Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 13:00

Rose og Garcia leiða í Thaílandi

Þessa dagana 12.-15. desember fer fram á par-72, 7.488 yarda Amata Spring CC golfvellinum, í Thaílandi, Thaíland Golf Championship, en mótið er hluti af Asíutúrnum. Í hálfleik, þ.e. eftir 2 leikna hringi eru það meistari Opna bandaríska, Justin Rose (65 68) og Sergio Garcia (68 65)  sem leiða á samtals 133 höggum hvor. Til þess að sjá viðtal við forystumann eftir 2. dag Justin Rose SMELLIÐ HÉR:  Þriðja sætinu deila 3 kylfingar, sem eru 2 höggum á eftir forystumönnunum á samtals 135 höggum hver:  Alex CEJKA ( 64 71);  Anirban LAHIRI ( 71 64), Alexander LEVY ( 70 65). Í 6. sæti er síðan Rickie Fowler á samtals 136 höggum (70 66) og  sjöunda sætinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 10:45

Moe Norman – Kylfingurinn með beinu höggin (1/8)

Golf 1 hefir nú að undarförnu hafið kynningar á nokkrum af 2000 golfvöllum í Kanada, í tilefni þess að Icealandair hafa bætt við tveimur áfangastöðum til Kanada og íslenskum kylfingum veitist því einstakt tækifæri að spila hina fjölmörgu frábæru golfvelli í kringum Edmonton og Vancouver. Hér verða rifjaðar upp greinar Golf 1 (sem áður hafa birtst 2011) um einn frægasta son Kanada, golflega séð: Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma í að slá bein högg, en hann var líka vanmetinn og illa liðinn af sumum vegna sjálfumgleði og sérviskulegrar framkomu sinnar. Vegna þess hversu bein högg Moe voru var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 10:30

Nelson Mandela Championship í beinni

Nú í dag verður Nelson Mandela Championship fram haldið, en mótið hófst á miðvikudeginum og átti að ljúka á morgun, en var frestað vegna úrhellisrigningar og óspilanlegs vallar í kjölfarið.  Mótið fer því fram 11.-14. desember í Mount Edgecombe CC í Durban, KwaZulu Natal, Suður-Afríku. Ekki tókst að ljúka 1. hring á miðvikudag en það tókst í morgun og þegar er tekið til við að spila 2. hring. Mótið hefir verið stytt í 54 holu keppni. Eftir 1. dag mótsins leiðir enski nýliðinn Daníel Brooks á 8 undir pari, 62 höggum. Sjá má kynningu Golf 1 á Brooks með því að SMELLA HÉR:  Til þess að sjá Nelson Mandela Championship Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 10:00

Hörður Þorsteinsson: „792 golfholur á Íslandi“ (1/3)

Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ hélt frábæran fyrirlestur á málþingi sem GSÍ stóð fyrir föstudaginn 22. nóvember 2012.  Hann bar yfirskriftina: „Golfvellir í hvert sveitarfélag.“ Hér er gripið niður í fyrirlestur Harðar: „Ég ætla að fara í nokkrar tölur um golf á Íslandi. Og ég segi golf í hvert sveitarfélag. Við erum náttúrulega með 65 golfvelli hringinn í kringum landið. Dreifing á golfvöllum á Íslandi er mjög athyglisverð miðað við víða.  Það er ekki langt á milli valla. Við erum með 65 velli; 49 9-holu velli og 18 18-holu velli og 1 27-holu völl. Þannig að það er gríðarlega mikill fjöldi golfvalla á Íslandi og 792 golfholur. (Af glæru) Á Íslandi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2013 | 06:00

GÖ: Guðmundur endurkjörinn formaður – 2,9 milljóna hagnaður

Aðalfundur GÖ var haldinn í Skipholti 70 þriðjudaginn 10. desember 2013.  Nýendurkjörinn formaður Guðmundur E. Hallsteinsson sendi frá sér eftirfarandi fundargerð: „Í stjórn voru kosnir: Formaður Guðmundur E. Hallsteinsson, aðrir stjórnarmenn eru Knútur Kristinsson, Guðjón Snæbjörnsson, Guðlaug Þorgeirsdóttir og Ragnar Guðmundsson. Varastjórn: Þórir Björgvinsson og Hannes Björnsson. Endurskoðendur: Stefán Gunnarsson og Þröstur Eggertsson. Árgjöld klúbbsins voru ákveðin og verða árið 2014: Einstaklingar kr. 56.500, hjónagjald kr.85.000, unglingar greiða kr. 18.000, námsmenn í fullu námi kr. 28.250, öldungar og öryrkjar greiða hálft gjald.   Rekstur golfklúbbsins gekk vel þrátt fyrir votviðrasamt golfsumar. Hagnaður af rekstrinum var kr. 2.916.758. Þess skal getið að golfklúbburinn verður 40 ára á næsta ári. Þeirra tímamóta verður fagnað með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2013 | 21:30

Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Sveinsson – 12. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Benedikt Sveinsson. Benedikt er fæddur 12. desember 1994 og því 19 ára í dag. Benedikt er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Hann spilaði á  Eimskipsmótaröðinni sl. sumar með góðum árangri. Nú á nýafstöðnum aðalfundi Golfklúbbsins Keilis hlaut Benedikt m.a. viðurkenningu fyrir að verða bikarmeistari Keilis 2013. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Benedikt Sveinsson (19 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Shirley Englehorn, 12. desember 1940 (73 ára);  Philip Parkin, 12. desember 1961 (52 ára);  Deane Pappas, 12. desember 1967 (46 ára);  Ryuichi Oda, 12. desember 1976 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2013 | 21:00

Bátseigandinn Karrie Webb

Ástralska golfdrottningin Karrie Webb er e.t.v. einhver vanmetnasti  kylfingur samtímans. A.m.k. er sjaldnast fjallað um hana í golffjölmiðlum og afrek hennar metin svo sem skyldi. Karrie verður 39 ára eftir 9 daga en hún er enn að og enn að sigra mót, hvort heldur er á LPGA eða Evrópumótaröð kvenna. Karrie hefir alls sigrað í 39 mótum á ferli sínum og situr í 7. sæti yfir þá kvenkylfinga sem unnið hafa flest risamót …. eða 7 talsins.  Og Karrie hefir unnið öll risamótin nema Evían risamótið, en spilað var í fyrsta sinn í Evían mótinu sem risamóti nú í sumar…. og þar varð Karrie T-15. E.t.v. er lítil umfjöllun um Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2013 | 20:30

Ko gerir IMG að umboðsskrifstofu sinni

Unga 16 ára nýsjálenska táningsundrið í golfi, Lydia Ko sem sigrað hefir í 4 atvinnumannamótum á stuttum ferli sínum (2 sinnum á Canadian Open , árið 2012 á Women’s New South Wales Open og 2013 á ISPA Handa Women’s New Zealand Open) er gengin til liðs við IMG umboðsskrifstofuna. Margir af fremstu kylfingum heims nota IMG sem umboðsaðila sína, kylfingar á borð við  Jason Dufner, Ernie Els, fyrrum nr. 1 á heimslistanum Yani Tseng, Paula Creamer og  Michelle Wie. Jafnvel Tiger var hjá IMG áður leiðir hans og Mark Steinberg annars vegar og skrifstofunnar hins vegar skyldu. „IMG var augljós kostur til þess að vera umboðsaðili minn,“ sagði Ko sem ólst upp í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2013 | 18:30

Spieth hlýtur lykla að Dallas

Nýllðinn Jordan Spieth, 20 ára, sem búinn er að eiga ótrúlegt ár á PGA mótaröðinni nú í ár hlaut nú nýverið séstakan heiður frá heimaríki sínu Texas. Spieth sem m.a. var í Forsetabikarsliði Bandaríkjanna í ár, hlaut lykil að Dallasborg, en þetta er í fyrsta sinn sem lykillinn að Dallas er afhentur nokkrum. „Ég er mjög stoltur, augljóslega, af því að vera frá Texas…. en það er enn sérstakara að vera fulltrúi Dallas,“ sagði Spieth á fundi borgarstjórnar Dallas. „(Texas) er heimili mitt, það hefir alltaf verið það og mun ávallt vera það.“ Spieth sem í upphafi árs var með engan spilarétt á PGA Tour er búinn að gulltryggja sér Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2013 | 14:30

Golfþjálfari ákærður fyrir kynferðisbrot… klst. áður en útnefna átti hann PGA þjálfara ársins!

Skv. grein í Daily Mail í morgun (sjá með því að SMELLA HÉR:) var topp-golfþjálfarinn Andrew Nesbit í San Francisco handtekinn á golfvellinum þar sem hann kenndi á og ákærður í 65 liðum fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur nemendum sínum. Brotin eiga að hafa átt sér stað yfir 3 ára tímabil og annað fórnarlamba Nesbit á að hafa verið svo ungur sem 12 ára þegar fyrsta brot átti sér stað. Andrew Nisbet er 31, kvæntur og hefir þjálfað golfnemendur í  Las Positas golfklúbbnum í Livermore hjá San Francisco. Hann var handtekinn s.l. laugardag aðeins klukkustundum áður en veita átti honum PGA verðlaun fyrir að vera þjálfari ársins. Ákæran gegn Nisbet, sem Lesa meira