Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rebecca Flood – 21. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski  kylfingurinn Rebecca Flood.  Rebecca fæddist 21. nóvember 1988 í Coonabarabran New South Wales í Ástralíu og er því 25 ára í dag. Rebecca byrjaði að spila golf 10 ára eftir að hún fylgdist með pabba sínum, sem er eigandi bakarís, spila golf. Rebecca þakkar fjölskyldu sinni og þjálfara, Gary Edwin fyrir góðan árangur sinn í golfinu, en hún hefir spilað á Evrópumótaröð kvenna (LET) frá árinu 2010. Rebecca stundaði nám við NSW Institute of Sport. Hún kemur frá litla bænum  Coonabarabran í New South Wales (NSW) og þegar hún var að vaxa úr grasi varð hún að keyra í 10  tíma til Sydney a.m.k. 6 sinnum á ári til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 13:30

Chris Kirk baðst afsökunar á ölvunarrausi sínu um langa púttera á Twitter

Eftir að Chris Kirk sigraði á McGladrey Classic 10. nóvember s.l. fór hann á samskiptamiðilinn Twitter og tjáði sig þar drukkinn um langa púttera. Hann sagðist dást að Adam Scott, sem notar langan pútter og sigraði Australian Masters, en lýsti yfir ógeði sínu á pútter hans og sagði að Scott ætti að skammast sín að nota slíkan pútter. Kirk ásakaði einnig bandaríska golfsambandið fyrir að setja leikmenn í óþægilega stöðu með því að banna ekki langa púttera strax. Seinna skrifaði hann m.a.: „Kuch er minn maður, en hverjum borgaði hann fyrir til þess að fá þessa aðferð samþykkta sem löglega?“ (ens. „Kuch is my boy, but who did he pay off Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 08:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Jack Doherty (3/27)

Jack Doherty er annar af tveimur Skotum, sem komust í gegnum lokaúrtökumótið í Girona á Spáni og hljóta þ.a.l. kortin sín á Evrópumótaröðina 2014.  Báðir Skotarnir, Jack Doherty og Alastair Forsyth voru meðal þeirra síðustu til þess að komast þ.e. rétt smugu í gegn, voru í 22.-27. sæti, tveir af 6 strákum. Báðir voru þeir á 9 undir pari, 419 höggum og hlutu báðir € 1.937,- í verðlaunafé.   Doherty spilaði hringina 6 á eftirfarandi máta: 68 70 66 71 73 71 – Forsyth hefir þegar verið kynntur.  En hver er Doherty? Jack Doherty er fæddur 28. apríl 1982 í Canberra á Ástralíu og er því 31 árs. Doherty gerðist Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 06:30

Kylfusveinn Stenson kaupir Ferrari

Á tímabili var Steve Williams ríkasti íþróttamaður í Nýja-Sjálandi, þ.e. meðan hann var á pokanum hjá Tiger. En hvað er að segja af kylfusveini manns mómentsins þ.e. Henrik Stenson? Stenson er búinn að vinna sér inn meira en  £6 milljónir fyrir að vinna  FedEx Cup og £5 milljónir fyrir að sigra á Race to Dubai og á ferli sínum hefir hann unnið sér inn £17 milljónir. Af þessu fær kylfusveinn Stenson, Garreth Lord eða „Lordy“ eins og hann er kallaður 10%. A.m.k. er hann á þessum tímapunkti búinn að vinna sér inn nóg hjá Stenson að hann keypti sér Ferrari nú um daginn. Ekki fylgdi sögunni um hvers konar Ferrari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2013 | 20:00

Viðtalið: Haukur Örn Birgisson, varaforseti GSÍ

Viðtalið í kvöld er við núverandi varaforseta GSÍ, sem gefið hefir kost á sér í komandi forsetakjöri GSÍ. Varaforsetinn hefir verið viðloðandi GSÍ, fyrst sem almennur starfsmaður Golfsambandsins og síðan við stjórnarsetu óslitið í tæpan áratug.  Þing GSÍ hefst n.k. föstudag, 22. nóvember 2013. Hér er viðtalið við forsetaframbjóðandann: Fullt nafn:   Haukur Örn Birgisson. Klúbbur:   GO og svo er ég með aukaaðild í GF. Hvar og hvenær fæddistu?   Ég fæddist í Reykjavík, 3. desember 1978. Hvar ertu alinn upp?   Í Breiðholtinu, ég bjó þar til 25 ára aldurs, þar til ég kláraði námið,  þá flutti ég að heiman. Í hvaða starfi ertu?  Ég er hæstaréttarlögmaður. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2013 | 19:00

