Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 13:00

Golfþing GSÍ hófst í morgun – SNAG kynning á staðnum

Golfþing Golfsambands Íslands hófst í morgun. Ársskýrsla stjórnar GSÍ var lögð fram og má skoða hana með því að SMELLA HÉR:  Nú eftir hádegi fara fram nefndarstörf og munu þau standa til kl. 15:00. Þar á eftir verður m.a. ný stjórn sambandsins kosin, en kjörbréfanefnd hefir farið yfir kjörbréf og hafa 161 fulltrúi frá 44 golfklúbbum kosningarétt. Í anddyri Sýningar- og Íþróttahallarinnar í Laugardal, þar sem Golfþingið fer fram, var kynning á SNAG golfi skemmtilegri nýjung í golfkennslu, sem m.a. golfgoðsögnin Jack Nicklaus notar.  SNAG býður upp á skemmtilegar kylfur, kennsluefni og golfþrautir, sem allir hafa gaman á að spreyta sig á, jafnt byrjendur í golfi sem lengra komnir.


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 12:30

Afmæliskylfingur dagsins: Alison Whitaker – 23. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurinn Alison Whitaker. Alison er fædd 23. nóvember 1985 og er þvi 28 ára í dag. Hún spilaði m.a. í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Duke University en útskrifaðist 2010 með gráðu í sálfræði. Nú spilar hún á Symetra Tour. Sjá má nýlegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Gary Rusnak, f. 23. nóvember 1962 (52 árs); Jerry Kelly, f. 23. nóvember 1966 (47 ára); Paul Penny, f. 23. nóvember 1972 (41 árs) …… og ….. Kristín Þorvaldsdóttir (55 ára) Ísafjarðar Bíó (78 ára) Helgi Örn Viggosson Katrín Júlíusdóttir (39 ára) Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 08:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Mikko Korhonen (5/27)

Mikko Korhonen er eini Finninn, sem náði inn á Evrópumótaröðina í gegnum lokaúrtökumót  Q-school, sem fram fór í Girona 10.-15. nóvember s.l.  – Hann rétt slapp inn varð í 22.-27. sæti. Mikko lék á 9 undir pari, 419 höggum (69 71 68 70 70 71) og fékk að launum € 1.937,- Mikko komst inn á Evrópumótaröðina í fyrra eftir að hafa orðið í 9. sæti í Q-school, en hann hefir þurft í Q-school á hverju ári frá því hann gerðist atvinnumaður 2004 til þess að endurnýja kortið sitt. Golf 1 skrifaði eftirfarandi kynningu á Korhonen í fyrra og á hún allt eins við nú í ár. Sjá með þvi að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 08:30

Golfbolti endurkastast á viðkvæman stað í Chi-Chi Rodriguez

Chi Chi Rodriguez er fæddur 23. október 1935 og er því orðinn 78 ára. Hann vann 8 sinnum á PGA Tour og 22 sinnum á Öldungamótaröð PGA þ.e. Champions Tour. Hann er líka sá fyrsti frá Puerto Rico til þess að komast í frægðarhöll kylfinga, en á Puerto Rico ólst hann upp í mikilli fátækt einn af 6 systkinum í Rio Piedras. Chi Chi var þekktur fyrir að skemmta áhorfendum golfmóta og aðdáendum sínum með því að taka nautaatsatriði á golfmótum eða „slíðra sverð.“ Enn á gamalsaldri er Chi Chi að sýna ýmis brelluhögg. Hér má sjá svolítið kynningarmyndskeið um Chi Chi SMELLIÐ HÉR:  Nú um daginn var öldungurinn síungi fenginn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 07:30

PGA: Day tók forystuna á 3. degi

Jason Day tók forystuna á ISPS Handa heimsmótinu í golfi sem fram fer á Royal Melbourne golfvellinum í Melbourne, Ástralíu. Day er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 204 höggum (68 70 66) og hefir aðeins 1 höggs forystu á Thomas Björn, sem búinn er að leiða fyrstu dagana. Björn er sem sagt í 2. sæti á samtals 8 undir pari, 205 höggum (66 68 71). Í 3. sæti er Matt Kuchar á samtals 6 undir pari og í 4. sæti er Ítalinn Francesco Molinari á samtals 5 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:  Sjá má forystumanninn Jason Day fá fallegan fugl Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 07:00

LPGA: Sandra Gal enn efst e. 2. dag

Sandra Gal leiðir enn eftir 2. hring á CME Group Titleholders mótsins. Mótið fer fram í Naples í Flórída og það er NY Choi sem á titil að verja. Gal er samtals búin að spila á 11 undir pari, 133 höggum (64 69). Í 2. sæti er Sun Young Yoo frá Suður-Kóreu, 3 höggum á eftir Gal. Þriðja sætinu deila síðan 3 kylfingar: Cristie Kerr, Pornanong Phattlum og Gerina Piller, allar á 6 undir pari, hver. Til þess að sjá heildarstöðuna eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 21:00

Það munaði 6 höggum hjá Birgi Leif

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lék í dag lokahringinn á  II. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina. Leikið var á Southern Hills Plantation vellinum í Flórída, dagana 19.-22. nóvember, en alls eru mótin á II. stigi, sex. 19 efstu og þeir sem eru jafnir í 19. sæti héldu áfram á lokaúrtökumótið.  Reyndar voru það þeir sem voru í 16.-21. sæti sem komust áfram í reynd og spiluðu þeir allir á samtals 9 undir pari, hver. Birgir Leifur lék á  3 undir pari, 285 höggum (69 73 71 72) og munaði því 6 höggum á að Birgir Leifur kæmist í lokaúrtökumótið fyrir Web.com mótaröðina. Til þess að sjá úrslit úrtökumótsins á Southern Hills Plantation SMELLIÐ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 20:00

Charl Schwartzel og Marco Crespi leiða eftir 2. dag SA Open

Það eru heimamaðurinn og Masters sigurvegarinn Charl Schwartzel  og Ítalinn Marco Crespi sem leiða eftir 2. dag SA Open. Báðir eru búnir að spila á samtals 12 undir pari, 132 höggum; Schwartzel (67 65) og Crespi (65 67). Í 3. sæti er Morten Örum Madsen á 11 undir pari, 133 höggum og í 4. sæti er heimamaðurinn Christian Basson á 10 undir pari, 134 höggum. Í 5. sætinu er síðan Englendingurinn James Morrison og heimamaðurinn Jbe Kruger á samtals 9 undir pari hvor. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á SA Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Emma Cabrera-Bello – 22. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Emma Cabrera Bello. Emma er fædd 22. nóvember 1985 og á því 28 ára afmæli. Emma byrjaði að spila golf 5 ára og býr nálægt Maspalomas golfvellinum, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunnur. Hún er samt félagi í fínasta golfklúbbnum á Gran Kanarí: Real Club de Golf de Las Palmas, en völlur klúbbsins er byggður ofan í eldfjallagíg.  Meðal áhugamála afmælisbarnsins er lestur góðra bóka, að vera á skíðum hvort heldur svig eða vatns-, henni finnst auk þess gaman að fara í kynnisferðir til að kynna sér nýja staði sem hún ferðast til. Bróðir Emmu er Rafael, sem spilar á Evrópumótaröðinni. Emma er með gráðu í viðskiptafræði og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2013 | 08:03

Framkvæmdastjóri Reuters spilaði golf hér á landi, skrifaði grein þar um og ræddi við varaforseta GSÍ – Hauk Örn Birgisson

Framkvæmdastjóri Reuters, Paul Ingrassia, hafði aldrei spilað golf hérlendis þar til s.l. sumar … og honum líkaði vel ef marka má grein sem hann skrifaði um upplifun sína.  Hana má lesa með því að SMELLA HÉR:  Þar segir hann Bandaríkjamönnum frá 322.000 manna þjóðinni norður í Atlantshafi, þar sem um 10% íbúa spila golf á 65 golfvöllum landsins, sem sé mesti fjöldi golfvalla á íbúa í heiminum.  Auk þess virðist það heilla hann að fleiri á Íslandi spili golf per höfðatölu en á Bretlandi eða Bandaríkjunum. Hann telur veðráttuna  hentuga fyrir golfbrautir hér á landi og virðist almennt hrifinn af þeim völlum, sem hann spilaði á þ.e.. Hvaleyrina , Urriðavöll Lesa meira