurvegarinn á Evróputúrnum (Dyson) var á 70 höggum á 2. hring og deildi 2. sæti á eftir Luke Guthrie ásamt 5 öðrum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 10:00

Evróputúrinn: Cabrera-Bello og Guthrie efstir eftir 3. dag í Shanghaí

Eftir 3. dag BMW Masters styrkt af SRE Group, í Lake Malaren golfklúbbnum í Shanghaí, Kína, er það Rafa Cabrero-Bello frá Gran Canaria, sem er kominn upp við hlið Bandaríkjamannsins, Luke Guthrie sem búinn er að leiða allt mótið. Þeir eru báðir búnir að spila á  8 undir pari, 208 höggum; Guthrie (65 71 72) og Cabrera-Bello (73 68 67). Rafa sagði m.a. eftir hringinn: „Ég er virkilega ánægður að vera að spila vel og ánægður að setja saman góðan hring og vera komið í þá aðstöðu að keppa til úrslita á morgun.“ Einn í 3. sæti er Gonzo Fdez-Castaño.aðeins 1 höggi á eftir forystumönnunum á samtals 7 undir pari og einn í 4. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 09:30

LPGA: Pettersen leiðir enn eftir 3. dag

Suzann Pettersen átti í smá basli í upphafi 3. hrings í gær á Sunrise LPGA Taiwan Championship en nr. 2 á Rolex-heimslistanum náði að bæta sig eftir því sem leið á hringinn og það minnaði skaðann en nú hefir hún 4 högga forystu á næstu þrjár, en var með 5 högga forystu eftir 2. dag. Samtals er Pettersen búin að spila á 6 undir pari, 210 höggum (68 69 73). Eftir hringinn sagði hún m.a.: „Ég gæti svo auðveldlega hafað tapað (niður forskotinu) hér út í dag. Þetta var, þið vitið, sumir dagar eru auðveldir, stundum eins og opinberast allt fyrir manni það sem maður ætlar að gera. Á öðrum (dögum) er Lesa meira