Birgir Leifur með 73 högg 2. daginn

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í  II. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina, sem hófst í gær. Leikið er á Southern Hills Plantation vellinum í Flórída, dagana 19.-22. nóvember, en alls eru mótin á II. stigi, sex. 19 efstu og þeir sem eru jafnir í 19. sæti halda áfram á lokaúrtökumótið. Því miður gekk ekki eins vel 2. daginn hjá Birgi Leif og í upphafi.  Hann lék á 1 yfir pari, 73 höggum í dag og er því samtals búinn að spila á 2 undir pari, 142 höggum (69 73). Birgir Leifur fékk 3 skolla og 2 fugla og er 4 höggum á eftir þeim sem eru í 12.-19. sæti, en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2013 | 18:00

R&A og USGA samþykkja breytingar á golfreglum

Sem hluta viðvarandi skuldbindingar til þess að skapa meiri gegnsæji á golfreglunum tilkynntu R&A og USGA, reglusetningaryfirvöld golfíþróttarinnar, í gær breytingar á 2012-2013 útgáfu golfregluákvarðananna. Breytingarnar eru hluti af tveggja ára endurskoðun á ákvörðununum og ganga þessar breytingar í gildi 1. janúar 2014. „Ákvarðanir varðandi golfreglurnar 2014-2015″ innihalda meira en 1200 dæmi um tiltekin atvik, sem snerta golfreglurnar. Alls hafa 87 breytingar verið gerðar á Ákvarðannabókinni 2012-2013; 3 nýjar ákvarðanir taka gildi, 59 hefir verið breytt, ein ákvörðun hefir hlotið nýja tölusetningu meðal golfreglnanna og 24 ákvarðanir hafa verið felldar úr gildi. „Golfreglurnar eru í stöðugri þróun“  sagði Thomas Pagel, yfirframkvæmdastjóri USGA hvað snertir golfreglurnar. „Endurskoðunin á ákvörðunum er tækifæri Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Thidapa Suwannapura – 20. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Thidapa Suwannapura. Suwannapura er fædd 20. nóvember 1992 og á því 21 árs afmæli í dag. Hún spilaði keppnistímabilið 2012  á LPGA, en sjá má kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Bobby Locke, f. 20. nóvember 1917 – d. 9. mars 1987; Don January, 20. nóvember 1929 (84 ára);  Ásta Guðríður Guðmundsdóttir, 20. nóvember 1972 (41 árs afmæli; Rahman Siddikur, 20. nóvember 1984 (29 ára) ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2013 | 12:00

Haukur Örn Birgisson varaforseti GSÍ og frambjóðandi í forsetakjöri GSÍ: „Það þarf að gera ákveðnar breytingar“

Þegar ég tók ákvörðum um að sækjast eftir því að verða kjörinn forseti Golfsambands Íslands fór ég að heyra þessa setningu endurtekna. Nokkrir hafa sagt við mig að ég þurfi að beita mér fyrir breytingum, ætli ég mér að verða kjörinn forseti sambandsins. Ég er sammála því. Hinn almenni kylfingur Hér þarf að gera ákveðnar breytingar. Golfhreyfingin samanstendur af hinum almenna kylfingi sem heldur uppi starfi golfhreyfingarinnar, hvort sem það er starf klúbbanna eða golfsambandsins. Hinn almenni kylfingur ýmist borgar brúsann eða leggur til vinnuna, nánast undantekningarlaust í sjálfboðavinnu. Rúmlega 99% af félagsmönnum í golfhreyfingunni má setja í hóp hins almenna kylfings. (Af 16.602 félagsmönnum eru einungis 72 kylfingar með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2013 | 20:00

Glæsileg byrjun Birgis Leifs!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf í dag leik á II. stigi úrtökumóts fyrir Web.com mótaröðina. Leikið er á Southern Hills Plantation vellinum í Flórída, dagana 19.-22. nóvember, en alls eru mótin á II. stigi, sex. Birgir Leifur átti rástíma kl. 9:03 að staðartíma (sem var kl. 14:03 að okkar tíma hér heima á Íslandi.) 19 efstu og þeir sem eru jafnir í 19. sæti halda áfram á lokaúrtökumótið. Sem stendur lítur allt vel út hjá Birgi Leif, en hann lék á glæsilegum 3 undir pari, 69 höggum!!!  ….. og deilir 18. sætinu.  Hann missti hvergi högg, fékk 3 fugla og 15 pör.  Glæsilegt !!! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. Lesa meira