
Afmæliskylfingur dagsins: Raphaël Jacquelin – 8. maí 2015
Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin. Raphaël fæddist 8. maí 1974 í Lyon í Frakklandi og á því 41 árs afmæli í dag! Raphaël gerðist atvinnumaður í golfi, fyrir 20 árum síðan 1995, eftir að verða franskur meistari. Raphaël hóf ferilinn á Áskorendamótaröðinni. Árið 1997 sigraði hann tvívegis og varð í 4. sæti á peningalistanum þannig að hann komst á Evrópumótaröðina 1998.
Það var samt ekki fyrr en í 238. mótinu sem hann tók þátt í á Evrópumótaröðinni að hann vann fyrsta sigur sinn. Það var fyrir 10 árum, árið 2005 á Open de Madrid. Hann vann í 2. sinn, 2007 á BMW Asian Open. Besti árangur hans á stigalista Evrópumótaraðarinnar (Order of Merit) var 20. sætið árið 2003.
Árið 2011 vann Raphaël síðan í 3. sinn á Evrópumótaröðinni, þ.e. á Sicilian Open (Opna sikileyska) átti 1 högg á Anthony Wall. Með þessum sigri komst Raphaël Jacquelin aftur á topp-100 á heimslistanum. Það var síðan 21. apríl 2013, sem Jacquelin vann 4. titil sinn á Evrópumótaröðinni þegar hann vann þá Felipe Aguilar frá Chile og Maximillian Kiefer í bráðabana á Open de España. S.l. 2 ár hefir Raphaël ekkert sigrað, en sigrar hans eru alls orðnir 7 á ferlinum.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pat Meyers, 8. maí 1954 (61 árs); Jens Gud, 8 maí 1956 (59 ára); Soffia M Gustafsdottir, 8. maí 1960 (55 ára) Þuríður Guðrún Aradóttir, 8. maí 1963 (52 ára) Franklin Langham, 8. maí 1968 (47 ára); Andrew McArthur, 8. maí 1979 (36 ára); Andrès Romero, 8. maí 1981 (34 ára frá Argentínu); Anton Haig, 8. maí 1986 (29 ára Suður-Afríkani) Caroline Sarah Bon, 8. maí 1987 (28 ára frá Nýja-Sjálandi); Handalína Vefnaðarvöruverslun og Sportlíf Í Glæsibæ.
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 13. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2022)
- ágúst. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022
- ágúst. 13. 2022 | 15:00 Evróputúrinn: Haraldur Franklín á -1 á ISPS Handa World Inv. e. 3. dag
- ágúst. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgit Henriksen – 12. ágúst 2022
- ágúst. 11. 2022 | 18:00 GSÍ: Fjöldi kylfinga á Íslandi aldrei verið meiri
- ágúst. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Helga Laufey Guðmundsdóttir – 11. ágúst 2022
- ágúst. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erna Elíasdóttir —– 9. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge