Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 20:55
Afmæliskylfingur dagsins: Einar Sumarliðason – 14. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Einar Sumarliðason. Einar er fæddur 14. febrúar 1954 og á því 60 ára stórafmæli í dag. Einar býr á Selfossi og er kvæntur Oddbjörgu og á þrjár dætur Esther, Hilmu og Lovísu og einn son, Fjalar. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Einar Sumarlidason (60 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Norman von Nieda (Guðfaðir ástralska golfsins) 14. febrúar 1914; Mickey Wright, 14. febrúar 1935 (79); Bruce Patton Summerhayes, 14. febrúar 1944 (70 ára); Masanori Kobayashi, 14. febrúar 1976 (38 ára); Maude Aimee Leblanc, kanadísk, 14. febrúar 1989 (25 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 20:00
Svifnökkvi Bubba til sölu hjá Hammacher Schlemmer

Golfsvifnökkvi Bubba Watson, sem margir kalla orðið Bubbacraft er til sölu á $ 58.000 (u.þ.b. 6 milljónir íslenskra króna stykkið) hjá bandaríska sölufyrirtækinu Hammacher Schlemmer. Þar sem hér á landi rignir oft er synd að nökkvinn sé ekki til sölu hér (en reyndar yrði slíkur golfsvifnökkvi líklegast ansi dýr í endursölu, því með hefðbundinni álagningu færi verðið aldrei undir 8 milljónir!) Bubbacraft svifnökkvast yfir sandglompur sem vatnshindranir golfvalla jafnauðveldlega og yfir golfbrautir og karga. Í nökkvanum er 65-hp twin-cylindra Hirth vél og hann veldur engum skemmdum á grasi golfvalla. Golfsvifnökkra Bubba (Bubbacraft) er hægt að bakka á allt að 25mílur/klst hraða, en hann er eini nökkvinn í heiminum sem getur það. Windy Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 19:30
Evróputúrinn: Hahn leiðir og jafnaði vallarmet – Myndskeið frá 2. degi Africa Open

Bandaríski nýliðinn á Evróputúrnum, John Hahn, (sjá kynningu Golf 1 á Hahn með því að SMELLA HÉR: ) Ricardo Santos átti glæsihring á Africa Open á Eastern Cape í Suður-Afríku í dag; jafnaði vallarmetið á East London golfklúbbnum, þar sem mótið fer fram; var á 61 glæsihöggi!!! Hahn er samtals búinn að spila á 16 undir pari, 126 höggum (65 61). Hahn á 2 högg á forystumann gærdagsins, Portúgalann Ricardo Santos, sem er í 2. sæti á samtals 14 undir pari, 128 höggum (62 66). Santos lék á 9 undir pari, 62 höggum í East London golfklúbbnum, þar sem mótið fer fram. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Africa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 10:55
PGA: Darren Clarke dró sig úr Northern Trust mótinu

Fyrrum meistari Opna breska (2011), Darren Clarke, dró sig úr Northern Trust Open á Riviera í Kaliforníu vegna meiðsla í brjóstvöðva. Clarke var á alveg óvenjuháu skori á 1. hring, 78 höggum og meðal neðstu manna eftir opnunarhringinn. Þetta eru sömu meiðsl sem urðu til þess að hinn 45 ára Norður-Íri (Clarke) missti nýlega af Qatar Masters. Næsta mót sem Clarke er skráður í er Honda Classic mótið í Flórída, sem fram fer 27.febrúar – 2. mars n.k. Þess mæti í lokin geta að Írinn Pádraig Harrington byrjaði líka óvanailla á 1. hring Northern Trust, var á 75 höggum, en engar sögur fylgja um meiðsl hans. Til þess að sjá stöðuna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 10:30
Tiger sögur eru bestar

Það ætti að vera til vefsíða sérstaklega helguð sögum um Tiger Woods. Þær valda sjaldnast vonbrigðum og þessi, sem fyrrum liðsfélagi Tiger í Stanford, Conrad Ray, (sem nú þjálfar við Stanford) og sögð er í Golf Digest er ekkert öðruvísi: „Nokkrum mánuðum eftir að Tiger fór frá Stanford 1996, sagði fyrrum liðsfélagi hans Jake Poe mér þessa sögu, um dag, þar sem Tiger, sem hélt á dræver, var á öðrum enda Stanford æfingasvæðisins u.þ.b. 60 yarda (55 metra) í burtu og gekk Tiger í áttina til hans.“ „Hann var að horfa á mig“ sagði Poe „og ég sló með 4-járninu mínu að honum og boltinn sveif í átt að fótum hans. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 10:15
GK: Dagbjört og Margrét Sigurbjörns efstar á 5. púttmóti Keiliskvenna
Miðvikudaginn 12. febrúar s.l. var betri mæting á púttmót Keiliskvenna, en í langan tíma, en um 51 kona mætti . Brautin var svolítið sérstök og bauð upp á mikla nánd … Púttsnillingar kvöldsins voru: 1-2 sæti 29 högg Dagbjört Bjarnadóttir og Margrét Sigurbjörnsdóttir 3-7 sæti 30 högg Ólöf Baldursdóttir; Guðrún Bjarnadóttir;Valgerður Bjarnadóttir; Þórdís Geirsdóttir; Margrét Sigmundsdóttir Og þá eru úrslit þannig eftir 5 mót, hörð barátta á toppnum !! 1. sæti 116 högg = Þórdís Geirsdóttir 2. sæti 124 högg = Ólöf Baldursdóttir 3. sæti 125 högg = Lovísa Hermannsdóttir 4-5 sæti 127 högg = Guðrún Bjarnadóttir og afmælisdrottningin Anna Snædís Sigmarsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 09:45
Hvernig á að gera við boltaför í flötum? – Myndskeið

Flestir kylfingar vita vonandi hversu mikilvægt það er að laga eftir sig boltaför á flötum. Það er einnig gríðarlega mikilvægt að það sé rétt gert. Til þess að geta gert við boltaför þarf að eiga góðan flatargaffal. Finna má ýmsa góða flatargaffla t.d. í vefversluninni Hissa.is (sjá bláa auglýsingu til hægri á forsíðu Golf 1) Golfskálanum (flotti Victoria Inox flatargaffallinn hér að ofan) – en þeir eru t.a.m. góð Valentínusargjöf! Hér að neðan er skemmtilegt myndband um það hvernig á að gera boltaför á flötum. Til þess að skoða myndbandið SMELLIÐ HÉR: Heimild: gagolf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 09:15
Eigið öll góðan Valentínusardag!

Í dag er 14. febrúar – dagur elskenda. En af hverju er yfirleitt verið að halda upp á Valentínusardaginn? Upprunann er að finna í kaþólskum sið en Gelasius páfi tók nokkra Valentínusa (Valentínus af Temi, sem lést píslavættisdauða 197 og Valentínus af Róm sem lést píslavættisdauða 269) í píslavættistölu 496 – menn sem gáfu líf sitt vegna ástar á frelsi og í andstöðu við kúgun. Upprunalegu Valentínusarnir höfðu því litla tengingu við rómantíska ást – ást þeirra er annars eðlis, ást á mannkyninu eða lífinu almennt, sem þeir voru tilbúnir að gefa sitt eigið fyrir. Fyrsta rómantíska tenging Valentínusar dagsins við ást er í ljóðinu „Parlement of Foules“ eftir ljóðskáldið Geoffrey Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 08:55
Bandaríska háskólagolfið: Ingunn Gunnars hefur leik á Seminole Match Up í Flórída í dag

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og golflið Furman háskóla taka þátt í Seminole Match Up, sem fram fer á Southwood golfvellinum í Tallahassee, Flórída. Mótið stendur dagana 14.-16. febrúar og þátttakendur eru 60 frá 11 háskólum. Ingunn tekur bara þátt í einstaklingskeppninni. Hún á rástíma kl. 8:54 að staðartíma (kl. 13:54 hjá okkur hér heima á Íslandi). Til þess að fylgjast með gengi Ingunnar á Seminole Match Up SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 08:30
LPGA: Hedwall leiðir í hálfleik

Það var sænski kylfingurinn Caroline Hedwall sem tyllti sér í 1. sætið á ISPS Handa Women´s Australia Open. Hedwall er búin að spila á samtals 11 undir pari, 133 höggum (68 65); og leiðir með 1 höggi á forystukonu gærdagsins Suzann Pettersen, sem er búin að spila á 10 undi pari, 134 höggum (66 68). Í 3. sæti er heimakonuan Minjee Lee (samtals 9 undir pari) og 4. sætinu deila 3 kylfingar Holly Clyburn, Anna Nordqvist og Lydia Ko, allar á samtals á 8 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag ISPS Handa Women´s Australia Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

