Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2014 | 13:40

Champions Tour: Allen enn í forystu á Allianz

Michael Allen er enn í forystu á 2. degi Allianz Championship á Boca Raton í Flórída.

Hann er samtals búinn að spila á 15 undir pari 129 höggum (60 69).

Fast á hæla honum aðeins 1 höggi á eftir eru þeir Scott Dunlap og Chien Soon Lu, báðir sem sagt á samtals 14 undir pari, hvor.

Enn öðru höggi á eftir í 4. sæti er Duffy Waldorf og síðan deila þeir Jay Haas og Tom Lehman 5. sæti enn öðru höggi á eftir.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Allianz Championship SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Allianz Championship SMELLIÐ HÉR: