
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Therese Koelbaek (34/45)
Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 18.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Þrjár (þ.e. þær í 18.-20. sæti) erumeð fullan spilarétt eftir 7 manna bráðabana og hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Sjö kylfingar deildu 11. -17. sætinu, en þær léku allar á samtals 5 undir pari, hver.
Þetta eru þær: frænka Tiger: Cheyenne Woods, Therese Koelbaek frá Danmörku, franski kylfingurinn Perrine Delacour, SooBin Kim frá Suður-Kóreu, Sakura Yokomine frá Japan, Sophia Popov frá Þýskalandi og Ju Young Park, frá Suður-Kóreu.
Ju Young Park, Sophia Popov, Sakura Yokomine, Soo Bin Kim og Perrine Delacour hafa þegar verið kynntar, en sú sem kynnt verður í dag er Therese Koelbaek
Therese Koelbaek lék á samtals 5 undir pari, 355 höggum (69 72 75 68 71)
Therese Koelbaek fæddist 1. febrúar 1988 í Gentofte, Danmörku og er því 27 ára. Hún er dóttir Jan og Karin Koelbaek og á einn eldri bróður Martin. Therese útskrifaðist frá menntaskólanum í Naerum í Danmörku og hélt síðan til Bandaríkjanna þar sem hún spilaði golf með UNLV (University of Nevada – skólaliðið heitir Rebels) – Sjá má afrek Therese í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Therese útskrifaðist (magna cum laude) í markaðsfræðum frá UNLV.
Heimavöllur Therese í Danmörku er Søllerød Golf Club – en hún býr í dag í Scottsdale, Arizona.
Therese gerðist atvinnumaður í golfi haustið 2011. Strax árið eftir þ.e. 2012 var Therese farin að spila á Symetra Tourog varð í 26. sæti á peningalistanum, eftir að hafa náð öllum niðurskurðum strax fyrir árið sitt.
Árið 2013 var bakverkur að þjaka Therese, sem kom í veg fyrir að hún gat spilað það tímabil. En eftir að hafa náð sér gat hún spilað fullt keppnistímabil á Symetra Tour 2014 og komst í árslok í gegnum Q-school og er því 2015 keppnistímabilið að spila á LPGA Tour.
Þjálfari Koelbaek, sem frá því að hún var unglingur hefir verið í landsliðum Dana, er Jeff Ritter.
Fræðast má nánar um Koelbaek með því að skoða heimasíðu hennar, sem má gera með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 13. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2022)
- ágúst. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022
- ágúst. 13. 2022 | 15:00 Evróputúrinn: Haraldur Franklín á -1 á ISPS Handa World Inv. e. 3. dag
- ágúst. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgit Henriksen – 12. ágúst 2022
- ágúst. 11. 2022 | 18:00 GSÍ: Fjöldi kylfinga á Íslandi aldrei verið meiri
- ágúst. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Helga Laufey Guðmundsdóttir – 11. ágúst 2022
- ágúst. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erna Elíasdóttir —– 9. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge