Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2014 | 10:55

PGA: Darren Clarke dró sig úr Northern Trust mótinu

Fyrrum meistari Opna breska (2011),  Darren Clarke, dró sig úr Northern Trust Open á Riviera í Kaliforníu vegna meiðsla í brjóstvöðva.

Clarke var á alveg óvenjuháu skori á 1. hring, 78 höggum og meðal neðstu manna eftir opnunarhringinn.

Þetta eru sömu meiðsl sem urðu til þess að hinn 45 ára Norður-Íri (Clarke) missti nýlega af  Qatar Masters.

Næsta mót sem Clarke er skráður í er Honda Classic mótið í Flórída, sem fram fer 27.febrúar – 2. mars n.k.

Þess mæti í lokin geta að Írinn Pádraig Harrington byrjaði líka óvanailla á 1. hring Northern Trust, var á 75 höggum, en engar sögur fylgja um meiðsl hans.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Northern Trust SMELLIÐ HÉR: