Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 16:00

Hver er kylfingurinn: Chris Kirk?

Chris Kirk vann í gær 2. sigur sinn á PGA Tour, en Kirk er nafn sem ekki margir nema kannski allra mestu golfáhugamenn kannast við.  Hver er kylfingurinn? Chris Kirk fæddist 8. maí 1985 í Atlanta, Georgíu og er því 28 ára. Þó hann hafi fæðst í Atlanta fluttist hann ungur til Woodstock í Georgíu, þar sem hann ólst upp. Chris lék með golfliði  University of Georgia og var í 1. deild NCAA ásamt þeim Kevin Kisner, Richard Scott and Brendon Todd, sem allir gerðust atvinnumenn í golfi. Chris Kirk gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 6 árum eftir útskrift úr háskóla, 22 ára. Hann spilaði í fyrstu á Nationwide Tour (nú Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 11:45

GSG: Annel og Erla Jóna sigruðu á 4. móti Haustmótaraðarinnar

Laugardaginn 9. nóvember s.l. fór fram 4. mótið á Haustmótaröð GSG. Það voru 69, sem  tóku þátt, þar af 7 kvenkylfingar. Leikfyrirkomulagið var hefðbundið puktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar.  Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppninni og 1 verðlaun fyrir besta skorið. Það var heimakonan Erla Jóna Hilmarsdóttir, en hún var með 37 punkta. Í 2. sæti varð Sverrir Salberg Magnússon, GK á 35 punktum (en hann var með 20 punkta á seinni 9). Í 3. sæti varð síðan Halldór Einarsson, GSG,  einnig með 35 punkta (en með 18 á seinni 9). Á besta skorinu voru þau Annel Jón Þorkelsson, GSG og Þórdís Geirsdóttir, GK, en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 11:30

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf Baldursdóttir – 11. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf Baldursdóttir. Ólöf er í Golfklúbbnum Keili og m.a. í kvennanefnd Keilis. Ólöf er gift Arnari H. Ævarssyni og á 3 börn.  Auk þess að taka sjálf þátt í mótum í sumar, þar sem hápunkturinn er e.t.v. sigur hennar á Lancôme mótinu á Hellu s.l. vor þá hefir Ólöf verið dugleg að draga fyrir son sinn, Arnar Gauta Arnarsson, sem spilaði á Áskorendamótaröð Íslandsbanka s.l. sumar. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið: Ólöf Baldursdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Fuzzy Zoeller, 11. nóvember 1951 (62 ára);  Róbert Garrigus, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 10:15

Laurie Rinker sigraði á Legends Tour Open

Laurie Rinker sigraði á lokamóti keppnistímabilsins á Legends Tour Open, í gær, sunnudaginn 10. nóvember 2013. Rinker paraði lokaholuna og átti 1 högg á þær Trish Johnson, Lorie Kane og Barb Mucha. Eftir frábæran fyrri hring upp á 6 undir pari, 67 högg á laugardeginum, þar sem hún átti 3 högg á næstu keppendur þá spilaði hin 51 ára Rinker á 74 höggum í gær og lauk leik á samtals 5 undir pari, 141 höggum (67 74) á Island velli Innisbrook golfstaðarins. Rinker hlaut  $30,000 fyrir 1. sætið. „Það er erfitt að spila með magann í hálsinum,“ sagði Rinker, sem vann 2 mót á LPGA mótaröðinni. „Ég byrjaði vel á fyrri Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 10:00

Tiger óviss hvort hann spili aftur í Turkish Airlines Open

Nr. 1 á heimslistanum Tiger Woods sagði hann hefði notið þess út í ystu æsar að spila í 1. Turkish Airlines Open mótinu í þessari viku en neitaði að staðfesta að hann myndi spila á Evrópumótaröðinni á næsta keppnistímabili. „Þetta var skemmtilegt mót,“ sagði Tiger við blaðamenn eftir að hann lauk lokahringnum á 67 höggum og varð í 3. sæti. „Maður varð bara að vera agressívur allan tímann og það endurspeglaðist í því hversu margir strákanna náðu 4 eða 5 fuglum í röð. Ég sagði að 20+ undir pari myndi vinna titilinn þessa vikuna og það endaði einmitt þannig.“ Aðspurður hvort hann myndi spila aftur i Tyrklandi 2014 svaraði Tiger: „Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 08:30

PGA: Chris Kirk stóð uppi sem sigurvegari á McGladrey´s Classic

Það var Chris Kirk, sem stóð uppi sem sigurvegari á McGladrey´s Classic í gær. Kirk lék á samtals 14 undir pari, 266 höggum (66 66 68 66). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir urðu Tim Clark og Briny Baird, á samtals 13 undir pari, 267 höggum. Fjórða sætinu deildu síðan Brian Gay, John Senden og Scott Brown á samtals 12 undir pari, hver. Til þess að sjá lokastöðuna á McGladrey´s Classic SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunktana á lokadegi McGladrey´s Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 08:00

Evróputúrinn: Victor Dubuisson sigraði á Turkish Airlines Open

Það var hinn 23 ára Victor Dubuisson, alías „Mozart“, sem stóð uppi sem sigurvegari á Turkish Airlines Open. Dubuisson er oft kallaður „Mozart“ vegna einstaklega fallegrar sveiflu sinnar. Hann sigraði í Tyrklandi á skori upp á samtals 24 undir pari, og lék lokahringinn á 3 undir pari, 69 höggum og hlaut að launum sigurtékkann upp á  €848,930 (u.þ.b. 140 milljónir íslenskra króna). „Ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu,“ sagði Dubuisson eftir að sigurinn var í höfn. „Ég geri mér ekki almennilega grein fyrir hvað er að gerast. Ég var undir svo mikilli stressi á síðustu holunni.“ „Að setja niður þetta pútt á 17. (flöt) var ótrúlegt. Það var ótrúlegt, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2013 | 11:40

Afmæliskylfingar dagsins: Andri Þór og Sigmundur Einar – 10. nóvember 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Sigmundur Einar Másson og  Andri Þór Björnsson. Sigmundur Einar er afrekskylfingur í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hann er fæddur 10. nóvember 1983 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Andri Þór er fæddur í Reykjavík 10. nóvember 1991 og er því 22 ára í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) og golfleiðbeinandi þar. Andri Þór stundar nám og spilar með golfliði Nicholls State háskólanum í Thibodeaux í Louisiana. Hann er búinn að standa sig vel í haust með Geaux Colonels, þ.e. golfliði skólans og hefir oftar en ekki verið á besta skorinu í liðinu. Sjá má viðtal Golf 1 við Andra Þór Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2013 | 10:30

Hver er kylfingurinn: Teresa Lu?

Hver er eiginlega Teresa Lu, sú sem sigraði á Mizuno Classic nú í morgun á Kintetsu Kashikojima vellinum í Shima-Shi, Mie, í Japan? Lu kemur frá Taipei í Taíwan og hefir síðustu ár algerlega fallið í skuggann á miklu frægari löndu sinni, fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Yani Tseng. Lu er fædd 13. október 1987 og er því tiltölulega nýorðin 26 ára.   Síðustu ár hefir hún búið sér heimili í Rancho Santa Fe í Kaliforníu og hún hefir spilað á LPGA frá árinu 2006, sem var fyrsta ár hennar á mótaröðinni.  Hún talar virkilega góða ensku og breytti jafnvel nafni sínu þegar hún flutti til Bandaríkjanna, en hún hét áður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2013 | 09:45

Scott sigraði á Australian PGA

Adam Scott sigraði fyrr í morgun á Australian PGA Championship styrkt af Coca-Cola. Hann lék á samtals 14 undir pari, 270 höggum (65 67 71 67). Leikið var á RACV Royal Pines golfstaðnum á Gullströndinni (ens. Gold Coast). Í 2. sæti varð Rickie Fowler, 4 höggum á eftir Scott, á samtals 10 undir pari, 274 höggum (63 72 71 68). Sjá má lokastöðuna á PGA Australia með því að SMELLA HÉR: