Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 11:00
Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már hefur keppni í Flórída í dag

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese hefja keppni í Quail Valley Collegiate Invitational, sem hefst í dag í Quail Valley golfklúbbnum á Vero Beach í Flórída. Það er háskóli Ragnars, McNeese, sem er gestgjafi í mótinu, þó það sé haldið 900 mílur í suður frá skólanum í Flórída, en mótið er síðasta mót skólans fyrir jól. Ragnar Már á rástíma kl. 8 að staðartíma (þ.e. kl. 12:00 í hádeginu að okkar tíma hér heima á Íslandi). Fylgjast má með gengi Ragnars Más og félaga hans í mótinu með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 10:15
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn og WF luku leik í 5. sæti – Berglind og UNCG voru í 18. sæti

Klúbbmeistari GR 2013, Berglind Björnsdóttir og Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Björnsdóttir tóku þátt í The Landfall Tradition mótinu, sem lauk í gær á Dye golfvellinum í Wilmington, Norður-Karólínu. Þátttakendur voru 96 frá 18 háskólum. Ólafía Þórunn lék á samtals 11 yfir pari, 227 höggum (76 75 76). Hún deildi 22. sætinu í einstaklingskeppninni og var á 2.-3. besta skori Wake Forest og taldi skor hennar því í 5. sætis árangri Wake Forest. Berglind lék á samtals 28 yfir pari, 244 höggum (81 78 85). Hún var á besta til næstbesta skori golfliðs UNCG, en liðið virðist hafa verið í einhverju óstuði og í raun sama hvernig Berglind lék lokahringinn, liðið hafnaði í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 10:00
PGA: Ryan Moore sigraði á CIMB Classic – myndskeið af bráðabananum

Ryan Moore og Gary Woodland voru efstir og jafnir í gær eftir hefðbundinn 72 holu leik. Því varð bráðabani að fara fram á milli þeirra en honum var frestað þar til í morgun vegna úrhellisrigningar og þrumuveðurs. Skemmst er frá því að segja að í bráðabananum í morgun sigraði Ryan Moore og hlaut sigurtékka mótsins upp á 150 milljónir íslenskra króna. Hér má sjá myndskeið hápunktum bráðabanans SMELLIÐ HÉR: Viðtal við Gary Woodland eftir bráðabanann SMELLIÐ HÉR: Viðtal við sigurvegarann Ryan Moore eftir bráðabanann SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 18:45
Afmæliskylfingar dagsins: Björgvin og Jódís Sigbergsbörn – 27. október 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru tvíburarnir frábæru úr Hafnarfirði; Björgvin Sigubergsson, margfaldur Íslandsmeistari í golfi og golfkennari afrekskylfinga hjá Keili til margra ára og nýráðinn íþróttastjóri Keilis og Anna Jódís Sigurbergsdóttir, einn forgjafarlægsti kvenkylfingur landsins. Afmæliskylfingur dagsins, Anna Jódís Sigurbergsdóttir í kaddýstörfum í Bergvíkinni 4. júní 2011 Anna Jódís og Björgvin eru fædd 27. október 1969. Komast má á facebook síðu Björgvins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Björgvin Sigurbergsson (44 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Carol Semple, 27. október 1948 (65 ára); Patty Sheehan, 27. október 1956 (57 ára); Des Terblanche (frá Suður-Afríku) 27. október 1965 (48 ára) ….. og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 18:00
Golfvellir í Frakklandi: Fontainebleu (3/10)

Nú er komið að þriðju gerseminni, sem kynnt verður af fjölskrúðugum golfvöllum í kringum París í Frakklandi. Í kvöld verður sjónum beint að Fontainebleu golfvellinum, en Golf World valdi þann völl m.a. 14. besta golfvöll á meginlandi Evrópu. Um helgar kostar um €100 (þ.e. um 16.000,-) að spila hring á Fontainbleu. Þetta er gamalgróinn 18 holu, par-72 skógarvöllur, sem er 6074 metra af öftustu teigum. Hann opnaði 1909 og er hannaður af Tom Simpson. Hann þykir „enskastur“ af öllum völlum í Frakklandi. Þetta er ekki auðveldasti golfvöllurinn undir fótinn en allan hringinn bylgjast hann upp og niður í hæðum. Sum trén við þröngar brautirnar eru meira en 100 ára gömul. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 14:00
Lee tryggir sér sæti á Masters

Lee Chang-woo frá Suður-Kóreu stimplaði sig inn á Masters risamótið næsta apríl með því að sigra áAsia-Pacific Amateur Championship í Nanshan International golfklúbbnum fyrr í dag. Hinn 19. ára Suður-Kórei, sem varð í 2. sæti ásamt Rory McIlroy í síðustu viku á Kolon Korea Open, lauk mótinu með hring upp á 70 og samtals 3 undir pari, 3 höggum á undan Shohei Hasegawa, frá Japan. „Að spila á Masters hefir verið draumur minn frá því ég byrjaði að spila golf,“ sagði Lee, sem vann Dongbu Promi Open á kóreönska PGA túrnum í síðasta mánuði. „Ég hélt ekki að ég fengi tækifæri til þess, þannig að þetta er mikill heiður. Ég hef aldrei Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 12:00
Bandaríska háskólagolfið: Berglind og Ólafía Þórunn leika lokahringinn í The Landfall Tradition í dag

Klúbbmeistari GR 2013, Berglind Björnsdóttir og Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Björnsdóttir taka báðar þátt í The Landfall Tradition mótinu, sem hófst s.l. föstudag á Dye golfvellinum í Wilmington, Norður-Karólínu. Þátttakendur eru 96 frá 18 háskólum. Eftir fyrstu tvo leikna hringi er Ólafía Þórunn á besta skori Wake Forest golfliðsins, sem er í 5. sæti í liðakeppninni. Í einstaklingskeppninni er Ólafía Þórunn í 21. sæti, búin að leika á 7 yfir pari, 151 höggi (76 75). Berglind er einnig á besta skori UNCG, sem er í 18. og neðsta sæti í liðakeppninni. Berglind er á 63. sæti í einstaklingskeppninni og er búin að spila á samtals 15 yfir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 11:45
Bandaríska háskólagolfið: Theodór í 15. sæti – Ari í 18. sæti á UAM Fall Classic

Þeir Theodór Emil Karlsson, GKJ og Ari Magnússon, GKG tóku þátt í UAM Fall Classic mótinu dagana 21.-22. október s.l. Því miður var Golf 1 fréttavefurinn niðri vegna viðgerða þegar lokahringurinn var spilaður og einhverra hluta vegna var úrslitafrétt úr mótinu ekki skrifuð. Theodór og Ari voru þó að gera frábæra hluti og enginn golffréttamiðill hérlendis að veita þeim nokkra athygli. Þannig varð Theodór í 15. sæti og Ari í 18. sæti í einstaklingskeppninni og voru þeir á 2. og 3. besta skori golfliðs Arkansas Monticello, sem þeir leika með og taldi skor þeirra því í 5. sætis árangri háskólans. Theodór lék á samtals 15 yfir pari, 157 höggum (78 79) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 11:11
PGA: Gary Woodland og Ryan Moore í bráðabana á mánudaginn í Malasíu

Það voru bandarísku kylfingarnir Ryan Moore og Gary Woodland, sem urðu í efsta særi á CIMB Classic mótinu í Malasíu. Mjög erfiðar aðstæður hafa verið til keppni og varð m.a. að fresta mótinu vegna úrhellisrigningar og þrumuveðurs. Ákveðið var að bráðabani milli þeirra Moore og Woodland fari fram á morgun. Báðir voru þeir Moore og Woodland á samtals 14 undir pari, 274 höggum eftir hefðbundnar 72 holur; Moore (63 72 69 70) og Woodland (68 70 67 69). Annarhvor þeirra stendur því uppi sem sigurvegari á morgun, spurning: Hver? Til þess að sjá lokastöðuna á CIMB Classic SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 11:00
Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már og félagar í 5. sæti á Jim Rivers mótinu

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese og Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State tóku þátt í Jim Rivers mótinu sem fram fór dagana 21.-22. október. Því miður var Golf1 vefurinn í viðgerð þegar lokahringurinn var leikinn og einhvern veginn hefir farist fyrir að skrifa úrslitafréttina. Ragnar Már hafnaði í 14. sæti í einstaklingskeppninni og var á 3. besta skori golfliðs McNeese, sem varð í 5. sæti í liðakeppninni. Ragnar Már lék hringina á samtals 220 höggum (72 74 74). Andri Þór lék á samtals 226 höggum (77 77 72), bætti sig um 5 högg á lokahringnum, en það kom fyrir ekki; hann hafnaði í 34. sæti í Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

