Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 13:00

Campillo og Nel spiluðu báðir 2. hring á Mandela mótinu á 59 höggum!!!! … en fá metið ekki skráð

Það hefir aldrei gerst á Evrópumótaröðinni, allt frá því að henni var hleypt af stokkunum árið 1972 að kylfingur leiki á 59 höggum í móti á mótaröðinni…. hvað þá að tveir kylfingar nái 59 högga draumahringi í einu og sama mótinu. Það gerðist þó í gær þegar 2. hringur Nelson Mandela Championship var leikinn í KwaZulu Natal í Suður-Afríku. Það voru þeir Jorge Campillo frá Spáni og Colin Nel frá Suður-Afríku, sem báðir náðu að leika á 11 undir pari, 59 höggum …. en met þeirra verða ekki skráð!!! Vonbrigði það!!! Ástæðan er hins vegar sú að kylfingar gátu lyft bolta og hreinsað vegna mikils votviðris sem ítrekað hefir valdið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 12:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Jens Dantorp (14/27)

Í dag verður fram haldið að kynna þá 5 stráka, sem deildu  12.-16. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir Patrik Sjöland, Brinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath. Allir léku þeir á samtals 11 undir pari, 417 höggum og hlutu € 3.170 í verðlaunafé.  Nú þegar hafa Sjöland og Paolini verið kynntir en sá sem kynntur verður í dag varð í 14. sæti –  Jens Dantorp. Dantorp er einn af 3 sænskum kylfingum sem komust á Evróputúrinn að þessu sinni í gegnum Q-school en hinir voru Patrik Sjöland og Mikael Lundberg (varð í 5.-7. sæti). Dantorp spilaði á (66 68 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 11:45

Moe Norman – kylfingurinn sem 3 sinnum spilaði hring upp á 59 högg (2/8)

Icelandair býður nú upp á tvo nýja áfangastaði í Kanada; Edmonton og Vancouver og býðst íslenskum kylfingum nú frábært tækifæri að spila frábæra golfvelli í kringum þær borgir sem telja eitthvað á 2. hundrað en golfvellir í Kanada eru hátt í 2000.   Í tengslum við þessar kynningar er ætlunin að kynna einn helsta son Kanada golflega séð; kylfing sem þó svo margir kannast ekkert við. Hér fer 2. hlutinn af 8 greinum um Moe Norman (áður birt hér á Golf 1 – aðeins á facebook 2011): Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma, m.a. í að slá bein högg. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 11:30

PGA: 3 lið efst í Franklin Templeton Shootout eftir 1. dag

Þessa daganna 9.-15. desember 2013 fer fram Franklin Templeton Shootout í Ritz-Carlton golfstaðnum  í Naples, Flórída. Gestgjafi mótsins er hvíti hákarlinn, Greg Norman. Tveggja manna lið 24 nokkurra bestu kylfinga (þ.e. 12 lið) á PGA Tour keppa um $ 3,1 milljón í  móti þar sem m.a. er spilaður besti bolti, betri bolti og scramble. 3 lið eru efst og jöfn eftir 1. keppnisdag: Lið Sean O´Hair og Kenny Perry, sem eiga titil að verja; lið Harris English og Matt Kuchar og lið Charles Howell III og Justin Leonard en öll léku þessi lið á 8 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. keppnisdag SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 10:00

Hörður Þorsteinsson: „Vantar stefnumörkun sveitarfélaga varðandi golfíþróttina“ (2/3)

Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ hélt frábæran fyrirlestur á málþingi sem GSÍ stóð fyrir föstudaginn 22. nóvember 2013.  Hann bar yfirskriftina: „Golfvellir í hvert sveitarfélag.“ Hér fer 2. hluti fyrirlestrar Harðar: „En þá er spurningin hvernig byggjum við upp golfklúbbana? Hver á að byggja golfvelli á Íslandi? Á glæru fyrir aftan Hörð: „Er markvisst unnið eftir íþróttastefnu í stuðningi við íþróttahreyfinguna og uppbyggingu mannvirkja? Þá vil ég spyrja: Er unnið eftir einhverri íþróttastefnu í stuðningi við hreyfinguna og uppbyggingu mannvirkja? Hvernig á uppbyggingin sér stað á Íslandi og hvernig er þróunin á því? Þá er hér íþróttastefna ríkisins og hún er mjög athyglisverð. Á glæru fyrir aftan Hörð: „Íþróttastefna ríkisins Markmið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 07:00

GSG: Skötuveisla hefst kl. 11:30 í dag!

Árlegt skötumót GSG fer fram í dag, laugardaginn 14. desember 2013. Ekki er nauðsynlegt að mæta með kylfur, því aðalega verður notast við borðbúnað (fer eftir veðri). Mótið stendur yfir frá kl 11:30 – 13:30. Innifalið í þátttökugjaldi er skata og saltfiskur Allir velkomnir  Ath, skráning á golf.is og gsggolf@gsggolf.is Þátttökugjald 2.500,- k.r á mann.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 04:30

Sergio Garcia með ás og ljósku á pokanum í Thaílandi – myndskeið

Sergio Garcia sökkti töfraási eftir framúrskarandi hring á Thailand Golf Championship á Amata golfvellinum, í Chonburi á Thaílandi í gær, föstudaginn 13. desember 2013.  Garcia náði draumahögginu á par-3 8. holunni í  Amata Spring Country Club og kláraði hringinn á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum og er samtals á 11 undir pari, 133 höggum (68 65) í hálfleik og efstur ásamt Justin Rose.  Garcia hélt því fram við fréttamenn að hann hafi alltaf vitað að boltinn ætti möguleika á að detta þó að mið hans hafi verið langt til hægri.  Sjá má glæsilegt draumahögg Garcia í hápunktum 2. hrings Thaíland Golf Championship (1:28 mín) með því að SMELLA HÉR:  Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 04:00

Hálfbróðir Tiger handtekinn vegna gríns

Hálfbróðir Tiger Woods var handtekinn eftir að hann hringdi inn hótun um að hann myndi sprengja upp skrifstofubyggingu þá sem hann vinnur í , í Phoenix, Arizona. Earl Dennison Woods Jr., sem er annar af tveimur hálfbræðrum Tiger og pabbi Cheyenne Woods, var með sprengjuhótun gegn Arizona Department of Economic Security s.l. fimmtudagsmorgun.  Hinn 58 ára Earl viðurkenndi að það hefði verið hann sem hringdi en sagðist hafa gert það í gríni. Byggingin var rýmd og leit framkvæmd en engin sprengiefni fundust.  Skv.  The Arizona Republic  hringdi Earl Woods stuttu fyrir  8.30am að staðartíma og sagðist myndi sprengja upp bygginguna. Hann gaf sig síðan fram eftir að í ljós kom hversu alvarlega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 23:00

Afmæliskylfingar dagsins: Finnbogi Steingrímsson og Rickie Fowler – 13. desember 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir annars vegar Finnbogi Steingrímsson og hins vegar Rickie Fowler. Finnbogi er fæddur 13. desember 2001 og á því 12 ára afmæli í dag.  Hann er afrekskylfingur í GKJ, sonur hjónanna Steingríms Walterssonar og Elínar Rós Finnbogadóttur. Rickie Fowler er fæddur 13. desember 1988 í Murrieta, Kaliforníu og því 25 stórafmæliára í dag. Fowler spilar á bandaríska PGA og vann einmitt sinn fyrsta sigur á mótaröðinni, 6. maí 2012, þegar hann sigraði þá DA Points og Rory McIlroy í umspili á Wells Fargo Championship. Annars er Fowler frægur fyrir að vera í Golf Boys bandinu, sem átti gríðarlega vinsælt lag Oh, Oh, Oh, sem hlusta má á með því að SMELLA Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 13:30

GKB: Jóhann endurkjörinn formaður

Aðalfundur Golfklúbbs Kiðjabergs var haldinn miðvikudaginn 11. desember. Á fundinn mættu 43 félagsmenn þar sem Jóhann Friðbjörnsson, formaður, flutti skýrslu stjórnar. Jenetta Bárðardóttir fór yfir reikninga klúbbsins og kom fram í máli hennar að hagnaður af rekstri klúbbsins var 856 þúsund krónur fyrir afskriftir og fjármagnsliði, en tap að frádregnum þeim liðum upp á 3,3 milljónir króna. Reikningar og skýrsla stjórnar voru samþykktar samhljóða á fundinum. Fram kom í skýrslu stjórnar að um 2.000 færri hringir voru sráðir inn á www.golf.is en árið 2012. Má þar eingöngu kenna um slæmu veðurfari, sem var á suðvestur horni landsins mest allt sumarið. Stjórnin lagði fram tillögu um að 5.000 króna gjald yrði Lesa meira