Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 21:00
Afmæliskylfingur dagsins: Gísli Þór Þórðarson – 2. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Gísli Þór Þórðarson. Gísli Þór er fæddur 2. febrúar 1993 og á hann því 21 árs afmæli í dag! Gísli Þór er í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) og tók með góðum árangri þátt á Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar. Gísli Þór er með 2,3 í forgjöf. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið: Gísli Þór Þórðarson (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Arron Matthew Oberholser, 2. febrúar 1975 (39 ára), Virginie Lagoutte-Clement, f. 2. febrúar 1979 (35 ára) og… Þorgeir Pálsson F. 2. febrúar 1968 (46 ára) Jenny Sigurðardóttir (53 ára) Gallerí Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 20:00
Golfgrín á sunnudegi

Tveir golfvinir spila saman á braut einni, á skógarjaðri. Allt í einu birtist skógarbjörn og annar golfarinn flýr upp í tré og felur sig. Hinn sá engan möguleika á að komast undan, en lagði sig á jörðina og þóttist vera steindauður. Skógarbjörninn þefaði af honum en þar sem hann hafði ekki lyst á „líkinu“ þrammaði hann þunglamalega í burtu. Sá sem var upp í trénu kom niður og spurði vin sinn: „Hverju hvíslaði bjössi að þér?“ Kylfingurin, sem spurður var svaraði: „Hann sagði mér að ég ætti að slíta vináttuni við þá „vini“, sem hlaupa frá manni þegar maður er í hættu.“
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 18:30
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Cathrine Bristow (14/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 15. sætinu (voru jafnar í 15.-18. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 undir pari, 359 högg: Anais Magetti; Marina Salinas; Isabelle Boineau Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 17:30
Evróputúrinn: Gallacher varði titilinn með stæl!!

Skotinn Stephen Gallacher sigraði á Omega Dubai Desert Classic í dag. Hann lék á samtals 16 undir pari, 202 höggum (66 71 63 72). Þetta er 3. sigur Gallacher er Evróputúrnum en sjá má kynningu Golf 1 á Gallacher með því að SMELLA HÉR: Fyrir sigurinn hlaut Gallacher € 303,268 (sem er u.þ.b. 50 milljónir íslenskar krónur). Í 2. sæti varð Argentínumaðurinn Emiliano Grillo, en hann var aðeins 1 höggi á eftir Gallacher þ.e. á samtals 15 undir pari. Bandaríkjamaðurinn Bruce Koepka og Frakkinn Romain Wattel deildu 3. sætinu á samtals 14 undir pari, hvor og fjórir kylfingar deildu 5. sæti: Thorbjörn Olesen; Robert Rock; Steve Webster og Mikko Ilonen, en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 10:30
Tiger og O´Meara í skugganum á 6 ára golfgutta í Dubaí – Myndskeið

Tiger Woods veit eitt og annað um það að vera undrabarn í golfi. Eftir allt þá byrjaði hann jú 2 ára í golfi og var aðeins 21 árs þegar hann vann the Masters risamótið 1997. Eftir hræðilega viku sína á Farmers Insurance Open þá er hann búin að vera í Dubai s.l. viku, þar sem hann hefir verið að keppa á Omega Dubai Desert Classic og hefir gengið mun betur þar, en er langt frá því að vera í toppformi sínu. Milli hringja hitti Woods Mark O’Meara en þeir voru með golfkennslu á æfingasvæði Emirates golfklúbbnum og komu margir til að fylgjast með. Fljótt féllu stórstjörnurnar í skuggann á 6 ára golfgutta. Tiger Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 06:15
LPGA: Mi Hyang Lee sigraði á ISPS Handa mótinu – Ko varð í 2. sæti

Það var Mi Hyang Lee frá Suður-Kóreu, sem sigraði á ISPS Handa New Zealand´s Women´s Open. Lee lék á samtals 9 undir pari, 207 höggum (72 72 63). Það var glæsilokahringur Lee upp á 9 undir pari, 63 högg (1 örn og 7 fuglar), sem innsiglaði sigurinn. Lee hóf lokahringinn 8 höggum á eftir forystukonunni Anyu Alvarez frá Bandaríkjunum, sem deildi 3. sæti ásamt þeim Seonwoo Bae og Beth Allen, en Alvarez átti slæman lokahring upp á 1 yfir pari, 73 höggum. Í 2. sæti varð Lydia Ko, á 8 undir pari, 208 höggum (69 69 70). Ko átti langt fuglapútt á 18. eftir til að knýja fram bráðabana, en það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 23:30
PGA: Bubba Watson einn í forystu fyrir lokahringinn í Phoenix

Það er Bubba Watson sem er einn í forystu eftir 3. dag Waste Management Open á TPC Scottsdale í Phoenix, Arizona. Bubba er búinn að spila á samtals 15 undir pari, 198 höggum (64 66 68). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir er Kevin Stadler á samtals 13 undir pari, 200 höggum (65 68 67). Í 3. sæti eru síðan 3 kylfingar: Hideki Matsuyama, Ryan Moore og Harris English allir á samtals 12 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna á Waste Management Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Waste Management Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 23:00
Golfbolti á krókódílshaus

Við höfum öll heyrt um skolla, fugla, og arnarhögg á golfvelli. En „krókódílinn“? Golfreglur segja svo fyrir að leika skuli boltanum þar sem hann liggur, en hvað ef hann lendir ofan á haus krókódíls? Það gerist auðvitað ekki hér á landi heldur í Flórída, þar sem kylfingar eru meira og minna alltaf að spila golf í námunda við þetta græna skriðdýr. En golfbolti lenti einmitt á krókódílshaus í Englewood, Sarasota í Flórida. Hér er um að ræða alveg nýja hindrun á golfvellinum, en króksi með golfboltann á hausnum náðist á myndskeið af hópi kylfinga sem var við golfleik á Myakka Pines golfvellinum í Englewood. Reyndar var myndin tekin af David Pucin, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 20:30
Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR. Hildur Kristín fæddist 1. febrúar 1992 og á því 22 ára afmæli í dag. Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR. Mynd: Golf 1 Hildur Kristín byrjaði að spila golf 15 ára og er því aðeins búin að spila golf í 5 ár. Engu að síður er hún komin með 6,2 í forgjöf og spilaði m.a. á Eimskipsmótaröðinni sumarið 2011 og 2012. Hildur varð m.a. í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni; hún sigraði 1. flokk á meistaramóti GR, 2009 og sigraði bæði sveitakeppni 1. deildar kvenna kvenna og stúkna 18 ára og yngri 2010. Eins var hún í sveit GR kvenna, sem urðu Íslandsmeistarar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2014 | 20:15
Golfgrín á laugardegi

Linford Christie (Ólympíugullverðlaunahafi í 100 metra hlaupi) kemur upp á hliðum Augusta National og vill fá að spila einn hring, en maðurinn við hliðið vill ekki hleypa honum inn. Maður segir: „Því miður herra minn, þú mátt ekki spila Augusta National en það er annar golfvöllur í aðeins 10 mínútna fjarlægð,“ sagði vörðurinn. Linford svarar: „Veistu ekki hver ég er? Ég er einn sá hraðasti að hlaupa 100 metra í heiminum. Breytir það málum ekki aðeins? spyr hann. „Jú herra minn,“ svarar vörðurinn. „Það mun þá aðeins taka ÞIG 2 mínútur að komast á næsta golfvöll!!!“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

