Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 08:00

GR: Böðvar, Ingvar Andri og Patrekur efstir eftir 4. mótið í púttmótaröð barna og unglinga

Foreldraráð barna og unglinga í GR ritar eftirfarandi: „Það er hart barist á toppnum í mótaröð barna og unglinga til púttmeistara GR nú þegar mótið er hálfnað. Fjölmenni var á Korpunni í gær, þ.e. sunnudagsmorgun,  jafnt kylfingar sem foreldrar sem láta ekki sitt eftir liggja að styðja sitt fólk.  Það er alls ekki of seint að slást í hópinn því fjórir mótadagar eru eftir og telja fjórir bestu hringirnir.    Meðfylgjandi er staðan eftir fjóra hringi.   Sjáumst næsta sunnudag frá 11 – 13    Foreldraráðið.“ Helstu úrslit 16 ára og eldri úrslit   13-15 ára úrslit Úrslit 12 ára og yngri


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Mikið um að vera hjá háskólakrökkunum okkar

Margir íslensku krakkana sem spila í bandaríska háskólagolfinu hefja leik í dag á hinum ýmsu mótum víðsvegar um Bandaríkin. Hrafn Guðlaugsson, GSE  og Sigurður Gunnarsson, GK hefja þannig leik í dag í tveggja daga móti (10.-11. febrúar 2014) Coastal Georgia Invitational á Sea Island í Georgíu. Haraldur Franklín Magnús, GR og Louisiana Lafayette taka þátt í Oak Hills Invitational mótinu, sem fram fer í Oak Hills CC, í San Antonio, Texas. Mótið er tveggja daga (10.-11. febrúar 2014) og þátttakendur eru 84 frá 15 háskólum.  Fylgjast má með gengi Haraldar Franklíns og Louisiana með því að SMELLA HÉR:  Eins er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir við keppni ásamt Wake Forest í Palos Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 05:00

Champions Tour: Allen sigraði á Allianz meistaramótinu

Michael Allen varði titil sinn í gær á Allianz Championship á Boca Raton í Flórída. Hann lék samtals á 18 undir pari 129 höggum (60 69 69), líkt og Duffy Waldorf og því þurfti að koma til bráðabana milli þeirra. 18 holan var spiluð 2var en þá fékk Allen fugl meðan Waldorf tapaði á pari. Í 3. sæti á samtals 17 undir pari, 130 höggum varð Chien Soon Lu og í 4. sæti varð Tom Lehman á samtals 16 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna eftir 2. dag Allianz Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta lokadagsins á Allianz Championship SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 04:30

PGA: Jimmy Walker sigraði á Pebble Beach

Það var Jimmy Walker sem sigraði á AT&T Pebble Beach National Pro-Am golfmótinu sem fram hefir farið á 3 golfvöllum (Pebble Beach, Monterey og Spyglass) undanfarna 4 dag. Þetta er 3. sigur Walker og 2. sigur hans á skömmum tíma – en hann virðist vera að blómstra á þessu ári.  Á þessu ári er Walker sem sagt búinn að sigra í 2 mótum: Sony Open á Hawaii, 12. janúar 2014 og svo nú, 9. febrúar 2014 á Pebble Beach.  Fyrsti sigur Walker á PGA var hins vegar  á Frys.com Open 13. október 2013, í upphafi keppnistímabilsins. Glæsilegt tímabil þetta hjá Walker!!! Walker lék samtals á 11 undir pari, 276 höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 20:00

Viðtalið: Jenetta Bárðardóttir GKB & GR

Viðtalið í kvöld er við kylfing, sem nýlokið hefir leiðbeinendanámskeiði í SNAG-golfi og starfar nú sem slík. Hún hefir spilað golf í 15 ár. Fullt nafn:   Jenetta Bárðardóttir. Klúbbur:   GKB og GR. Hvar og hvenær fæddistu?   Ég fæddist í Ólafsvík, 12. maí 1949. Hvar ertu alin upp?    Í Ólafsvík. Í hvaða starfi/námi ertu?  Ég er húsmóðir og í dag er ég SNAG leiðbeinandi. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?   Maðurinn minn,  Benóný Ólafsson, spilar golf og síðan systkini mín, makar og börn. Hvenær byrjaðir þú í golfi?  Ég byrjaði í golfi fyrir svona 15-16 árum. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?    Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 17:55

Hver er kylfingurinn: George Coetzee?

George Coetzee frá Suður-Afríku sigraði nú í dag á Joburg Open. Þetta er í 1. sinn sem Coetzee sigrar á móti Evrópumótaraðarinnar en í beltinu á hann 4 sigra á Sólskinstúrnum Suður-Afríska og 1 sigur á Gary Player Challenge ásamt öðrum eða alls 6 sigra sem atvinnumaður nú í dag! En hver er kylfingurinn George Coetzee? George William Coetzee fæddist 18. júlí 1986 í Pretoríu í Suður-Afríku og er því 27 ára.   Hann byrjaði að spila golf 10 ára og vann fyrsta unglingamótið sem hann tók þátt í var á 49 höggum á 9 holum. Coetzee varð í 4. og 8. sæti á Callaway Junior World Championship í San Diego, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 16:55

PGA: DA Points vísað úr mótinu á Pebble Beach vegna svampbolta – Myndskeið

DA Points var vísað úr AT&T Pebble Beach National Pro-Am mótinu, vegna þess að hann setti svampbolta undir handarkrikann á sér þegar hann tók nokkrar æfingasveiflur á teig í mótinu. Það brýtur gegn reglu 14-3, sem bannar kylfingum að nota hjálpar- æfinga eða óvenjulegan útbúnað við keppnir. Sjá má myndskeið af atvikinu með því að SMELLA HÉR:  DA Points hafði ekki hugmynd um að hann hefði verið að brjóta reglu, sagði hann í viðtali við Golf Channel. „Við stóðum bara þarna á teig. Það var kalt og það rigndi,“ sagði Points. „Ég náði í boltann og tók nokkrar æfingasveiflur og var bara að reyna að hita upp. Mér var tjáð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Anna Rossi ——— 9. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Anna Rossi, en hún er ítölsk og spilar á LET. Anna fædd í Treviso á Ítalíu, 9. febrúar 1986 og er því 28 ára í dag. Meðal áhugamála hennar eru að hlusta á tónlist,  fara í ræktina og í verslunarleiðangra. Anna byrjaði að spila golf 12 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á það. Hún gerðist atvinnumaður í golfi 25. nóvember 2006. Besti árangur hennar á Evrópumótaröðinni er T-7 árangur á Open de Portugal árið 2007. Árið 2009 var besti árangur hennar T-16 á Opna ítalska – hún fór aftur í Q-school og hlaut kortið sitt 2010. Árið 2011, var besti árangur hennar 21. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 15:42

Bandaríska háskólagolfið: Ari, Theodór og golflið Arkansas Monticello sigraði á Southern Arkansas Dual

Laugardaginn 1. febrúar s.l. kepptu þeir Ari Magnússon, GKG og Theódór Karlsson, GKJ,  ásamt háskólaliði sínu, Arkansas Monticello í Southern Arkansas Dual. Viðureignin fór fram við Mystic Creek í Arkansas. Þetta var liðakeppni og kepptu kvenna- og karlagolflið Arkansas Monticello við Southern Arkansas háskólann um Arkansas Challenge Cup. Þetta var opnunarmót Arkansas Monticello í vor og í fyrsta sinn sem keppt var um framangreindan bikar. Svo fór að lið þeirra Ara og Theodórs sigraði naumlega með 1 höggs mun.  Kvennalið Arkansas Monticello tapaði fyrir liði Southern Arkansas. Þeir Ari (82) og Theodór (83) voru í 4. og 5. sæti af liði Arkansas Monticello í einstaklingskeppninni. Samanlagt skor kvenna-og karlaliða  1. Arkansas-Monticello: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 15:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn við keppni í Kaliforníu

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest hefja í dag keppni í Palos Verdes CC í Kaliforníu á Northrop Grumman Challenge. Mótið stendur daganna 9. – 11. febrúar 2014. Þátttakendur eru 88 frá 16 háskólum. Ólafía Þórunn fer út með þeim síðustu kl. 10:18 að staðartíma (þ.e. kl. 18:18 að íslenskum tíma en þau í Kaliforníu eru 8 tímum á eftir okkur 🙂 ) Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar og golfliðs Wake Forest með því að SMELLA HÉR: