Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 11:00

Áskorun Birgis Leifs vekur heimsathygli

Á síðasta ári voru golfdagar haldnir í fyrsta skipti í Kringlunni. Kringlan vildi vekja athygli á golfdögum og fara óhefðbundna leið til þess að nálgast markhópinn. Kringlan hafði samband við fyrirtækið Silent og fengu auk þess einn besta kylfing landsins, Birgi Leif Hafþórsson, með í lið. Kylfingurinn fékk óvenjulega og mjög krefjandi áskorun, frá þaki á  Húsi verslunarinnar, sem er 13 hæðir,  þurfti hann  að slá golfbolta  og hitta inn um inngang Kringlunnar hinum megin við götuna og tugum metrum neðar. Birgir Leifur tók áskoruninni og sló heldur betur í gegn. Myndbandið fór sem eldur í sinu um netheima og enska útgáfan rataði inn á mjög vinsæla síðu sem nefnist Adsoftheworld.com Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 10:30

ALPG&LET: Bae og Tate leiða eftir 1. dag í Nýja-Sjálandi – Ko í 3. sæti

Það eru Seonwoo Bae frá Suður-Kóreu og Stacey Tate frá Nýja-Sjálandi, sem leiða eftir 1. dag ISPS Handa New Zealand Open. Báðar lék þær á 4 undir pari, 68 höggum.  Já það er nýsjálensk stúlka á toppnum í mótinu, en ekki sú sem allir héldu að myndi verma það sæti. Hér er auðvitað átt við nr. 4 á Rolex-heimslistanum, Lydíu Ko en hún er ein af fimm kylfingum, sem allar eru höggi á eftir forystukonunum, þ.e. léku á 69 höggum deila 3. sætinu. Hinar (fyrir utan Ko) eru  Hyeji Lee; Charley Hull;  Sarah-Jane Smith og Alexandra Vilatte.  Ko byrjaði illa og hún sagði eftir á að hún hafi haldið að þetta yrði ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 09:00

PGA: Watson og Yang efstir e. 1. dag í Phoenix

Það eru Y.E Yang og Bubba Watson, sem leiða eftir 1. dag á Waste Management Open, sem hófst á TPC Scottsdale golfvellinum í Phoenix, Arizona í gær. Báðir léku þeir Yang og Watson á 7 undir pari, 64 höggum. Fast á hæla þeirra í 3. sæti eru 7 kylfingar, aðeins 1 höggi á eftir þ.e. á 65 höggum. Þetta eru þeir Pat Perez, Kevin Stadler, William McGirt, Greg Chalmers, Matt Jones, Chris Kirk og Harris English. Lee Westwood, sem að sögn var kominn í frábært spilaform, er í 18. sæti en hann lék á 4 undir pari, 67 höggum Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Waste Management Open Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þorsteinn Svanur Ólafsson – 30. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Þorsteinn Svanur Ólafsson.  Þorsteinn er  fæddur 30. janúar 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Þorsteinn er með 19 í forgjöf og í Golfklúbbi Álftaness (GÁ). Hann tekur stundum þátt í opnum mótum og var m.a. með í Marsmóti GSG 2013. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jack Newton (Ástralinn sem lenti í flugvélahreyfilsslysinu) 30. janúar 1950 (64 ára);  Curtis Strange, 30. janúar 1955 (59 ára);  Payne Stewart, 30. janúar 1957  (57 ára);  Prayad Markasaeng, 30. janúar 1966 (48 ára);  Digvijay Singh, 30. janúar 1972 (42 ára);  Jill McGill, 30. janúar 1972 (42 árs);  Brynjar Steinn Jónsson, GSG, 30. janúar 1976 (38 ára); Marcela Leon, 30. janúar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 16:45

Evróputúrinn: Hápunktar 1. dags Omega Dubai Desert Classic – Myndskeið

Hér að neðan má sjá hápunkta 1. dags Omega Dubai Desert Classic SMELLIÐ HÉR:  Aðaláherslan er á Rory McIlroy, sem er efstur eftir 1. dag á 63 höggum og nr. 1 á heimslistanum Tiger Woods. Golf Channel er með skemmtilegt myndskeið þar sem fylgst er með köppunum og sagt í fyrirsögn að Rory hafi verið með sýningu fyrir Tiger. Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 16:30

Stenson hreinsaður af golfreglubrotarásökun Björn

Nýtt mót og ný meint reglubrot. Tilvikið sem hér um ræðir var aðhögg Henrik Stenson á par-4 14. holunni, sem fór í vatnshindrun. Eftir að hafa ráðfært sig við dómara ákvað Stenson að droppa boltanum 40 yarda fyrir aftan, en hélt þó alltaf línunni þar sem boltinn fór í hindrunina milli sín og holunnar, sbr. reglu 26-1-b. Thomas Björn, sem var í ráshóp með Stenson dró í efa að dropp Stenson væri í samræmi við golfreglur og hafði orð á því við dómara en sagði ekkert við Stenson. „Ég átti ekki mikið högg á bakvið trén þannig að ég fór aðeins aftar og átti yndislegt högg með 6-járninu,“ sagði Stenson, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 15:30

Golfútbúnaður: Callaway Optimise X2 Hot and X2 Hot+ golfboltar

Callaway er að setja á markað nýja golfbolta á morgun. Þeir nýju byggja á vinsældum  X Hot og nýju  X2 Hot trjá, blendinga og járna-línunnar og bæta við hana. Þetta eru golfboltar sem eru ólíkir 4 og 5 laga Speed Regime golfboltunum. X2 Hot boltarnir eru hannaðir til þess að fara sem lengst og ná sem mestum spinn aðskilnaði fyrir leikmenn sem eru með „miðlungs“ sveifluhraða þ.e. undir 90 mílum/klst. Fyrir þá leikmenn sem eru með 90 mílu/klst sveifluhraða eða þar fyrir ofan þá kemur Callaway með X2 Hot + golfboltana. Báðir boltar eru með „mýkstu lagar hönnun“ Callaway til þessa, þannig að tilfinningin þegar boltinn er sleginn verði mjúk Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 15:00

Lee Westwood sér framfarir í leik sínum

Lee Westwood er ekki einn af þeim kylfingum sem er í Dubai.  Hann hóf keppnistímabilið á Farmers Insurance Open þar sem hann varð T-47 og mun hefja leik í kvöld á Waste Mangement Open í Phoenix. Westwood ætlar að sleppa Miðausturlandasveiflu Evróputúrsins og einbeita sér að mótum á PGA Tour. Hann hefir verið að vinna í golfinu sínu ásamt Sean Foley og finnst hann loks sjá árangur erfiðisins og hlakkar til að keppa í Phoenix. Sérstaklega hafa orðið framfarir í púttunum hjá honum og verður því spennandi að fylgjast með honum á Waste Management! Til þess að sjá viðtal Sky Sports við Westy SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 12:00

Evróputúrinn: Rory efstur á 63 höggum eftir 1. hring í Dubaí – Tiger á 68 höggum

Rory McIlroy er efstur eftir 1. hring á Omega Dubai Desert Classic mótinu. Hann lék á 9 undir pari, 63 höggum. Hann er efstur sem stendur og Edoardo Molinari og Matthew Baldwin þeir einu sem ógna honum í efsta sætinu, en nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka leik. Á hringnum fékk Rory örn á par-5 3. holu Emirates golfvallarins og síðan 7 fugla. Stephen Gallacher sem var í ráshóp með Rory og á titil að verja var á 66 höggum og er sem stendur í 3. sæti og Tiger var miklu betri en á Torrey Pines, lék á 68 höggum og er í 8. sæti. Hér má fylgjast með gangi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2014 | 07:30

PGA: Takið þátt í að velja kylfing mánaðarins

Það sem af er árs hafa 4 kylfingar sigrað á mótum PGA Tour:  Zach Johnson hóf árið á því að sigra í Tournament of Champions, Jimmy Walker vann 2. sigur sinn á PGA Tour þegar hann vann Sony Open í Hawaii. Patrick Reed vann Humana Challenge eftirminnilega og nú síðast var það Scott Stallings sem sigraði á Farmers Insurance Open, móti sem verður e.t.v. mest í minni haft fyrir þær sakir að Tiger Woods var á 2. versta skori sínu á ferlinum í mótinu. Nú stendur PGA Tour í því að velja kylfing janúarmánaðar 2014. Þið getið tekið þátt og valið meðal ofangreindra 4 kylfinga með því að SMELLA HÉR: