Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 12:00

Hörður Þorsteinsson: „Hvernig fjölgum við kylfingum í klúbbum?“ (3/3)

Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ hélt frábæran fyrirlestur á málþingi sem GSÍ stóð fyrir föstudaginn 22. nóvember 2013.  Hann bar yfirskriftina: „Golfvellir í hvert sveitarfélag.“ Hér fer 3. hluti og niðurlag þess fyrirlestrar Harðar: Hörður setti á nýja glæru: Hvernig fjölgum við kylfingum í klúbbum? Í viðhorfskönnun kemur þetta fram: * Dýrt í golf  – Þetta á klárlega ekki við á Íslandi og allra síst á þetta við á landsbyggðinni, þar sem árgjald er stundum einungis á við hálft árgjald á höfuðborgarsvæðinu  – Hugsanlega annað viðmið um verðlagningu á afþreyingu á landsbyggðinni  – EN MIKILVÆGT AÐ LEIÐRÉTTA ÞENNAN MISSKILNING En þá ætla ég að koma að hlutunum með aðeins öðruvísi hætti. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 11:00

Greg Norman telur að hann gæti hafa sigrað Tiger

Greg Norman telur að ef hann og Tiger gætu hafa keppt jafngamlir þá myndi hann hafa unnið. Í  löngu viðtali á Golf.com, segir Norman að bestu kylfingar allra tíma í golfinu (ens. all time greats) myndu hafa átt í erfiðleikum með hann, þ.á.m. Tiger Woods. Grípum niður í viðtalið: Mikið af fólki spyr hvernig ég myndi hafa staðið mig gegn bestu kylfingum dagsins í dag, ef ég hefði haft sama nútíma golfútbúnað og þeir nota.  Hlustið nú á, þetta snýst ekki um útbúnaðinn. Sigur snýst um það sem ykkur býr í hjarta og líka það sem er í hausnum á ykkur. Útbúnaðurinn segir til um hvernig þið spilið á hverjum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 09:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Simon Wakefield (15/27)

Í dag verður fram haldið að kynna þá 5 stráka, sem deildu  12.-16. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir Patrik Sjöland, Brinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath. Allir léku þeir á samtals 11 undir pari, 417 höggum og hlutu € 3.170 í verðlaunafé.  Nú þegar hafa Sjöland, Paolini og Dantorp verið kynntir en sá sem kynntur verður í dag varð í 13. sæti –  Simon Wakefield. Wakefield var einn af 5 enskum kylfingum, fjölmennasta hópnum sem komust á Evróputúrinn að þessu sinni í gegnum Q-school en hinir voru Adam Gee, Daniel Brooks, James Heath  og James Morrisson. Wakefield spilaði á (69 68 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 07:00

Íslensku PGA golfkennararnir luku leik í 22. sæti í Portúgal

Íslenskir PGA golfkennarar tóku þátt í golfmóti PGA golfkennara (International Teams Championship) sem fram fór á Onyria Palmares Alvor golfvellinum, í Algarve, Portúgal, 10.-13. desember 2013 og lauk þ.a.l. í fyrradag. Íslensku sveitina skipuðu þeir: Hlynur Geir Hjartarson, Ingi Rúnar Gíslason og Sigurpáll Geir Sveinsson. Sveit íslenskra PGA golfkennara varð í 22. sæti af 26 liðum sem þátt tóku.  Á besta skorinu af Íslendingunum var Hlynur Geir á samtals 28 yfir pari, 316 höggum  (82 81 74 79); næstur var Ingi Rúnar á 29 yfir pari, 317 högg (82 79 73 83) og Sigurpáll Geir rak lestina á samtals 54 yfir pari, 342 höggum (90 87 85 80). Samtals lék íslenska sveitin á 54 yfir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 22:45

PGA: Kuchar og English efstir í Flórída eftir 2. dag

Þessa daganna 9.-15. desember 2013 fer fram Franklin Templeton Shootout í Ritz-Carlton golfstaðnum  í Naples, Flórída. Gestgjafi mótsins er hvíti hákarlinn, Greg Norman. Tveggja manna lið 24 nokkurra bestu kylfinga (þ.e. 12 lið) á PGA Tour keppa um $ 3,1 milljón í  móti þar sem m.a. er spilaður besti bolti, betri bolti og scramble. Lið Harris English og Matt Kuchar eru efst á samtals 20 undir pari eftir 2. dag og í 2. sæti er lið Freddie Jacobson og Retief Goosen á samtals 16 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. keppnisdag á Franklin Templeton Shootout SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 22:00

Afmæliskylfingur dagsins: Oliver Horovitz – 14. desember 2013

Það er kylfusveininn í St. Andrews, Oliver Horovitz, sem heimsótti okkur íslenska kylfinga hér og hélt fyrirlestur 26. nóvember s.l. á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, sem er afmæliskylfingur dagsins.  Oliver skrifaði frábæra bók um kylfusveinsstörf sín í vöggu golfíþróttarinnar og mun bókinni verða gerð nánarsi skil hér á Golf 1 síðar.   Oliver fæddist 14. desember 1985 og er því 28 ára í dag.  Hann á tvíburasystur, Hannah og óskar Golf 1 þeim systkinum innilega til hamingju með daginn! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:     Jane Crafter, 14. desember 1955 (58 ára) ….. og ……. Oliver Horovitz  (Happy birthday Ollie!!!) Ragnar Davíð Riordan  (31  árs) Unnur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 16:00

Valdís Þóra á 74 höggum 1. daginn á lokaúrtökumótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, lék 1. hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir LET, eða Evrópumótaröð kvenna  í dag. Það leit ekki vel út eftir fyrstu 9 holurnar en þá var Valdís Þóra á 3 yfir pari, eftir 10. holu var hún jafnvel á 4 yfir pari,  en hún sýndi karakter á síðustu 8 holunum, hélt jöfnu og náði fuglum á 2 síðustu lokaholunum. Niðurstaðan var sú að Valdís Þóra lék á 2 yfir pari, 74 höggum fyrsta hringinn.  Hún deilir sem stendur 50. sæti ásamt 9 öðrum m.a. Bonitu Bredenhann, sem komst í gegnum Q-school í fyrra og var sú fyrsta til þess að spila á Evrópumótaröð kvenna f.h. Namibíu – Sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 15:45

Dawie Van der Walt sigraði á Nelson Mandela Championship

Það var heimamaðurinn Dawie Van der Walt sem sigraði á Nelson Mandela Championship í dag, á golfvelli Mount Edgemount CC í Durban, Kwa-Zulu Natal í Suður-Afríku. Van der Walt spilaði á samtals 15 undir pari, 195 höggum (67 62 66). Hann átti 2 högg á þá 2 sem deildu 2. sætinu: Spánverjann Jorge Campillo, sem átti svo frábæran hring upp á 59 högg í gær og Englendinginn Matthew Baldwin. Colin Nel frá Suður-Afríku, sá sem einnig spilaði á 59 höggum í gær, lauk keppni í 40. sæti ásamt 9 öðrum kylfingum en 12 högga sveifla var milli hrings hans í dag og þess í gær. Í 4. sæti varð Frakkinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 13:45

Erfið byrjun hjá Valdísi Þóru á lokaúrtökumótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL hóf í dag leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna, LET (ens. Ladies European Tour) en mótið fer fram á golfvelli Samanah golfklúbbsins & Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó. Alls taka 95 stúlkur þátt í lokaúrtökumótinu og eru leiknir 4 hringir. Eftir það er skorið niður og spila 60 efstu um 30 sæti á LET á 5. og lokahringnum. Valdís Þóra átti því miður erfiða byrjun; fékk þrefaldan skolla á 1. holu þ.e. var með 7 högg á par-4 1. holuna og fékk síðan skolla á 3. holu.  Valdís því komin í 4 yfir eftir 3 spilaðar holur.  Hún sýndi þó karakter og tók þetta aftur á 4. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2013 | 13:30

Sergio Garcia efstur – Stenson í 2. sæti í Thaílandi eftir 3. dag

Sergio Garcia lauk 3. hring á Thaíland Golf Championship með 2 fuglum og var á 7 undir pari, 65 höggum og er kominn með 4 högga forskot á næstu menn: nr. 1 í Evrópu, Henrik Stenson (65) og Indverjann  Anirban Lahiri (67). „Ég náði nokkrum góðum höggum og fylgdi þeim síðan eftir með 2-3 virkilega góðum púttum og það var gaman að ljúka með fuglum en þetta er mjög erfiður lokakafli,“ sagði Garcia eftir hringinn góða, en hann leiðir sem segir fyrir lokahringinn, sem leikinn verður á morgun. Justin Rose, sem leiddi með Garcia í hálfleik náði aðeins að leika á 70 höggum og er 5 höggum á eftir Garcia nú í Lesa meira