Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 07:41

Hvað var í sigurpokum helgarinnar?

Hvað var í sigurpokum Rickie Fowler og George Coetzee, sem sigruðu sl. helgi – Rickie á The Players og George Coetzee á AfrAsia Bank Mauritus Open? Stutta svarið við spurningunni er að Fowler er Cobra-maður en Coetzee Titleist-maður en báðir nota Titleist Scotty Cameron púttera og Titleist Pro V1x bolta. Hér má sjá hvaða verkfæri þeir notuðu: Rickie Fowler Players Championship, PGA Tour Dræver: Cobra Fly-Z+ (10°, Matrix prototype skaft) 3-tré: Cobra Fly-Z+ (14°, Aldila Tour Blue 73 X skaft) 5-tré: Cobra Bio Cell+ (18.5 °, Aldila Tour Blue 70 x skaft) 4-9 járn: Cobra Fly-Z Pro (KBS C-Taper 125 S+ sköft) 47° fleygjárn: Cobra Tour Trusty, True Temper Dynamic Gold Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2015 | 22:00

Tiger skrifar pilti bréf sem lagður var í einelti fyrir að stama

Piltur, sem var strítt fyrir að stama, fékk mikla hvatningu frá Tiger, sem einnig átti í vandræðum með tal sitt eitt sinn og stamaði. Golf Digest birti bréf  Tiger til piltsins, en í því stóð m.a. eftirfarandi: „Ég veit hvernig það er að vera öðruvísi og að fitta stundum ekki inn. Ég stamaði líka sem barn og ég talaði við hundinn minn sem sat þarna og hlustaði þar til hann sofnaði.  Ég var líka í tímum í tvö ár til þess að fá aðstoð við (að hætta að stama), þar til það hætti.“ Eineltishremmingar menntaskólastráksins, sem kallaður var Dillon í greininni, vöktu athygli þegar móðir stráksins sneri sér til 8-falds Solheim Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2015 | 20:00

Raunveruleg ástæða sambandsslita Woods og Vonn: Framhjáhald!

Í afar ítarlegri grein Daily Mail kemur fram að raunveruleg ástæða sambandsslita Tiger Woods og Lindsey Vonn hafi verið sú að hann hélt framhjá henni.  Sjá greinina með því að SMELLA HÉR:  Sagt er að eftir að hann komst ekki í gegnum niðurskurð á Farmers Open hafi hann leitað huggunar í faðmi annarrar konu, óþekktrar. Lindsey sleit sambandinu strax og sagt er að hún hafi sagt að eitt skipti lokaði hún auga fyrir þessari yfirsjón hans en þá væri e.t.v. stutt í að hún yrði að loka báðum og þar á eftir væru e.t.v. óteljandi aðrar konur í sambandi þeirra. Talið er að Tiger hafi átt í 120 samböndum áður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Birgir Björn Magnússon – 12. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Birgir Björn Magnússon, GK. Birgir Björn er fæddur 12. maí 1997 og á því 18 ára afmæli í dag. Hann varð Íslandsmeistari í höggleik í flokki 14 ára og yngri stráka 2011. Birgir Björn innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn með stæl 8. ágúst 2011, en hann setti nýtt vallarmet af rauðum í Grafarholtinu við það tækifæri spilaði á -7 undir pari, 64 glæsihöggum og fékk auk þess örn á par-5 15. braut Grafarholtsins, sem mörgum finnst ein erfiðasta golfbraut landsins. Sumarið, 2012, spilaði Birgir Björn bæði á Unglingamótaröðinni og Eimskipsmótaröðinni. Hann byrjaði árið 2012 á því að fara í æfingaferð með landsliðshópnum, völdum af Úlfari Jónssyni, til Eagle Creek í Flórída. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2015 | 12:00

Hver er kylfingurinn: Rickie Fowler? (1/5)

Nafnið sem er á allra vörum þessa dagana er Rickie Fowler.  Hann sannaði það s.l. helgi 9-10. maí 2015 að hann er ekki bara sætur strákur, kynþokkafullur kylfingur, Boys banda meðlimur með bíladellu heldur frábær kylfingur. Félagar hans á PGA Tour voru stuttu fyrir sigur hans á The Players mótinu, sem oft er nefnt 5. risamótið, búnir að velja hann ásamt Ian Poulter „ofmetnustu kylfingana á PGA Tour.“ Fowler er svo sannarlega búinn að þvo þau hallmæli af sér og nú er m.a. talað um hann sem „verðandi golfgoðsögn“! En hver er kylfingurinn Rickie Fowler? Því verður reynt að svara í 5 greinum og birtist sú fyrsta í dag. Rick Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2015 | 08:00

Bestu par-3 í heimi

Það eru margir sem hafa sína uppáhalds par-3 holu. Hér á landi eru vinsælir kandídatar t.a.m. Skrúður á Garðavelli á Akranesi; Bergvíkin í Leirunni; par-3 7. holan á Meðaldalsvelli á Þingeyri, (ekki margar holur sem hafa náttúrulegan foss!; eyju-flötin á 16. braut í Borgarnesi; par-3 10. holan á Hvaleyrinni  (þ.e. Sandvíkin) o.s.frv. o.s.frv. Á listum yfir 10 bestu par-3 holur heims sjást oft sömu holurnar. T.d. hálfeyju-„green“ 17. holunnar á TPC Sawgrass. Sjá má samantekt Golf Travel um bestu par-3 holur í heimi með því að SMELLA HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2015 | 22:30

PGA: Heitur koss Rickie og Alexis

Það eru allir að tala um heitan koss, sem Rickie Fowler hlaut að launum fyrir sigur sinn á The Players á TPC Sawgrass í Flórída í gær. Eftir sigurinn kyssti og knúsaði kærasta Rickie Alexis Randock hann heitt og innilega. Allir golffréttamiðlar eru uppfullir af fréttum af kossinum – m.a. talar Amanda Balionis um hann – Sjá með því að SMELLA HÉR: Hér má sjá umfjöllun People um Kossinn SMELLA HÉR:  Sjá má myndskeið USA Today um Kossinn með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2015 | 22:00

PGA: Sergio Garcia truflaður við leik með hrópum á Players

Að vera að keppa til úrslita á The Players Championship er ekkert nýtt fyrir Sergio Garcia. Ekki heldur að gerð séu hróp að leikmönnum. En þessi hróp virtust háværari og dónalegri en venjulega fyrir Spánverjann þegar hann var í 3 manna umspilinu. Garcia var truflaður við fjölmörg högg sem hann tók, sérstaklega þegar lítill hópur áhorfenda hrópaði „U-S-A.“ á 17. teig. Garcia setti ekki niður 13 metra pútt og misheppnaðist algerlega að fara í bráðabanahluta umspilsins. Rickie Fowler og Kevin Kisner kepptu til úrslita og Fowler setti niður 5. fuglinn sinn þessa vikuna á eyjuholunni á 17. og nældi sérí 2. PGA Tour sigur sinn. „Þetta var að mestu leyti frábært,“ sagði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2015 | 19:00

Afmæliskylfingar dagsins: Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir og Ingunn Gunnarsdóttir —– 11. maí 2015

Það eru Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir, GK og Ingunn Gunnarsdóttir, GKG sem eru afmæliskylfingar dagsins. Guðbjörg Erna er fædd 11. maí 1975 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Ingunn fæddist í dag fyrir kvart af öld og er því fædd 11. maí 1990. Komast á Facebooksíðu afmæliskylfinganna til þess að óska Guðbjörgu Ernu og Ingunni til hamingju daginn hér að neðan:   Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með afmælið!) Ingunn Gunnarsdóttir (25 ára stórafmæli Innilega til hamingju með afmælið! ) Aðrir frægir kylfingar eru: Aðalheiður Jörgensen, 11. maí 1956 (59 ára); 11. maí Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir, 11. maí 1962 (53 ára); Blair Piercy, (kanadískur kylfingur) 11. maí Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2015 | 18:10

Ian Poulter og Ted Bishop í hár saman út af „ofmetnu“ kosningunni

Ian Poulter og fyrrum forseti PGA of America Ted Bishop eru nú enn eitt skiptið komnir í hár saman yfir kosningu þar sem leikmenn PGA völdu Ian Poulter einn „ofmetnasta“ kylfing mótaraðarinnar. Poulter, sem og bandaríski kylfingurinn Rickie Fowler voru kosnir mest „ofmetnu kylfingar“ PGA Tour, en sá síðarnefndi svaraði gagnrýnisröddunum með því að sigra á  the Players Championship í 3 manna umspili. Bishop sem rekinn var frá PGA of America í október s.l. fyrir að atyrða Poulter og kalla hann „lil girl“ þ.e. „litla grenjuskjóðu“ á virtist vera að gera grín að Poulter eftir sigur Fowler á TPC Sawgrass. Bishop tvítaði: „Rickie Fowler – er verðandi goðsögn.  Nú er aðeins einn Lesa meira