Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rafn Stefán Rafnsson – 13. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Rafn Stefán Rafnsson. Rafn Stefán er fæddur 13. nóvember 1978 og er því 35 ára í dag. Rafn Stefán er í Golfklúbbi Borgarness. Hann skipti nú nýlega um golfklúbb en fyrir ári síðan varð Rafn Stefán klúbbmeistari Golfklúbbsins Odds.   Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Rafn Stefán Rafnsson (35 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Robert Jay Sigel, 13. nóvember 1943 (70 ára stórafmæli!!!);  Rosie Jones, 13. nóvember 1959 (54 ára);  Sahra Hassan, 13. nóvember 1987 (26 ára)….. og ……
 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is