Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 20:55
Golfgrín á laugardegi

Vampíra slangrar eftir götunni á hjóli. Á gatnamótum er hún stöðvuð af lögreglunni. Lögreglan: „Hefirðu verið að drekka?“ Vampíran svaraði: „Já, tvo kylfinga.“
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 15:20
Evróputúrinn: Grillo í forystu fyrir lokahring Africa Open

Það er Argentínumaðurinn Emiliano Grillo, sem leiðir eftir 3. dag Africa Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og Sólskinstúrnum að þessu sinni. Grillo átti stórglæsilegan hring í dag upp á 62 högg, þar sem hann fékk Samtals er Grillo búinn að spila á 20 undir pari, 193 höggum (68 63 62). Tveimur höggum á eftir Grillo í 2. sæti er Englendingurinn Oliver Fisher á samtals 18 undir pari, 195 höggum (66 63 66) og þriðja sætinu deila 3 kylfingar: Thomas Aiken frá Suður-Afríku, Englendingurinn Richard Bland og Bandaríkjamaðurinn John Hahn, allir á 16 undir pari, 4 höggum á eftir Grillo. Til þess að sjá stöðuna á Africa Open eftir 3. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 15:00
Afmæliskylfingar dagsins: Eyþór Hrafnar og Þórdís Rögnvalds – 15. febrúar 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru Eyþór Hrafnar Ketilsson og Þórdís Rögnvaldsdóttir. Bæði eru þau fædd 15. febrúar 1996 og eru því 18 ára í dag. Eyþór Hrafnar er í Golfklúbbi Akureyrar (GA) og Þórdís er í Golfklúbbinum Hamri á Dalvík (GHD). Komast má á facebook síðu Eyþórs Hrafnars og Þórdísar hér að neðan til þess að óska þeim til hamingju með afmælið Eyþór Hrafnar Ketilsson (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið! ) Þórdís Rögnvaldsdóttir (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið! ) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Joyce Penelope Wilhelmina Frankenberg (leikkona betur þekkt sem Jane Seymour) 15. febrúar 1951 (63 ára); Lee Anne Pace 15. febrúar 1981 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 13:00
GR: Unglingarnir í æfingaferð á Spáni

Hópur unglinga í GR er nú á leið í æfingaferð til Spánar. Eftirfarandi myndir voru teknar af þeim meðan að þau biðu eftir flugi til Malaga frá London:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 12:30
Tvífari Tiger ákærður

Hinn Harvardmenntaði Canh Oxelson, 42 ára er einn þekktasti tvífari Tiger Woods og meðan Tiger var á hátindi ferils síns og reyndar allan s.l. áratug tók Oxelson allt að $ 3000 (eða u.þ.b. 400.000 íslenskra króna) fyrir að troða upp á ýmsum golfmótum eða öðrum golfsamkundum, sem tvífari Tigers. Nú hefir Oxelson verið ákærður fyrir hótun um að senda nektarmyndir af fyrrum kærustu sinni til vinnuveitenda hennar. Fyrrum kærasta Canh, Minochy Delanoi, 28 ára, sem er hjúkrunarfræðingur við Langone Medical Center við New York háskóla fékk hótunar-sms frá Canh 3. febrúar s.l. með nektarmyndum af henni í viðhengi, eftir að hún batt enda á 6 mánaða samband þeirra. Þar sagði Canh m.a.: „Gangi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 10:00
Jimmy Walker og fjölskylda búa í húsvagni á keppnisferðalögum

Hvernig lífi lifir maður þegar maður er „heitasti kylfingur í heimi?“ Jimmy Walker myndi segja ykkur að það sé frábært jafnvel þó hann búi eins og er ekki við mikinn lúxus, a.m.k. ekki eins mikinn og hann hefir efni á. Nei, Walker er ekkert að dekra við sig og fjölskylduna á Beverly Wilshire Hotel, sem er næsta glæsihótel við Riviera Country Club, meðan hann spilar í Northern Trust Open. Reyndar er dvalarstaður hans ekki með neitt vatn þannig að hann verður að fara í sturtu og raka sig á almenningssalernum. Reyndar er heimili hans ekki einu sinni með fráveitu þannig að öll fjölskyldan þarf að fara á almenningssalerni til að gera Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 09:00
Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá hefur leik í dag í Kaliforníu

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og „The Bulldogs“ golflið Fresno State hefja í dag leik á gríðarlegu sterku háskólamóti: Peg Barnard Invitational á golfvelli Stanford háskóla, í Kaliforníu. Mótið stendur dagana 15.-16. febrúar og þátttakendur eru 75 frá 14 háskólum. Þetta er fyrsta mót Guðrúnar Brá í bandaríska háskólagolfinu. Guðrún Brá fer út af 16. teig Stanford golfvallarins, en allir keppendur eru ræstir út á sama tíma kl. 9 að staðartíma (kl. 17 að okkar tíma hér heima á Íslandi). Til þess að fylgjast með gengi Guðrúnar Brá SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 08:40
LPGA: Choi og Lee leiða – Ko komin í 3. sætið e. 3. daginn á Women´s Australia Open

Það eru suður-kóreanski kylfingurinn Chella Choi og heimakonan Minjee Lee frá Ástralíu, sem leiða eftir 2. dag ISPS Handa Women´s Australia Open. Báðar eru þær búnar að spila á samtals 13 undir pari, 203 höggum; Choi (70 71 62) og Lee (66 67 68). Hin 16 ára Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi hækkar sig um 1 sæti frá gærdeginum og er komin í 3. sætið, en er 2 höggum á eftir forystukonunum á 11 undir pari, 205 höggum og forystukona 1. dags, norska frænka okkar Suzann Pettersen, er nú í 4. sæti enn öðru höggi á eftir. Forystukonan í hálfleik Caroline Hedwall hrundi niður skortöfluna eftir slælegan hring upp á 74 högg, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 08:30
Bandaríska háskólagolfið: Ingunn á 6 yfir pari e.1. dag Seminole Match Up

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og golflið Furman háskóla taka þátt í Seminole Match Up, sem fram fer á Southwood golfvellinum í Tallahassee, Flórída. Mótið stendur dagana 14.-16. febrúar og þátttakendur eru 60 frá 11 háskólum. Ingunn tekur bara þátt í einstaklingskeppninni. Hún lék 1. hring á 6 yfir pari, 78 höggum og deilir sem stendur 40. sæti. Til þess að fylgjast með gengi Ingunnar á Seminole Match Up SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 08:00
PGA: Sang-Moon Bae leiðir á Northern Trust – Hápunktar 2. dags

Það er Sang-Moon Bae, sem leiðir eftir 2. dag á Riviera í Kaliforníu, þar sem Northern Trust mótið fer fram. Hann er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 133 höggum (67 66). Á hæla hans koma Aaron Baddeley frá Ástralíu og Bandaríkjamaðurinn Robert Garrigus, aðeins 1 höggi á eftir, hvor. Einn í 4. sæti er síðan Charlie Beljan á samtals 7 undir pari og 5. sætinu deila síðan forystumaður 1. dags, Dustin Johnson og Jim Furyk, Brian Harman og William McGirt; allir á samtals 6 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Northern Trust SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

