Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2013 | 12:15
Evróputúrinn: Cañizares leiðir e. 1. dag í Dubaí

Það er spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares, sem er meðlimur í hinum fræga Valderrama golfklúbbi sem leiðir eftir 1. dag DP World Tour Championship í Dubaí. Cañizares kom í hús á 6 undir pari, 66 höggum á Jumeirah golfstaðnum. Cañizares fékk 7 fugla og 1 skolla og sagðist bara vera glaður að hafa komist inn í Dubaí þar sem ansi tvísýnt var að kærustu hans yrði hleypt inn í lanidð. „Kæresta mín er tékknesk og ég gleymi því alltaf að hún er ekki með spænskt vegabréf og þarf á vegabréfsáritun að halda. Ég man ekkert eftir þessu fyrr en við innritunar-deskinn í Tyrklandi. Sem betur fer var margt af fólki sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2013 | 11:30
Sambandsslit hvað? Wozniacki með Rory í Dubai

Rory McIlroy og kærasta hans, Caroline Wozniacki báru tilbaka allar sögusagnir í dag að þau séu ekki lengur saman þegar Wozniacki gekk fyrsta hringinn með Rory á DP World Tour Championship í Dubai. Rory náði ekki að nýta sér frábæra byrjun þegar hann fékk 3 fugla á fystu 4 holur sínar og lauk við hringinn á 1 undir pari, 71 höggum á þessum 1. degi titilvarnar sinnar. Þegar aðeins voru 2 holur eftir af hringnum varð Caroline hissa þegar Royal Air Force’s Red Arrows Aerobatics Team flaug yfir 17. og 18. holurnar á vellinum og gaf frá sér dönsku fánalitina hvítt og rautt, en þetta var atriði á hátíðarhöldum á Dubai Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2013 | 08:00
Nick Cullen leiðir e. 1. dag Australian Masters – Adam Scott í 2. sæti

Í nótt hófst á golfvelli Royal Melbourne golfklúbbsins, í Melbourne, Australian Masters golfmótið. Eftir 1. dag er það heimamaðurinn Nick Cullen. sem leiðir á 6 undir pari, 65 höggum. Á hringnum fékk Cullen 1 örn, 6 fugla og 2 skolla. Öðru sætinu deila nr. 2 á heimslistanum Adam Scott og Þjóðverjinn Maximilian Kiefer, en báðir léku á 4 undir pari, 67 höggum. Forsetabikarsnýliðinn í Alþjóðaliðinu, frá Zimbabwe, Brendon de Jonge tekur líka þátt í mótinu og lék 1. hring á 3 undir pari, 68 höggum og deilir 4. sætinu með 7 heimamönnum. Matt Kuchar er einn af fáum „útlendingum“ sem þátt tekur í mótinu, en flestir þátttakendur eru heimamenn frá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 18:30
Dýr á golfvöllum: Skoti varð fyrir krókódílaárás

Skotinn Dougie Thomson, 58 ára, frá Wishaw í Lanarkshire, var ásamt 3 félögum sínum á golfferðalagi í Mexíkó, þegar hann varð fyrir árás 12 feta (4 metra) krókódíls, þar sem hann var að leika sér í golfi ásamt félögum sínum. Sauma varð 200 spor í fótlegg og mjöðm Dougie og Dougie sjálfur telur að hann þurfi að gangast undir lýtaaðgerð. Félagar Dougie rifjuðu upp árásina. Dougie hafði rétt komið bolta sínum á flöt úr glompu þegar krókódíllinn gerði skyndiárás úr runna og sökkti tönnum sínum í fótlegg Dougie og reyndi að draga hann út í vatn, sem þarna var. Vinur Dougie, Brendan O’Hara sagði m.a.: Ég sá út undan mér að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 18:00
Rose fær lífstíðarkeppnisrétt á Evrópumótaröðinni

Justin Rose fékk í gær heiðurslífstíðarkeppnisrétt á Evrópumótaröðinni í viðurkenningaskyni á frábærum sigri hans á Opna bandaríska risamótinu s.l. júní. Rose sem hafði betur gegn Phil Mickelson og Jason Day og sigraði á Merion golfklúbbnum og vann þannig fyrsta risamótstitil sinn fékk þessa sérstöku heiðursviðurkenningu úr hendi framkvæmdastjóra Evrópumótaraðarinnar, George O’Grady á blaðamannafundi fyrir DP World Tour Championship, sem hefst á morgun í Dubaí. „Þetta er virkilega ótrúlegur heiður,“ sagði Rose m.a. sem er sem stendur nr. 2 á peningalista Evrópumótaraðarinnar og keppir um að verða krýndur nr. 1 á peningalistanum í 2. sinn á ferlinum. „Fyrir strák sem hóf feril sinn með því að komast ekki í gegnum niðurskurð í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 15:30
Cheyenne Woods endurgerir fræga auglýsingu Tiger

