Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 09:00

Lee Westwood sigurvegari í að hitta á fljótandi flöt af hótelþaki í Dubaí

Lee Westwood stóð uppi sem sigurvegari í sérstakri kynningarkeppni fyrir DP World Tour Championship mótið, sem hefst á morgun í Dubaí. Málið var að slá golfbolta úr 90 metra hæð þ.e. af 22. hæð Atlantis hótelsins, þar sem allir þátttakendur mótsins gista á, niður á fljótandi flöt, sem var í um 220 metra fjarlægð frá „teig“ þ.e. þaki Atlantis hótelsins. Þeir sem þátt tóku voru auk Westy: Henrik Stenson Martin Kaymer, Justin Rose, David Howell og Ian Poulter. Lee Westwood sló næst pinna og hlaut að launum 5 nótta gistingu í sérstakri svítu hótelsins undir sjó. Til þess að sjá myndskeið af því þegar slegið var af 22. hæð Atlantis hótelsins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 08:00

Nýja jólalínan frá Loudmouth

Loudmouth Golf, sem  er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á mynstruðum og oft skræpóttum golffatnaði, slíkum sem bandaríski kylfingurinn John Daly er eitt frægasta módelið fyrir,  er búið að setja á markað nýja jólalínu, sem aðeins er framleidd í litlu upplagi. Um er að ræða jólalegar síðbuxur, stuttbuxur, mínípils og skorts þ.e. pilsbuxur með myndum af jólasveinum á seglbrettum og jólagjöfum. Stofnandi Loudmouth Golf og aðalhönnuður Scott ‘Woody’ Woodworth sagði m.a. um nýju línuna sína: „Þetta er ætlað fyrir þá sem halda Hátíðina hátíðlega, en nýju jólamynstrin munu gera ykkur að lífi og sál hvers partýs.“ „Mynstrin tvö heita á frummálinu „Jingle Balls“ (svarta línan með jólagjafamyndunum) og Surfin Santas  (þ.e. bláa línan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 21:30

GL: Jón Ármann, Halldór Fr. og „Þrír endajaxlar“ sigruðu á Haustmótaröð Bílvers og Gras Tec

Laugardaginn 9. nóvember 2013 fór fram sjötta og síðasta mótið í haustmótaröðinni sem Bílver og GrasTec buðu upp á, á Garðavelli síðastliðna sex laugardaga. Um var að ræða níu holu mót sem spilað var á seinni níu holum vallarins.  Mótið var leikið í tveimur forgjafaflokkum og samhliða var spiluð liðakeppni þar sem þrír kylfingar mynduðu lið. Þátttakendur í mótaröðinni voru um 55 talsins og var ánægjulegt að sjá hvað félagsmenn voru virkir í að taka þátt og fjölmenna hverju sinni en að jafnaði voru 35-40 manns sem spiluðu á hverjum laugardegi. Veðrið lék við kylfinga í lokamótinu líkt og alla hina laugardagana en ávallt var spilað inn á sumarflatir þrátt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 21:00

Stenson slær bolta af þaki Atlantis hótelsins – úlnliðurinn enn áhyggjuefni

Henrik Stenson tók þátt í kynningarathöfn fyrir  DP World Tour Championship í gær þegar hann sló bolta af þaki Atlantis hótelsins, í Dubaí þar sem allar golfstjörnurnar búa meðan mótið fer fram. „Svona til langs tíma litið vona ég að ég sé ekki að eyðileggja eitthvað (í úlnliðnum) eða gera það að verkum (með golfleik mínum) að það muni taka lengri tíma að laga seinna,“ sagði Stenson. Stenson var jafnvel að hugsa um að draga sig úr mótinu. „Ég ætla að sjá hvað sjúkraþjálfarinn minn segir,“ sagði Stenson við blaðamenn eftir að hafa lokið Turkish Airlines Open mótið T-7. „Kannski ef ég sleppi Pro-Am-inu og fæ fulla 2 daga hvíld, kannski Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 18:30

5 ráð þegar spilað er í köldu veðri

Þegar búið er  jafnnorðarlega og á Íslandi, þá er varla til sá kylfingur sem ekki hefir barist áfram á golfvellinum í köldu veðri. Það er ekkert nýtt fyrir íslenska kylfinga að þurfa að vefja sig í mörg lög af fötum og það er ekki fyrr en viðkomandi kylfingar spila á suðlægari slóðum sem tekið er eftir hversu mjög fatalögin hamla fullri sveiflu. Auk þess hefir kaldari og þyngra loft í för með sér breytingar m.a. á boltaflugi þannig að boltinn fer ekki eins langt. Hér eru 5 ráð hvernig auka má líkurnar á að halda golfleiknum eins stöðugum og mögulegt er jafnvel við köldustu aðstæður.  Það er ekki ólíklegt að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 13:45

Rory vill aldrei aftur á lögmannsstofu

Tvöfaldi risamótsmeistarinn Rory McIlroy hefir látið frá sér fara að hann vilji aldrei aftur sjá innviði lögmannsstofa aftur. Rory sneri sér aftur að keppnisgolfi og kemur til með að verja titil sinn á lokamóti Evrópumótaraðarinnar DP World Tour Championship á Jumeriah Estates golfvellinum, í þessari viku en mótið hefst n.k. fimmtudag. Hann hefir ekki sigrað í nokkru móti frá því í þessu í Dubaí á síðasta ári, en þá var hann í hörkuspilaformi fékk m.a. 5 fugla á lokaholurnar og vann Justin Rose og varð í 1. sæti peningalista beggja vegna Atlantsála, aðeins 2. á eftir Luke Donald til þess að takast það! Á s.l. 12 mánuðum hefir líf Rory utan vallar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 13:00

Rolex-heimslistinn: Lu upp um 9 sæti

Teresa Lu, sú sem vann Mizuno Classic á  LPGA mótinu á Kintetsu Kashikojima vellinum í Shima-Shi, Mie, í Japan s.l. helgi fer upp um 9 sæti á Rolex heimslistanum þ.e. fer úr 65. sæti í það 56.. Litlar breytingar eru meðal efstu 10 á listanum – Inbee Park er í efsta sæti með 11.98 stig; í 2. sæti er „norska frænka okkar“ Suzann Pettersen, ekki langt undan með 11,35 stig og í 3. sæti og aðeins lengra í hana er Stacy Lewis með 9,76 stig. Sætaskipta hafa ungi nýsjálenski kylfingurinn Lydia Ko, sem aftur er komin í 4. sæti (með 6.93 stig) og So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu (með 6.88 stig), Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jason Day ——— 12. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Jason Day. Hann er fæddur 12. nóvember 1987 og er því 26 ára í dag!!! Jason fæddist í Beaudesert í Ástralíu, en pabbi hans er ástralskur en mamma frá Filippseyjum. Hann gerðist atvinnumaður 2006 og hefir sigrað tvívegis  á ferli sínum sem atvinnumaður á HP Byron Nelson mótinu 23. maí 2010 og á Nationwide Tour: Legend Financial Group Classic 8. júlí 2007.  Eftirtektarverðast er þó góð frammistaða hans á risamótum golfsins þar hefir hann landað 2. sætinu tvívegis þ.e. á Masters 2011 (T-2) og á Opna bandaríska 2011. Sem stendur er Jason Day nr. 20 á lista yfir bestu kylfinga heims. Jason er kvæntur Ellie Harvey, frá Lucas, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 10:00

Af hverju Briny Baird er mesti „looser“ PGA Tour

Áður en þið farið að vorkenna aumingja Briny Baird og hneykslist yfir að enn skuli vera skrifuð ein svona leiðinda grein um aumingja manninn skulið þið hafa í huga að hann hefir á ferli sínum unnið sér inn $ 13 milljónir (yfir 1500 milljónir íslenskra króna) fyrir að spila golf á PGA Tour …. án þess að sigra svo sem eins og í 1 skipti!!! Golfið snýst ekki bara um peninga, jafnvel ekki meðal atvinnumannanna. Um síðustu helgi leit út fyrir að Briny Baird, kylfingurinn með fyndna nafnið og fyndna hattinn myndi LOKS sigra, en hann varð enn einu sinni í 2. sæti og tapaði fyrir Chris Kirk, með 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2013 | 09:00

Els ætlar ekki að spila í móti Tiger

Ernie Els hefir ákveðið að taka ekki þátt í móti Tiger Woods World Challenge vegna þess að hann langar meira til að spila í  Nedbank Golf Challenge, heima í Suður-Afríku. Með þessu setur Els met í þátttöku á Nedbank Golf Challenge en þetta verður í 17. sinn sem hann tekur þátt í $6.5 millijóna Nedbank Golf Challenge í  Gary Player Country Club, en mótið fer fram  5-8. desember n.k. „Ég hlakka virkilega til að koma aftur og spila í svona sérstöku móti,“ sagði Els, sem vann Nedbank mótið  árin 1999, 2000 og 2002. Síðast mætti Els í mótið 2010. „Við erum hæstánægðir að Ernie er meðal keppenda,“ sagði mótsstjóri  Sun International, Alastair Roper. Lesa meira