
Afmæliskylfingur dagsins: Sandra Gal ———– 9. maí 2015
Það er W-7 módelið fyrrverandi Sandra Gal sem er afmæliskylfingur dagsins. Sandra er fædd 9. maí 1985 og á því 30 ára stórafmæli í dag! Foreldrar Söndru heita Jan og Alexandra Gal og er hún einkabarn þeirra. Sandra er mjög listhneigð og fæst við að mála myndir í frítíma sínum. Hún var við nám í University of Florida 2005-2007 og spilaði í bandaríska háskólagolfinu með skólaliðinu The Florida Gators.
Sandra hefir 1 sinni sigrað á LPGA og finnst mörgum orðið tímabært að hún bæti öðrum sigri við, en hún hefir verið að standa sig mjög vel á mótum á 2015 tímabilinu.
Eini sigur Söndru Gal á LPGA kom 27. mars 2011 á Kia Classic.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:
Harry Vardon, (f. 9. maí 1870 – d. 20. mars 1937); Betty Jameson, 9. maí 1919 – 7. febrúar 2009) (Hún var einn af stofnendum LPGA); Sam Adams 9. maí 1946 (69 ára); John Mahaffey 9. maí 1948 (67 ára); Ásta Jóna Skúladóttir, GK, 9. maí 1959 (56 ára); Guðmundur Ármann Pétursson 9. maí 1970 (45 ára) Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir, 9. maí 1972 (43 ára; ); Paul Maddy, 9. maí 1981 (34 ára); Tvisturinn Vestmannaeyjum, 9. maí 1988 (27 ára) Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, 9. maí 1989 (26 ára); Andri Jón Sigurbjörnsson, 9. maí 1989 (26 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024