Frænka Tiger Woods og fyrrum skólafélagi Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, GR í Wake Forest hefur endurgert fræga auglýsingu frænda síns, Tiger. Sjá má auglýsingu Cheyenne á Instagram og síðan þar fyrir neðan auglýsingu Tiger með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 15:00
Nr. 8 telur að stærstu mótaraðir munu sameinast

Nr. 8 á heimslistanum, bandaríski kylfingurinn, Matt Kuchar telur að stærstu mótaraðir í karlagolfinu muni sameinast. Matt Kuchar var spurður um þetta í gær á Australian Masters og svar hans var þetta: „Ég sé algerlega fyrir mér að PGA Tour, Evróputúrinn, Asíutúrinn og Ástral-Asíutúrinn muni sameinast í eina alþjóðlega mótaröð.“ „Ég hugsa að það muni gerast með tímanum.“ Þetta er nokkuð sem tekist hefir vel í tennisnum, en hefir aldrei almennilega komist í framkvæmd í golfinu, nema þegar allir sameinast í risamótunum. Kuchar virðist þó nokkuð viss í sinni sök að þetta sé það sem koma muni: „Það virðist sem það muni gerast fljótar nú en ég taldi á síðasta ári.“
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 13:30
Hvaða golfskór er bestur fyrir ykkur?

Ég hef oftar en einu sinni fengið hælsæri af golfskónum mínum. En jafnskjótt og búið er að ganga þá út kaupi ég alveg eins skó. Það er vegna þess að mér finnst þessir golfskór þægilegir. Þeir eru reynar markaðssettir sem þægindalegir heilsugolfskór. Þessir tilteknu golfskór eru val margra annarra, og skórnir í annarri línu að vísu eru líka val fólks, sem vinnur störf þar sem mikið er staðið s.s. kokkar og hjúkrunarfræðingar En eru heilsuskór alltaf þeir sem eru bestir? Ekki endilega, skv. nokkrum fótasérfræðingum. Að kaupa skó í merkjum, sem sérhæfa sig í þægindalegum skóm eða eru a.m.k. auglýstir sem slíkir er engin trygging fyrir að skórnir séu þæginlegir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Rafn Stefán Rafnsson – 13. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Rafn Stefán Rafnsson. Rafn Stefán er fæddur 13. nóvember 1978 og er því 35 ára í dag. Rafn Stefán er í Golfklúbbi Borgarness. Hann skipti nú nýlega um golfklúbb en fyrir ári síðan varð Rafn Stefán klúbbmeistari Golfklúbbsins Odds. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Rafn Stefán Rafnsson (35 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Robert Jay Sigel, 13. nóvember 1943 (70 ára stórafmæli!!!); Rosie Jones, 13. nóvember 1959 (54 ára); Sahra Hassan, 13. nóvember 1987 (26 ára)….. og …… Golfklúbburinn Mostri (29 ára) Baldvin Þór Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 10:00
Trump hefur mál g. skoska ríkinu vegna vindorkuvers

Lögmenn bandaríska billjónamæringsins Donald Trump hafa hafið mál þar sem lögmæti ákvörðunar skoska ríkisins, þar sem samþykkt var að byggja vindorkuver undir ströndum Aberdeenshire er dregin í efa. Vindorkuverið blasir við af miljarðalinksara Trump og Trump telur það vera sjónmengun. Donald Trump telur túrbínurnar hafa neikvæð áhrif á golfvöll sinn Vagninn var settur fyrir framan hrossið án heimildar þegar heimild var veitt til byggingar vindorkuvers, hélt lögfræðingateymi Trump fram fyrir Court of Session í Edinburgh. Þar krefst Trump lögbanns á 11 túrbínu vindorkuvers European Offshore Wind Deployment Centre (EOWDC) og heldur því fram að það skemmi útsýnið af golfvelli hans. Eins hefir einn lögmanna Trump, Gordon Steele QC haldið því fram Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

