Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 14:25

Evróputúrinn: George Coetzee sigraði á Joburg Open

Það var heimamaðurinn George Coetzee, sem sigraði á Joburg Open.

Hann lék á samtals 19 undir pari, 268 höggum (65 68 69 66).  Þetta er fyrsti sigur Coetzee á Evróputúrnum enn hann hefir sigrað 4 sinnum áður á Sólskinstúrnum og 5 sinnum alls sem atvinnumaður.

Coetzee er fæddur 18. júlí 1986 og er því 27 ára.

Þrír kylfingar deildu 2. sætinu heilum 3 höggum á eftir Coetzee: Englendingurinn Tyrrell Hatton, Jin Jeong frá Suður-Kóreu og heimamaðurinn Justin Walters.

Heimamaðurinn Thomas Aiken, sem leiddi fyrir lokahringinn rann niður skortöfluna í 5. sæti, sem hann deildi með 3 öðrum kylfingum,  eftir vonbrigðalokahring upp á 74 högg.

Skotinn og „nýliðinn“ á Evróputúrnum Alastair Forsyth, sem leiddi á fyrstu dögum mótsins hafnaði í 31. sæti, sem hann deildi með 5 öðrum kylfingum.

Til þess að sjá lokastöðuna á Joburg Open SMELLIÐ HÉR: