Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 18:30
Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Erlingur Snær Loftsson. Erlingur Snær fæddist 29. janúar 1991 og á því 23 ára afmæli í dag!!! Erlingur er í Golfklúbbinum á Hellu (GHR) og er með 6,6 í forgjöf. Erlingur Snær útskrifaðist nú nýverið sem leiðbeinandi í SNAG golfi. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jack Burk Jr., 29. janúar 1923 (91 árs); Donna Caponi, 29. janúar 1945 (69 ára); Oprah Winfrey, 29. janúar 1954 (60 ára stórafmæli!!!) ; Yoshitaka Yamamoto, 29. janúar 1951 (63 ára) ….. og ….. Habbanía Hannyrðakona (54 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 18:00
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Krista Bakker (12/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 19. sætinu (voru jafnar í 19.-22. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals slétt par, 360 högg: Fiona Puvo, Krista Bakker, Julie Tvede og Elina Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 17:30
Rory við opnun fyrstu Nike golfvöruverslunarinnar í Dubai

Allar helstu stjörnur í golfheiminum eru nú komnar til Dubai, en þar hefst á morgun Omega Dubai Desert Classic. Nr. 1 (Tiger) og nr. 7 (Rory McIlroy) á heimslistanum verða m.a. í ráshóp á morgun ásamt nr. 67, Stephen Gallacher, sem á titil að verja í mótinu. Það er ýmislegt sem stjörnurnar dunda sér við fram að móti – Els klúbburinn er t.a.m. mjög vinsæll, bæði til æfinga og afslöppunar. Sumir eru þó í hörkuvinnu eins og t.a.m. Martin Kaymer, sem er við upptöku á auglýsingamyndbandi fyrir Etihad flugfélagið. Rory var t.a.m. í gær við opnun fyrstu Nike golfvöruverslunarinnar í Dubai. Á heimasíðu sinni sagði hann m.a. að það hefði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 17:00
Golfkennsla: Hvernig verða chippin stöðugri?

Lorien Scott er ástralskur golfkennari á Bonnie Doon golfvellinum í Ástralíu. Hann sýnir okkur góða æfingu í meðfylgjandi myndskeiði um hvernig hægt er að chippa stöðugra SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá fleiri góðar leiðbeiningar sjá vefsíðu Scott með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 16:00
10 bestu golfvörurnar á PGA golfvörusýningunni í Orlando

Þann 22.- 24. janúar 2014 fór fram í Orange County Convention Center í Orlando hin árlega PGA golfvörusýning. „DEMO-dagurinn“ vinsæli var haldinn 21. janúar 2014, en þá fá sýningargestir að prófa allar nýjustu kylfurnar sem koma á markað. South Florida Golf Magazine valdi 10 bestu golfvörurnar á sýningunni í ár. Þær eru eftirfarandi: Nr. 1 er Exotics CB Limited Edition brautartréð, sem er með minna kylfuhöfuð en CB2. „Slip stream“ sólinn sér til þess að kylfan fer í gegnum kargann eins og heitur hnífur í gegnum smjör. Chris Kirk var með kylfuna í pokanum þegar hann vann McGladrey Classic 2013. Nr. 2 Edel golf fleygjárn. Edel fleygjárnin koma með mismunandi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 15:00
Ekki gefast upp!

Hér kemur sannleikurinn um golf. Hvert mót, já eiginlega í hverjum golfhring eru falin ný tækifæri. Þetta hljómar svolítið klisjulegt, en Scott Stallings er sönnun þessarar staðgreyndar. Fyrir Farmers Insurance Open hafði Stallings aðeins komist 2 sinnum í gegnum niðurskurð í síðustu 5 mótum sem hann tók þátt í og af þeim 2 mótum sem hann spilaði um helgina var besti árangur hans T-47. Lexían sem læra má af þessu er að þú gætir verið nær árangri í golfinu en þú heldur! Oft er það bara jafn einfaldur hlutur og að breyta boltastöðu, stöðu, uppstillingu, gripið, tempó eða tímasetningu, sem laga má á auðveldan hátt til þess að koma hlutum í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2014 | 13:30
Olazábal táraðist þegar hann faðmaði Ballesteros að sér á 1. teig í Dubaí

Skipuleggjendur Dubai Desert Classic, sem hefst á morgun fögnuðu 25. ára afmæli mótsins m.a. með því að halda mót meistaranna þ.e. þeirra sem sigrað hafa s.l. 25 ár og héldu m.a. minningu eins sigurvegarans, Seve Ballesteros, sem lést 7. maí 2011, á lofti með því að bjóða 23 ára syni hans, Javier, að taka þátt í mótinu í stað föður síns, sem sigraði í Dubai 1992. Javier Ballesteros var í ráshóp með löndum sínum þeim Jose Maria Olazábal og Miguel Angel Jiménez. Það var víst engin tilviljun en Seve og Olazábal voru bestu vinir og kepptu m.a. saman f.h. Evrópu í 4 Ryder bikarkeppnum í röð á árunum 1987 og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2014 | 19:00
Afmæliskylfingur dagsins: Hafdís Ævarsdóttir – 28. janúar 2014

Það er Hafdís Ævarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hafdís er í Golfklúbbi Suðurnesja (GS) og í stjórn klúbbsins og sat m.a. Golfþing Íslands í nóvember s.l. f.h. GS. Hafdís er oft ofarlega í opnum mótum sem haldin eru. Eins var Hafdís m.a. í sigursveit GS, í sveitakeppni GSÍ, sem haldin var á Flúðum 2012 og kom GS í 1. deild. Þá var Hafdís í sveit GS sem náði 6. sætinu 2013, þannig að sveit GS leikur áfram í 1. deild nú í ár! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hafdísi til hamingju með afmælið hér að neðan Hafdís Ævarsdóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2014 | 18:30
Tiger og Rory saman í ráshóp í Dubai

Tiger Woods og Rory McIlroy munu spila saman fyrstu 2 hringina á Omega Dubai Desert Classic í þessari viku. Með þeim í ráshóp verður Stephen Gallacher, sem sigraði 2013 og á titil að verja. Rory snýr aftur á völlinn, þar sem hann vann fyrsta sigur sinn sem atvinnumaður fyrir 5 árum og Tiger spilar í mótinu í 2. sinn á 4 árum ( hann varð T-20 árið 2011). Þetta er aðalráshópurinn, sem flestir áhorfendur munu fylgjast með hvort heldur er í Dubaí eða fyrir framan sjónvarpstækin víðsvegar um heim. Eftirfarandi eru áhugaverðar raðanir í ráshópa: Peter Uihlein, Branden Grace, and Richard Sterne (10:55 PM) — Sterkur ráshópur með tveimur sterkum ungum kylfingum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2014 | 13:45
GKG: Sigurður Arnar bestur á 2. púttmóti unglinga

Púttmót nr. 2 af 9 lauk s.l. laugardag í Kórnum, og tóku 44 krakkar þátt að þessu sinni. Hér fyrir neðan má sjá besta árangur í hverjum flokki sem náðist, en til að sjá úrslit allra keppenda SMELLIÐ HÉR: Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og minnum á næsta mót sem fer fram laugardaginn 8. febrúar í Kórnum. Hægt er að pútta milli 11-13 og er þátttaka ókeypis. 12 ára og yngri stelpur 25.jan Hulda Clara Gestsdóttir 26 12 ára og yngri strákar 25.jan Sigurður Arnar Garðarsson 25 13 – 15 ára stúlkur 25.jan Alma Rún Ragnarsdóttir 29 Áslaug Sól Sigurðardóttir 31 13 – 15 ára strákar 25.jan Bragi Aðalsteinsson 26 Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

