Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Stephen Gallacher?

Stephen Gallacher leiðir fyrir lokahring Omega Dubai Desert Classic 2014, þar sem hann á titil að verja.  Hann átti frábæran hring upp á 63 högg í dag, þar sem hann lék seinni 9 á Emirates golfvellinum á 9 undir pari, 28 höggum, sem þýðir að meðaltali fugl á hverja holu á seinni 9 þar sem parið er 37! Á fyrri hring var Gallacher á sléttu pari fékk fugl og skolla. Spurning hvort honum takist að verja titil sinn og standa uppi sem sigurvegari á Dubai Desert Classic á morgun?  En hver er kylfingurinn? Stephen James Gallacher fæddist 1. nóvember 1974 í Dechmont, Vestur-Lothian í Skotlandi. Hann er því 39 ára.  Stephen Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 14:45

Golfútbúnaður: Nevr Looz golfpokar

Eftir  golfvörusýningarnar sem haldnar eru árlega í Orlando, Flórída, fyllast golffréttamiðlar af „bestu listum“ sem hinir og þessir sjálfskipaðir snillingar velja og birta síðan kylfingum. Í ár fór PGA golfvörusýningin fram dagana 22.-24. janúar 2014. Hún er haldin í ráðstefnu- og sýningarhöll Orange County og þarf að ganga 16 km til þess að komast yfir allt sem er á sýningunni. Þarna eru þúsundir af golfvörum allt frá tíum upp í hugmyndir af golfvöllum og í öllu þessu velja golffréttamenn 10 bestu munina, sem vöktu athygli þeirra. Einn miðillinn sem setur saman einn slíkan lista um 10 bestu golfvörurnar af PGA golfvörusýningunni í Orlando er Yahoo og hafa þeir búið til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 14:30

Evróputúrinn: Gallacher leiðir fyrir lokahringinn í Dubaí

Það er sá sem á titil að velja,  Stephen Gallacher, sem leiðir eftir 3. dag á Omega Dubaí Desert Classic. Gallacher átti glæsilegan 3. hring þar sem hann lék Emirates golfvöllinn á 9 undir pari, 63 höggum. Það var til þess að nú er Gallacher á 16 undir pari, 200 höggum (66 70 63) og í 1. sæti fyrir lokahringnn!!! Í 2. sæti er Rory McIlory 2 höggum á eftir á 14 undir pari, 202 höggum (63 70 64). Enn öðrum tveimur höggum á eftir í 3. sæti eru danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen og Bandaríkjamaðurinn Brooks Koepka, báðir á samtals 12 undir pari. Nr. 1 á heimslistanum, Tiger deilir 37. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 12:00

ALPG&LET: Anya Alvarez leiðir í Nýja-Sjálandi e. 2. dag – Ko í 2. sæti

Það er bandarísk stúlka, Anya Alvarez, sem leiðir eftir 2. dag á ISPS Handa New Zealand Women´s Open. Alvarez ásamt Hyun Soo Kim frá Suður-Kóreu átti besta skorið á 2. degi mótsins 6 undir pari, 66 högg. Samtals er Alvarez búin að spila á 8 undir pari, 136 höggum (70 66). „Heimakonan“ Lydía Ko, sem allir héldu að myndi fara auðveldlega með að vera í toppsætinu er í 2. sæti annan daginn í röð! Ko er búin að spila báða dagana á 69 höggum og er því samtals á 6 undir pari, 138 höggum (69 69).  Ástæða þess að undrabarninu okkar 16 ára, sem nú er orðin atvinnumaður gengur ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 11:45

PGA: Jones og Watson leiða eftir 2. dag Waste Management Open

Það er Bubba Watson sem heldur forystu sinni á Waste Management Open, á TPC Scottsdale golfvellinum í Phoenix, Arizona, ásamt bandaríska kylfingnum Matt Jones. Báðir eru samtals búnir að spila á 12 yfir pari, 130 höggum; Bubba (64 66) og Matt Jones (65 65). Þriðja sætinu deila Ástralinn Greg Chalmers og Harris English, báðir 2 höggum á eftir á samtals 10 undir pari, hvor. Phil Mickelson er á samtals 4 undir pari, 8 höggum á eftir forystumönnunum og er sem stendur í 27. sæti sem hann deilir ásamt  10 öðrum kylfingum. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru Pádraig Harrington og Lee Westwood, en sá síðarnefndi átti sérlega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Páll Heiðar ———- 31. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Páll Heiðar. Páll Heiðar á afmæli 31. janúar 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:   Páll Heiðar (50 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Michael Louis Allen, 31. janúar 1959 (55 ára);  Justin Timberlake, 31. janúar 1981 (33 ára); Tina Miller 31. janúar 1983 (31 árs) ….. og ….. Sigurður Ingvi Rögnvaldsson   (21 árs) Heiðar Jóhannsson (59 ára)   Ásgrímur Jóhannesson (25 ára) Magnús Árni Skúlason Golf 1 óskar afmæliskylfingunum sem og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga í dag, innilega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 15:00

GÞ: Ásta Júlía heiðruð – Guðmundur áfram formaður

Á aðalfundi Golfklúbbs Þorlákshafnar var ákveðið að lækka árgjaldið í 46.000 kr., og þar að nær skilgreining á nýliða í klúbbnum yfir tveggja ára tímabil. Nýliðagjaldið verður 21.000 kr. á fyrsta árinu og 25.000 kr. á síðara árinu eða sem nemur einu ársgjaldi á tveimur árum. Heildarfélagafjöldi í GÞ er 331 þar af eru 240 í Landsbankadeild klúbbsins. Rekstur GÞ er með ágætum og var tap ársins eftir fjármagnsliði 14.000 kr., en heildarskuldir klúbbsins eru 18,6 milljónir kr. Rekstrartekjur ársins voru 25,5 milljónir kr. og var hagnaður fyrir fjármagnsliði 1.229 þúsund kr. Í tilkynningu frá GÞ kemur fram að lækkun gjalda sé hluti af markaðsstarfi klúbbsins og ætti að höfða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 13:45

Evróputúrinn: Rory enn efstur í hálfleik Dubaí Desert Classic

Rory þurfti ekkert sérstakan hring á 2. degi Omega Dubai Desert Classic til þess að vera betri en Tiger Woods, sem var með honum í ráshóp fyrstu 2 dagana. Rory skilaði sér í hús á hring upp á 2 undir pari, 70 höggum og er því samtals á 11 undir pari og á toppnum, meðan að aumingja Tiger strögglaði frá teig að flöt og var á 1 yfir pari 73 höggum í dag. Einn í 2. sæti er Bruce Koepka, sem átti hreint frábæran hring upp á 7 undir pari, 65 högg. Nokkrir þekktir komust ekki í gegnum niðurskurð þ.á.m. Ernie Els, Miguel Angel Jimenez og kannski eins og viðbúið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 13:00

Golfbíll eða geimskip?

Heimamaðurinn Pat Perez er einn af þeim sem leiðir á Waste Management Open, sem hófst í gær í Phoenix, Arizona. En Pat vakti e.t.v. enn meiri athygli fyrir golfbílinn sinn en góðan árangur, en Pat deilir 3. sætinu með 6 öðrum kylfingum á eftir þeim YE Yang og Bubba Watson, sem leiða eftir 1. dag. „Þessi bíll er góður“ sagði Pat m.a. um golfbílinn sinn. „Þetta er Toyota Scion iQ. Ef þið sæjuð einn keyra eftir götunni heima hjá ykkur mynduð þið hlæja.“ Billinn er svartur og með appelsínugulum merkingum frá Arizona State og Callaway og hefir verið helsti fararkostur Perez milli heimilis síns og golfvallarins, alla s.l. viku. „Þetta er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2014 | 12:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Fiona Puyo (13/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 19. sætinu (voru jafnar í 19.-22. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals slétt par, 360 högg:     Fiona Puyo, Krista Bakker, Julie Tvede  og Elina Lesa meira