Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 14:25

Evróputúrinn: George Coetzee sigraði á Joburg Open

Það var heimamaðurinn George Coetzee, sem sigraði á Joburg Open. Hann lék á samtals 19 undir pari, 268 höggum (65 68 69 66).  Þetta er fyrsti sigur Coetzee á Evróputúrnum enn hann hefir sigrað 4 sinnum áður á Sólskinstúrnum og 5 sinnum alls sem atvinnumaður. Coetzee er fæddur 18. júlí 1986 og er því 27 ára. Þrír kylfingar deildu 2. sætinu heilum 3 höggum á eftir Coetzee: Englendingurinn Tyrrell Hatton, Jin Jeong frá Suður-Kóreu og heimamaðurinn Justin Walters. Heimamaðurinn Thomas Aiken, sem leiddi fyrir lokahringinn rann niður skortöfluna í 5. sæti, sem hann deildi með 3 öðrum kylfingum,  eftir vonbrigðalokahring upp á 74 högg. Skotinn og „nýliðinn“ á Evróputúrnum Alastair Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 13:40

Champions Tour: Allen enn í forystu á Allianz

Michael Allen er enn í forystu á 2. degi Allianz Championship á Boca Raton í Flórída. Hann er samtals búinn að spila á 15 undir pari 129 höggum (60 69). Fast á hæla honum aðeins 1 höggi á eftir eru þeir Scott Dunlap og Chien Soon Lu, báðir sem sagt á samtals 14 undir pari, hvor. Enn öðru höggi á eftir í 4. sæti er Duffy Waldorf og síðan deila þeir Jay Haas og Tom Lehman 5. sæti enn öðru höggi á eftir. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Allianz Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Allianz Championship SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 13:30

GMac með högg 3. dags á Pebble Beach

GMac (Graeme McDowell) frá Norður-Írlandi hefir ekkert gengið neitt sérstaklega vel á AT&T National Pebble Beach Pro-Am, það sem af er keppni. Hann er sem stendur í 39. sæti ásamt 13 öðrum kylfingum, samtals á 1 undir pari, 214 höggum (71 71 72) og eiginlega í næstneðsta sæti af þeim sem komust í gegnum niðurskurð. Það dugar einfaldlega ekki til sigurs lengur á PGA að vera með 3 hringi rétt yfir 70.  Sá sem er í efsta sæti Jimmy Walker er þannig búinn að spila alla 3 hringina undir 70 þ.e. á samtals 202 höggum 66 69 og 67 og er GMac heilum 12 höggum á eftir og þykir ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 13:00

Um sigur Cheyenne Woods

Cheyenne Woods , vinkona og fyrrum liðsfélagi Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, í Wake Forest vann fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröðinni fyrr í dag, þegar hún átti 2 högg á Minjee Lee í efsta sæti á Volvik RACV Ladies Masters í Queensland, Ástralíu. Fyrir sigurinn fær Cheyenne ekki aðeins $ 57.000,- (þ.e. rúmar 6 milljónir íslenskra króna) heldur fær hún 2 ára undanþágu á LET þ.e. Evrópumótaröð kvenna. Cheyenne virtist vera með kökk í hálsinum þegar hún hélt sigurræðuna en hún sagði m.a.: „Það hefir verið frábært að spila á Evrópumótaröðinni þetta s.l. ár. Ég hef séð til allra þessara frábæru leikmanna og spilað við liðsmenn Evrópu í Solheim Cup …. að geta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 10:30

PGA: Walker efstur fyrir lokahringinn á Pebble Beach

Jimmy Walker er efstur fyrir lokahringinn á AT&T Natioanal Pebble Beach Pro-Am. Hann er búinn að spila á samtals 13 undir pari, 202 höggum (66 69 67) og hefir 6 högga forskot á þá Hunter Mahan og Tim Wilkinson, sem næstir koma. Allir spiluðu þeir Monterey Peninsula í gær. Einn í 4. sæti er síðan Richard E. Lee á samtals 6 undir pari og síðan koma 6 kylfingar í 5. sæti allir á samtals 5 undir pari, þ.e. 8 höggum á eftir Jimmy Walker.  Meðal þeirra sem deilir 5. sætinu er Phil Mickelson. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag AT&T Natioanal Pebble Beach Pro-Am SMELLIÐ HÉR:  Til þess að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 07:00

ALPG&LET: Woods sigraði!!!

Cheyenne Woods, frænka Tiger Woods, sigraði nú fyrr í dag í fyrsta móti sínu á Evróputmótaröð kvenna, Volvik RACV Ladies Masters mótinu í Ástralíu. Mótið fór fram á RACV Royal Pines Resort golfklúbbnum í Queensland. Mótið telur jafnframt líka sem mót á ALPG þ.e. áströlsku LPGA, en mótið er samstarfsverkefni mótaraðanna. Reyndar er þetta það mót í áströlsku kvennagolfi, sem fram hefir farið hvað lengst. Woods var liðsfélagi Ólafíu okkar Þórunnar Kristinsdóttur í Wake Forest. Cheyenne lék hringina 4 á samtals 16 undir pari, 276 höggum (69 67 71 69) og átti 2 högg á Minjee Lee, sem varð í 2. sæti. Þriðja sætinu deildu Camilla Lennarth frá Svíþjóð (sjá kynningu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2014 | 21:00

Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Golffréttamaður sem jafnframt var mikill aðdáandi Phil Mickelson getur ekki orða bundist og fer svolítið fram úr sér í aðdáun sinni:  „Þú ert frábær,“ segir hann við Phil.  „Þú ert æðislegur; Nafnið þitt er samheiti golfs!!! Svo finnurðu líka leið þína svo vel, á hvaða golfvelli sem er !!! Hvert er eiginlega leyndarmál þitt? Mickelson á að hafa svarað: „Holurnar eru númeraðar!“ Nr. 2 Hér er einn sem verður að segja á ensku: I’m a scratch golfer,“ „Yes, I write down all my good scores and scratch out the bad ones!“ Nr. 3 Golf er eflaust eina íþróttagreinin þar sem andstæðingurinn sem þarf að hafa mestar áhyggjur af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2014 | 19:45

Evróputúrinn: Aiken og Walters leiða fyrir lokahring Joburg Open

Það eru heimamennirnir Thomas Aiken og Justin Walters,  sem leiða fyrir lokahring Joburg Open, sem fram fer í Royal Johannesburg & Kennsington golfklúbbnum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals 17 undir pari, 198 höggum; Aiken (70 65 63) og Walters (64 70 64). Í 3. sæti 2 höggum á eftir forystumönnunum er Jin Jeong og í 4. sæti er Finninn Roope Kakko á samtals 14 undir pari, eða 3 höggum á eftir forystumönnunum Aiken og Walters. Edoardo Molinari sem leiddi eftir gærdaginn átti „slæman“ dag í dag, lék á 72 höggum og er dottinn ofan í 8. sætið á samtals 11 undir pari og er 6 höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2014 | 19:30

Afmæliskylfingur dagsins: Paige McKenzie —– 8. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er bandaríski kylfingurinn Paige MacKenzie.  Paige á afmæli 8. febrúar 1983 og á því 31 árs afmæli í dag. Paige MacKenzie fæddist í Yakima, Washington og byrjaði að spila golf 3 ára gömul. Hún segir foreldra sína og bróður Brock (sem spilar á Nationwide túrnum og var eitt sinn í Walker Cup) hafa haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi.  Meðal áhugamála Paige er að horfa á íþróttir og að lesa. Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun og er með góðan styrktarsamning við Nike. Paige MacKenziePaige útskrifaðist 2001 úr Eisenhower High School þar sem hún var  first-team All-Big-9 selection öll 4 ár sín í menntaskóla. Hún var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2014 | 19:00

Champions Tour: Michael Allen efstur eftir 1. dag Allianz meistaramótsins

Það er Michael Allen sem leiðir eftir 1. dag Allianz Championship, en hann lék á 12 undir pari, 60 höggum. Á glæsihring Allen fékk hann 10 fugla og 1 örn. Scott Dunlap varð í 2. sæti á 9 undir pari, 63 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Allianz Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 1. hrings Allianz Championship SMELLIÐ HÉR: