Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2013 | 12:15

Evróputúrinn: Cañizares leiðir e. 1. dag í Dubaí

Það er spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares, sem er meðlimur í hinum fræga Valderrama golfklúbbi sem leiðir eftir 1. dag DP World Tour Championship í Dubaí.

Alejandro Cañizares

Alejandro Cañizares

Cañizares kom í hús á 6 undir pari, 66 höggum á Jumeirah golfstaðnum.

Cañizares fékk 7 fugla og 1 skolla og sagðist bara vera glaður að hafa komist inn í Dubaí þar sem ansi tvísýnt var að kærustu hans yrði hleypt inn í lanidð.

„Kæresta mín er tékknesk og ég gleymi því alltaf að hún er ekki með spænskt vegabréf og þarf á vegabréfsáritun að halda.  Ég man ekkert eftir þessu fyrr en við innritunar-deskinn í Tyrklandi. Sem betur fer var margt af fólki sem hjálpaði okkur þ.á.m. mótsstjórinn Nick Tarrat en hann beið eftir okkur í Dubai ásamt yfirmanni innflytjendamálefna í Dubai þegar við komum til Dubaí kl. 3 um nótt!“

Í 2. sæti, aðeins 1 höggi á eftir á 67 höggum eru Ástralinn Marcus Fraser og Thaílendingurinn Kiradech Aphibarnrat. 

Nokkrir eiga eftir að ljúka leik þegar þetta er ritað (kl. 12: 15) en ólíklegt er að breytingar verði á stöðu efstu manna.

Til þess að sjá stöðuna í Dubaí eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: