Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 08:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Estanislao Goya (4/27)

Argentínski kylfingurinn Estanislao Goya er einn af 6 kylfingum, sem rétt náðu að krækja sér í kortið sitt á Evrópumótaröðina 2014, eftir að hafa landað 22.-27. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar í Girona á Spáni, sem fram fór 10.-15. nóvember s.l. Goya lék á 9 undir pari, 419 höggum (66 70 67 73 72 71). Estanislao eða Tano eins og hann er alltaf kallaður fæddist 1. júní 1988 í Cordóba í Argentínu og er því 25 ára. Hann á þekkta kærustu, dóttur fyrrum rótara Bítlanna, Carly Booth, sem spilar á LET. Í Q-school að þessu sinni gekk ekki eins vel og í fyrra en þá varð Tano meðal 4 efstu. En Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 07:30
Björn efstur í hálfleik í Ástralíu

Daninn Thomas Björn leiðir einn þegar ISPS Handa heimsmótið í Melbourne, Ástralíu er hálfnað. Hann er samtals búinn að spila á 8 undir pari 134 höggum (66 68). Í 2. sæti er Kevin Streelman, sem deildi fyrsta sætinu með Björn í gær, en nú er Streelman 1 höggi á eftir á samtals 7 undir pari, 135 höggum (66 69). Þriðja sætinu deila síðan þeir Ricardo Santos frá Portúgal og Ástralinn Jason Day, sem missti fjölda ættingja í fellibyl á Filippseyjum. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals 4 undir pari, 138 höggum, hvor. Til þess að sjá heildarstöðuna á ISPS Handa heimsmótinu í Melbourne SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 07:00
Tyrkir vilja Ryder Cup 2022

Tyrkir vilja fá að halda Ryder Cup árið 2022. Á næsta ári, 2014, fer Ryderbikarskeppnin fram í Gleneagles í Skotlandi, 2016 fer keppnin fram í Bandaríkjunum (Hazletine National GC, í Minnesota) en álfurnar skiptast á um að halda mótið. Árið 2018 fer mótið fram á Le Golf National golfvellinum í París og svo 2020 er mótið aftur í Bandaríkjunum (Whistling Straits, í Kohler, Wisconsin). Næsta ár sem keppt verður og ekki er búið að ákveða mótsstað á í Evrópu er því árið 2022. Tyrkir héldu nú nýlega veglegt mót, Turkish Airlines Open og var mótið hluti af Evrópumótaröðinni. Buðu þeir m.a. Tiger Woods með ærnum tilkostnaði til þess að gera Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 06:30
Málþing GSÍ: „Golf sem lífstíll“

Í dag hefst málþingið „Golf sem lífstíll“ á vegum GSÍ, kl. 17:00 í Íþrótta og sýningarhöllinni í Laugardal. Aðgangur er opinn og öllum opinn. Aðalfyrirlesari er hr. Pierre Bechmann, formaður R&A 2013 Brynjólfur Mogensen læknir, Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri GSÍ, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Eggert Eggertsson lyfjafræðingur og Haukur Örn Birgisson, varaforseti GSÍ. · Kl.17:00 Ávarp forseta GSÍ, Jón Ásgeir Eyjólfsson. · Kl.17:10 Lífstíll í 260 ár. Mr. Pierre Bechmann, formaður R&A 2013. · Kl.17:50 Fyrirspurnir til Mr. Pierre Bechmann. · Kl.18:15 Forvarnargildi golfíþróttarinnar, Brynjólfur Mogensen. · Kl.18:30 Golfvöll í hvert sveitarfélag, Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ. · Kl.18:45 Golf í heilsueflandi samfélagi. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. · Kl.19:00 Í sátt við Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 04:00
LPGA: Gal efst eftir 1. hring Titleholders

Það er fyrrum þýska W-7 módelið, Sandra Gal, sem er efst á CME Group Titleholders eftir 1. dag en mótið hófst í gær í Naples, Flórídal Hún lék á 8 undir pari, 64 höggum; fékk 9 fugla og 1 skolla og þar af 6 fugla í röð frá 10.-15. holu. Í 2. sæti er RebeccaLee-Bentham frá Kanada. Hún er aðeins 1 höggi á eftir, á 7 undir pari, 65 höggum. Í 3. sæti eru 3 kylfingar: Shanshan Feng frá Kína, sænski kylfingurinn Anna Nordqvist og hin 18 ára bandaríska Lexi Thompson frá Coral Springs í Flórída. Allar eru þær á 6 undir pari, hver. Hin unga 16 ára Lydia Ko, frá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 19:05
Birgir Leifur lék á 71 höggi, á 3. degi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í II. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina, sem hófst í fyrradag. Leikið er á Southern Hills Plantation vellinum í Flórída, dagana 19.-22. nóvember, en alls eru mótin á II. stigi, sex. 19 efstu og þeir sem eru jafnir í 19. sæti halda áfram á lokaúrtökumótið. Birgir Leifur er samtals búinn að spila á 3 undir pari, 213 höggum (69 73 71). Sem stendur er hann í 43. sæti, en margir eiga eftir að ljúka keppni þegar þetta er skrifað og því getur sætistala hans enn tekið breytingum. Bandaríkjamaðurinn Matt Ryan hefir mikla yfirburði í mótinu er á 13 undir pari eftir 2 spilaða hringi. Það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 18:45
Björn og Streelman leiða í Ástralíu

Það eru þeir Thomas Björn frá Danmörku og Kevin Streelman frá Bandaríkjunum, sem leiða á heimsmótinu í Ástralíu, sem hófst í fyrrinótt að íslenskum tíma. Leikið er á Royal Melbourne golfvelinum í Melbourne, Ástralíu og stendur dagana 20.-24. nóvember 2013. Báðir léku þeir á 5 undir pari, 67 höggum. Sjá má Björn fá glæsilegan fugl á 18. holu með því að SMELLA HÉR: Í þriðja sæti eru þrír kylfingar allir á 4 undir pari, 68 höggum: Martin Laird, Stuart Manley og KJ Choi. Til þess að sjá heildarstöðuna eftir 1. dag á heimsmótinu SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á heimsmótinu SMELLIÐ HÉR: Högg dagsins á heimsmótinu var glæsilegur örn GMac (Graeme Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 18:30
Evróputúrinn: Matthew Nixon leiðir á SA Open eftir 1. dag

Í dag hófst í Ekurhuleni, í Gauteng, Suður-Afríku, elsta golfmót landsins þ.e. SA Open. Leikið er á golfvelli Glendower golfklúbbsins. Eftir 1. dag leiðir Englendingurinn Matthew Nixon á 8 undir pari, 64 höggum. Sjá má kynningu Golf 1 á Nixon með því að SMELLA HÉR: Í 2. sæti eru heimamaðurinn Jbe Kruger og Ítalinn Marco Crespi; báðir á 7 undir pari, 65 höggum. Það er Henrik Stenson, sem á tiitl að verja en hann sagði sig úr mótinu vegna meiðsla í úlnlið. Sjá má heildarstöðuna eftir 1. dag á SA Open með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 18:00
Poulter og Stenson með útvarpsþætti

Ian Poulter og Henrik Stenson eru vinir innan vallar sem utan, sem berlega kom í ljós í skemmtilegu veðmáli þeirra á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í Dubai, en til að krydda aðeins upp á dæmið veðjuðu þeir upp á $ 100 dollara hvor þeirra yrði ofar á skortöflunni, auk þess sem sá sem varð neðar varð að vera þjónn hins eina kvöldstund. Svo sem allir vita lenti Poulter í þjónshlutverkinu. Nú hafa þessir kappar samþykkt að stjórna hvor sínum útvarpsþætti á SiriusXM PGA Tour Radio á næsta ári. Þar munu þeir ræða um ýmis golftengd efni þ.á.m. golfvelli, golfútbúnað, undirbúning fyrir mót og félaga sína á PGA Tour og það sem þeim dettur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 16:00
Haukur Örn forsetaframbjóðandi GSÍ situr fyrir svörum

Haukur Örn Birgissson, sitjandi varaformaður GSÍ hefir gefið kost á sér í forsetaembætti GSÍ. Þetta er í fyrsta sinn í áratugi, sem forsetakjör fer fram í GSÍ. Golfþing GSÍ hefst á morgun, föstudaginn 22. nóvember. Golf 1 tók viðtal við Hauk Örn á 16. hæð í Turninum við Smáratorg í Kópavogi, en þar starfar hann sem hæstaréttarlögmaður hjá Íslensku Lögfræðistofunni. Frá skrifstofunni hans er gríðarlega fallegt útsýni yfir Kópavog, Reykjavík og nágrannabyggðir og eitt af því sem tekið er eftir þegar gengið er inn á skrifstofuna eru fjöldi verðlaunagripa í golfi, sem Haukur Örn hefir unnið í ýmsum golfmótum lögmanna. Golf 1 átti stutt viðtal við Hauk Örn: Golf Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

