Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 08:00

PGA: Hearn, Hoffman, Matsuyama og Na efstir á The Players – Hápunktar 1. dags

The Players, sem oft er nefnt 5. risamótið í golfinu hófst í gær á TPC Sawgrass í Flórída. Eftir 1. dag eru 4 kylfingar efstir og jafnir, en það eru David Hearn, Charley Hoffman, Hideki Matsuyama og Kevin Na. Allir hafa þessir 4 leikið á 5 undir pari, 67 höggum. Fast á hæla þeirra eru 6 aðrir kylfingar sem léku 1 höggi verr þ.e. á 4 undir pari, 68 höggum en meðal þeirra eru Ben Martin og Billy Horschel. Nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy er í 11. sæti á 3 undir pari; Tiger er á 1 yfir pari, 73 höggum í 77. sæti og allt loft virtist úr Masters Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 23:15

Nordic Golf League: Birgir Leifur T-7 e. 2. dag í Danmörku

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG er T-7 eftir 2. dag á Lyngbygaard golfvellinum í Brabrand, Danmörku þar sem NorthSide Charity Challenge á Nordic Golf League fer fram. Aðeins munar 4 höggum á Birgi Leif og efsta manni Svíanum Christopher Feldborg-Nielsen, sem búinn er að spila á samtals 5 undir pari (68 71). Mótið stendur dagana 6.-8. maí 2015. Þátttakendur eru 156. Birgir Leifur er samtals búinn að spila á 1 undir pari, 143 höggum (68 75). Ólafur Björn Loftsson, GKG komst ekki í gegnum niðurskurð; Hann lék á 8 yfir pari, 152 höggum (74 78) – en niðurskurður var miðaður við 4 yfir pari. Til þess að sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 18:30

LET Access: Ólafía Þórunn í 3. sæti og Valdís Þóra í 9. sæti e. 1. dag í Sviss!!!

Íslensku keppendurnir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL eru að gera góða hluti á ASGI Ladies Open, sem hófst í dag 7. maí og stendur til 9. maí n.k. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni. Ólafía Þórunn lék á 2 undir pari, 70 höggum og deilir 3. sætinu með 5 öðrum kylfingum, þ.á.m. finnska kylfingnum Elinu Nummenpaa, sem spilað hefir á LET. Á hringnum fékk Ólafía Þórunn 4 fugla og 2 skolla. Valdís Þóra lék á 1 undir pari, 71 höggi og deilir 9. sætinu líka með 5 öðrum kylfingum, þ.á.m. sænska kylfingnum Vivu Schlassberg, sem líkt og Nummenpaa hefir spilað á LET. Margir sterkir kylfingar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 17:00

Golfvellir landsins koma vel undan vetri – Búið að opna 15 velli

Staðan á golfvöllum landsins er almennt mjög góð eftir veturinn. Líka á þeim völlum á Norður-og Austurlandi þar sem snjóað hefur á undanförnum dögum. Nú þegar eru 15 vellir opnir á SV-hluta landsins og stefnt að opnun hjá flestum á Höfuðborgarsvæðinu um miðjan maí. Alls eru 63 golfklúbbar á landinu og starfið hjá flestum þeirra er farið í gang af fullum krafti. Heimild: GSÍ


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Henrik Bjørnstad — 7. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Norðmaðurinn Henrik Bjørnstad. Hann fæddist 7. maí 1979 og er því 36 ára í dag. Bjørnstad er fyrsti kylfingur Norðmanna til þess að spila á PGA Tour en hann varð í 13. sæti á Q-school PGA 2005. Áður spilaði Bjørnstad á Evróputúrnum 1999 og 2001-2004. Fyrsta keppnistímabilið náði hann niðurskurði í 17 mótum af 31 sem hann spilaði í og varð 1 sinni meðal 10 efstu. Þessi árangur varð til þess að hann varð í 152. sæti á peningalista PGA Tour. Árið 2007-2009 spilaði Bjørnstad mestmegnis á Nationwide Tour. Árið 2009 tryggði Bjørnstad sér enn keppnisrétt á PGA Tour með því að verða meðal 25 efstu á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 14:45

Keegan Bradley talar um rifrildi sitt og Jiménez

Keegan Bradley veitti Golf Channel viðtal fyrir Players mótið, sem hefst í dag og voru þeir Golf Channel menn einkum forvitnir um hvernig Bradley liti á rifrildi sitt við Miguel Ángel Jiménez nú þegar smá tími væri liðinn frá atvikinu og ró hefði færst í hlutina. Bradley sagði m.a.: „Mér var veitt lexía af miklum klækjakarli og ég lét hann ergja mig. Ég var að reyna að fá dóm á 18. holu og féll svolítið fyrir þessari afvegaleiðingu. Þetta var snilld af hans hálfu. Ég sá hvað ég gerði rangt og mun nota það næst.“ Mikill partur af æsingnum af hálfu Bradley fólst í því þegar Jiménez sagði kylfusveini Bradley, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Therese Koelbaek (34/45)

Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 18.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Þrjár (þ.e. þær í 18.-20. sæti) erumeð fullan spilarétt eftir 7 manna bráðabana og hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Sjö kylfingar deildu 11. -17. sætinu, en þær léku allar á samtals 5 undir pari, hver. Þetta eru þær: frænka Tiger: Cheyenne Woods,  Therese Koelbaek frá Danmörku, franski kylfingurinn  Perrine Delacour,  SooBin Kim frá Suður-Kóreu,  Sakura Yokomine frá Japan,  Sophia Popov frá Þýskalandi og  Ju Young Park, frá Suður-Kóreu. Ju Young Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2015 | 12:00

Tiger athyglissjúkur

Tiger Woods virðist ákveðinn að halda athygli allra fjölmiðla á sér jafnvel þó hann sé golflega séð í einni mestu lægð á ferli sínum. Svo segir í ágætri grein Martin Dempster sem starfar hjá the Scotsman, sem má sjá með því að SMELLA HÉR:  Þannig segir í greininni: „En eftir því sem Rory McIlroy lætur kylfurnar tala … „þá virðist Tiger Woods bara ekki geta látið neinn annan njóta golfkastljóssins án þess að fá sinn skerf.“ Dempster nefnir sem dæmi að Tiger hafi valið fyrsta dag heimsmótsins í holukeppni til þess að tilkynna um „þétta sumardagskrá sína„; tilkynningu sem átti svo sannarlega var ætlað komast í fyrirsagnirnar.“ Síðan s.l. sunnudag Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2015 | 22:00

Laghentir í Ytri-Njarðvík góðir!!!

Golf1 frétti af kylfingi sem ætlaði að nýta sér góða veðrið sem búið er að vera hér sunnanlands í gær, 5. maí og fara í golf. Þegar lagt var af stað var bíllinn eitthvað skrykkjóttur í gangi og svo gaus upp lykt sem ekki átti að vera og vélarljósið í bílnum fór að blikka. Þessi kylfingur var á Suzuki jeppling,  þannig að hann hafði samband við Suzuki umboðið í Skeifunni og bað um að bíllinn yrði bilanaskoðaður með tölvu. Maðurinn sem tók við símtalinu hjá Suzuki umboðinu sagði að hann gæti ekki gefið kylfingnum tíma fyrr en 29. maí þ.e. EFTIR MEIRA EN 3 VIKUR; kannski væri hægt að koma Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2015 | 20:00

Nordic Golf League: Birgir Leifur T-2 – á 68 höggum!!!

Í dag hófst á Lyngbygaard golfvellinum í Brabrand, Danmörku, NorthSide Charity Challenge. Mótið stendur dagana 6.-8. maí 2015.  Þátttakendur eru 156. Meðal keppenda eru Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og  Ólafur  Björn Loftsson, GKG. Birgir Leifur er T-2 eftir 1. dag þ.e. deilir 2. sætinu með 3 öðrum keppendum; eftir glæsihring upp á 4 undir pari, 68 högg!!! Ólafur Björn er T-54 eftir 1. dag; lék á 2 yfir pari, 74 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á NorthSide Charity Challenge SMELLIÐ HÉR: