Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 01:00
PGA: Dustin Johnson efstur á Northern Trust Open e.1. dag – hápunktar 1. dags

Það er fullskeggjaður Dustin Johnson, (DJ) sem leiðir á Northern Trust Open, þegar þetta er ritað, en mótið hófst á Riviera í Kaliforníu fyrr í kvöld. DJ lék 1. hring á 5 undir pari, 66 höggum og fékk 6 fugla og 1 skolla. Sjá má viðtal við Dustin eftir hringinn góða með því að SMELLA HÉR: Nokkrir eiga eftir að ljúka leik þ.á.m. JB Holmes sem líka er á 5 undir pari, en á 5 holur eftir óspilaðar og gæti því staðan enn breyst – en þó afar fáir aðrir sem ógna 1. sæti DJ. Til þess að sjá stöðuna á Northern Trust Open eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 21:00
GR: Sigríður og Svanhildur efstar eftir 5. púttmótið

Kvennanefnd GR greindu svofellt frá 5. púttmóti GR kvenna, sem fram fór í gær, miðvikudaginn 12. febrúar 2014: „Það var frábær stemmning á fimmta púttkvöldi GR kvenna þennan veturinn. Rúmlega 100 konur mættar til leiks og allar í banastuði. Mikið hlegið og skrafað að ekki sé talað um púttað. Flott skor og hart er barist á toppnum. Það er gaman að segja frá því að þær stöllur Svanhildur og Sigríður, sem hafa skipst á að vera á toppnum síðustu vikurnar eru nú jafnar í fyrsta sæti á 118 höggum eftir fimm hringi. Allt getur gerst því fast að þeim koma margir góðir pútterar sem geta auðveldlega slegist í toppbaráttuna. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 18:15
Evróputúrinn: Santos efstur á 62 höggum – Myndskeið frá hápunktum 1. dags Africa Open

Portúgalinn Ricardo Santos átti glæsihring á Africa Open á Eastern Cape í Suður-Afríku í dag og situr í efsta sæti eftir 1. dag. Santos lék á 9 undir pari, 62 höggum í East London golfklúbbnum, þar sem mótið fer fram. Santos sem var nýliði ársins á Evrópumótaröðinni 2013 eftir sigur á Madeira Islands Open, skilaði „hreinu skorkorti“ þ.e. með 9 fuglum og engum skollum og er 2 höggum á eftir þeim sem deila 2. sætinu: Garth Mulroy, (sem þegar var kominn í forystu snemma dags s.s. Golf 1 greindi frá) Rhys Davies, Richard Bland og Lucas Bjerregaard. Eftir frábæran hring sinn sagði Santos m.a.: „Ég spilaði pottþétt golf í dag og gaf Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 18:00
Samstarfi Westy og Foley lokið

Westy eða m.ö.o. Lee Westwood þarf að leita sér að nýjum sveifluþjálfara en hann tilkynnti að samstarf sitt við Sean Foley væri lokið. Westwood hafði aðeins unnið með Foley, sem m.a. þjálfar Tiger Woods og Justin Rose, frá því fyrir síðasta Opna breska á Muirfield, þar sem hann lenti í 3. sæti. Síðan þá hefir hann aðeins 1 sinni orðið meðal efstu 10 á Evrópumótaröðinni og sigraði aldrei árið 2013 og hefir farið úr topp-10 á heimslistanum niður í 33. sæti. Westwood hóf árið 2014 slælega þ.e. varð í 47. sæti á Farmers Insurance Open á PGA Tour og komst ekki einu sinni í gegnum niðurskurð á Waste Management Phoenix Open. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 17:00
Afmæliskylfingur dagsins: Michael Hoey ——– 13. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er kylfingurinn Michael Hoey, en hann fæddist í Ballymoney á Norður-Írlandi, 13. febrúar 1979 og er því 35 ára í dag. Hoey gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 12 árum, 2002. Hoey býr í Templepatrick, á Norður-Írlandi og er félagi í Galgorm Estate golfklúbbnum. Hann er kvæntur eiginkonu sinni Bev (frá árinu 2011) og þau eiga saman Erin (f. 2013). Hoey hefir sigrað 8 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 5 sinnum á Evrópumótaröðinni og 4 sinnum á Áskorendamótaröðinni (eitt mót var sameiginlegt mót Evrópumótaraðarinnar og Áskorendamótaraðarinnar). Eitt virtasta mót sem Hoey hefir sigrað til dagsins í dag er Alfred Dunhill Links Championship, en það mót vann hann árið 2011. Það ár Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 14:00
GK: Golfkylfur.is og Hraunkot bjóða upp á mælingar í Flightscope

Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis er gerð grein fyrir nýjustu fjárfestingu Golfkylfa.is og Hraunkots: „Golfkylfur.is hefur nú fest kaup á FlightScope X2. Þetta er nýjasti „launch monitor“ á markaðnum. Með þessari græju verða allar mælingar nákvæmari en nokkru sinni fyrr og þjónusta Golfkylfur.is og Hraunkots eykst til muna. Í samstarfi við Golfkylfur.is mun Golfklúbburinn Keilir nota FlightScope X2 fyrir æfingar hjá unglingum og afrekskylfingum sem eru í æfingarhópum GK. Einnig munu allir golfkennarar geta boðið upp á FlightScope í sinni kennslu í Hraunkoti gegn vægu gjaldi. FlightScope X2 notar radar til að framkvæma nákvæmar mælinga er varða kylfuhausinn, golfboltann og flug hans. Mörg önnur tæki nota myndavélar og reikniformúlur en radarinn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 12:00
LPGA: Pettersen efst e. 1. dag í Ástralíu

Norski kylfingurinn Suzann Pettersen tók forystuna á ISPS Handa Women´s Australia Open, sem hófst nú í morgun. Hún lék á 6 undir pari, 66 höggum. Suzann fékk 9 fugla og 3 skolla í The Victoria Golf Club, þar sem mótið fer fram og er með 1 höggs forystu á þær Jessicu Korda, Hee Young Park, Jaclyn Sweeney og Marion Ricordeau. Tíu kylfingar deila síðan 6. sætinu á 4 undir pari, þ.e. 2 höggum á eftir Pettersen, en það eru m.a. Lydia Ko, Caroline Hedwall og Paula Creamer. Þetta er fyrsta mót Suzann á árinu og það virtist taka hana svolítinn tíma að henni fyndist þægilegt að spila á vellinum, sbr. hennar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 09:30
Evróputúrinn: Africa Open mót vikunnar

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og Sólskinstúrnum er Africa Open, sem fram fer í East London golfklúbbnum á Eastern Cape, í Suður-Afríku. Snemma dags er það heimamaðurinn Garth Mulroy sem tekið hefir forystuna, en hann er á 7 undir pari, 64 höggum. Til þess að fylgjast með gengi mála á Afríca Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 08:00
Sjálfstraust lykillinn að velgengni Jimmy Walker

Það eru fáir kylfingar jafn „heitir“ í dag og PGA Tour kylfingurinn Jimmy Walker, eftir að hafa sigrað 3 sinnum það sem af er af keppnistímabili mótaraðarinnar. En hvað veldur því að Walker er allt í einu að blómstra nú? Butch Harmon þjálfari hans breytti ekki sveiflu Jimmy í þessari glæsiröð 3 sigra. Það sem hann breytti meira en nokkru öðru er hvernig Jimmy Walker hugsar. Hann gerði hann að náunga sem er erfiður viðfangs (ens. badass) Butch segir við Jimmy „Þú ert erfiður viðfangs!“ segir Erin Walker, eiginkona Jimmy. Butch segir við hann „Þú ert maðurinn!“ Butch segir þetta við hann öllum stundum. „Þegar maður heyrir það frá besta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2014 | 05:45
Hver er tölfræðilega séð besti púttarinn yfir allar mótaraðir s.l. 5 ár?

Svarið er að það er enginn hvort heldur er meðal leikmanna á Evrópumótaröðinni, PGA, Asíutúrnum eða Web Tour, sem er betri en LPGA leikmaðurinn Inbee Park. Inbee Park var nr.1 í púttum á flöt á tilskyldum höggafjölda (ens. Putts Per Green in Regulation, skammst. GIR) á LPGA Tour árin 2013,2012, 2009, 2008. Hér er tölfræðin hennar 2013=1.727 pútt per GIR 2012=1.720 2009=1.750 2008=1.74 Meðaltal pútta á hring: 2013=29.05 2012=28.34 2011=29.17 2010=29.1 2009=28.36 2008=27.68 Golfgoðsagnirnar Jack Nicklaus og Gary Player hafa sagt að ef þeir væru að byrja í golfi í dag myndu þeir pútta með vinstri hendina fyrir neðan þá hægri vegna þess að þá væru axlirnar samhliða eða í Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

