Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2013 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Jóhannsdóttir – 26. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Jóhannsdóttir. Helga er fædd 26. október 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!!! Helga er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Helga hefir verið virk í kvennastarfi Keilis og hefir tekið þátt í mörgum opnum golfmótum hérlendis með góðum árangri og spilar golf hér á landi sem erlendis.

Afmæliskylfingurinn hér ásamt spilafélögum sínum á Hvaleyrinni F.v.: Helga, Valgerður og Ólöf. Mynd: Golf 1

Afmæliskylfingurinn hér ásamt spilafélögum sínum á Hvaleyrinni F.v.: Helga, Valgerður og Ólöf. Mynd: Golf 1

Helga er gift Aðalsteini Svavarssyni og á tvær dætur: Írisi Ösp og Agnesi Ýr. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Helga Jóhannsdóttir; GK (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mark Bucek, f. 26. október 1961 (52 ára);  David Miley f. 26. október 1966 (47 ára)  Melodie Bourdy, 26. október 1986 (27 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is