Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 10:45

PGA: Stroud og Moore leiða eftir 3. dag í Malasíu

Það eru Bandaríkjamennirnir, Chris Stroud og Ryan Moore, sem leiða eftir 3. dag á CIMB Classic mótinu, sem fram fer í Kuala Lumpur G&C Club, í Malasíu.

Báðir eru þeir búnir að spila á 12 undir pari, 204 höggum; Stroud (67 69 68) og Moore (63 72 69).

Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir eru þeir Gary Woodland og Kiradech Aphibarnrat á 11 undir pari, hvor.

Jerry Kelly frá Bandaríkjunum er einn í 4. sæti á samtals 10 undir pari og síðan deila 3 kylfingar 6. sætinu á samtals 9 undir pari, hver þ.á.m. forystumaður gærdagsins, Keegan Bradley.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á CIMB Classic í Malasíu SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á CIMB Classic í Malasíu SMELLIÐ HÉR: