Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Cheyenne Woods (35/45)

Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 18.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Þrjár (þ.e. þær í 18.-20. sæti) erumeð fullan spilarétt eftir 7 manna bráðabana og hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Sjö kylfingar deildu 11. -17. sætinu, en þær léku allar á samtals 5 undir pari, hver.
Þetta eru þær: frænka Tiger: Cheyenne Woods,  Therese Koelbaek frá Danmörku, franski kylfingurinn  Perrine Delacour,  SooBin Kim frá Suður-Kóreu,  Sakura Yokomine frá Japan,  Sophia Popov frá Þýskalandi og  Ju Young Park, frá Suður-Kóreu.

Cheyenne Woods

Cheyenne Woods

Allar af þessum sjö hafa nú verið kynntar nema Cheyenne Woods, sem kynnt verður í dag.
Cheyenne Woods lék á samtals 5 undir pari, 355 höggum (68 79 67 71 70)

Cheyenne Nicole Woods fæddist í Phoenix, Arizona, 25. júlí 1990 og er því 24 ára. Hún er dóttir Earl Dennison Woods Jr., sem er hálfbróðir Tiger Woods. Afi hennar, Earl Woods, (pabbi Tiger) var fyrsti þjálfarinn hennar.

Cheyenne spilaði golf með golfliði Xavier College Preparatory og vann tvö ár í röð Arizona 5A State Championships, þ.e. árin 2006 og 2007.

Cheyenne Woods

Cheyenne Woods

Cheyenne var við nám og spilaði með golfliði Wake Forest University (útskrifaðist 2012) og var liðsfélagi hennar m.a. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, en þær báðar léku undir merkjum Demon Deacons. Cheyenne átti glæstan áhugamannsferil þar sem hún vann meira en 30 mót.

Árið 2009 hlaut Cheyenne undanþágu styrktaraðila til þess að spila í LPGA móti, þ.e. the Wegmans LPGA. Hún komst ekki í gegnum niðurskurð og munaði aðeins 4 höggum i þessari fyrstu tilraun hennar á þessari sterkasti mótaröð heims.

Cheyenne Woods og kengúra í Ástralíu

Cheyenne Woods og kengúra í Ástralíu

Í april 2011 vann Cheyenne the Atlantic Coast Conference Championship (ACC).

Árið 2012, gerðist Woods atvinnumaður eftir útskrift frá Wake Forest.

Hún hlaut þátttökurétt á U.S. Women’s Open risamótinu 2012, eftir að hún og önnur deildu með sér efsta sætinu í úrtökumóti fyrir þetta eitt vinsælasta risamót kvennagolfsins, og hóf atvinnumannsferil sinn með stæl á enn öðru risamóti: LPGA Championship 2012.

Cheyenne náði fyrsta sigri sínum á atvinnumannsmóti á móti á SunCoast Ladies Series seint í ágúst 2012.

Cheyenne Woods

Cheyenne Woods

Hún sigraði hins vegar í fyrsta sinn á Evrópumótaröð kvenna 9. febrúar 2014 á Volvik RACV Ladies Masters, í Queensland, Ástralíu, en mótið telst jafnframt sem sigur á ALPG, þ.e. áströlsku LPGA Fyrir sigurinn hlaut Cheyenne $57.000,- og 2 ára undanþágu á Evrópumótaröð kvenna.

Í árslok fór Cheyenne síðan í Q-school LPGA og er komin á LPGA þetta keppnistímabilið 2015 eftir glæsilegan árangur og 11.-17. sætið þar eins og að framan greinir.