Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 04:00
PGA: Simpson og Streb leiða – Hápunktar 2. dags á Wells Fargo – Myndskeið

Ýmis glæsileg tilþrif sáust fyrr í kvöld á Wells Fargo mótinu, móti vikunnar á PGA Tour. T.a.m. fékk bandaríski kylfingurinn Colt Knost glæsilegan ás á par-3 17. holuna – nokkuð sem eiginlega bara ekki sést. Webb Simpson og Robert Streb leiða á samtals 10 undir pari, 134 höggum. Það munar 2 höggum á þeim annars vegar og Martin Flores og Patrick Rodriguez, sem deila 3. sætinu. Nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy, er síðan aðeins 3 höggum frá efsta sætinu ásamt þeim Phil Mickelson og Will MacKenzie, á samtals 7 undir pari. Ýmsir góðir kylfingar komust ekki í gegnum niðurskurð eins og t.d. Adam Scott, Camilo Villegas og Padraig Harrington. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 22:00
Evróputúrinn: Espana leiðir e. 2. dag á Opna spænska

Franski kylfingurinn Edouard Espana leiðir í hálfleik á Opna spænska. Eftir 2 spilaða hringi er Espana á samtals 7 undir pari, 137 höggum (68 69). Í 2. sæti er argentínski kylfingurinn Ricardo Gonzalez, á samtals 6 undir pari. Michael Hoey og Darren Fichardt deila síðan 3. sæti á 5 undir pari. Ofangreindir 4 kylfingar eru þeir einu sem lokið hafa 2 hringjum undir samtals 140 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Opna spænska SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Opna spænska SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 18:00
Evróputúrinn: Sjáið fagn Jiménez þegar hann fær ás og vinnur 288 bjóra – Myndskeið

Miguel Angel Jimenez tekur þátt í Opna spænska. Hann hafði 288 ástæður til að fagna ás sínum á 160 yaarda par-3 8. holunni á Open de Espana í dag, föstudeginum 15. maí 2015. Hann fékk nefnilega ás eftir að hafa slegið með 8-járni og vann sér inn 288 dósir af bjór. Hann fagnaði þessu með „fagni“ þ.e. með því að dansa gleðidans. Sjá má ás Jiménez og fagn hans eftir á með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ken Venturi ——- 15. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er bandaríski kylfingurinn Ken Venturi, sem einna frægastur er fyrir að hafa sigrað á Opna bandaríska risamótinu árið 1964. Bandaríski kylfingurinn Kenneth Venturi, alltaf kallaður Ken, fæddist 15. maí 1931 í San Francisco og hefði því orðiðí 84 ára, á árinu, en hann lést reyndar nánast upp á dag 2 árum síðan, þ. 17. maí 2013. Sjá frétt Golf 1 um það eð því að SMELLA HÉR: Venturi er fyrrum atvinnukylfingur á PGA-mótaröðinni og golfsjónvarpsfréttamaður. Ken, (sem var 1.83 m á hæð og 77 kg þungur) vakti fyrst athygli (fyrir 59 árum) þ.e. árið 1956 þegar hann sem áhugamaður, lenti í 2. sæti á The Masters, eftir að hafa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 14:00
PGA: Streb leiðir e. 1. dag á Wells Fargo mótinu

Það er bandaríski kylfingurinn Robert Streb, sem leiðir e. 1. dag á Wells Fargo mótinu í Quail Hollow, Charlotte, Norður-Karólínu. Hann lék á 7 undir pari, 65 höggum. Það eru eflaust ekki margir sem kannast við Streb og þeir sem áhuga hafa geta kynnt sér kynningu Golf 1 á Streb með því að SMELLA HÉR: Aðeins 1 höggi á eftir eru landar hans Kevin Chappel og Patrick Reed. Annar hringur er þegar hafinn og má fylgjast með stöðunni með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 11:59
LPGA: Klatten efst á Kingsmill – Hápunktar 1. dags

Franski kylfingurinn Joanna Klatten er efst á Kingsmill Championship, sem fram fer í Williamsburg, Virginíu. Hún lék 1. hring mótsins í gær á 6 undir pari, 65 höggum. Klatten er e.t.v. ekki þekktasta nafnið í kvennagolfinu og má sjá kynningu Golf1 á Klatten með því að SMELLA HÉR: Í næstu sætum á Kingsmill eru allt bandarískir kylfingar. Í 2. sæti eru Morgan Pressel, Alison Lee og Pat Hurst aðeins 1 höggi á eftir Klatten. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Kingsmill Championship SMELLIÐ HÉR: Sjá má hápunkta 1. dags á Kingsmill Championship með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 09:00
GB: Opna Vormótið haldið á morgun!

Indæl væta undir morguninn í gær, 14. maí 2015, gerði það að verkum að Hamarsvöllur í Borgarnesi hjá þeim GB-ingum tók verulega við sér. Ekki sakaði að fá hlýindin sem fylgdu. Meðfylgjandi mynd var tekin um 12.00 leytið (Uppstigningadag), en þá var sjónarmunur á vellinum frá því fyrr um morguninn. Það spáir flottu veðri á morgun laugardaginn, 16. maí, en þá halda þeir GB-ingar sitt fyrsta Opna mót. Hægt er að komast inn á vefsíðu GSÍ til að skrá sig í mótið með því að SMELLA HÉR: Nú er bara að fjölmenna til Borgarness á flott mót á velli sem allur er að koma til!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2015 | 07:00
GBO: Syðridalsvöllur í mjög góðu ástandi

Unnsteinn Sigurjónsson hjá Golfklúbbi Bolungarvíkur skrifar: „Samkaupsmótin byrja næsta miðvikudag kl. 20.00 Nýbreytni, nú verða verðlaun fyrir flesta punkta í hverjum mánuði Flatir voru slegnar í dag (þ.e. í gær á Uppstigningadag 14. maí 2015) og er völlurinn í mjög góðu standi. Brautir eru þurrar og ekkert mál að labba á gólfskóm Æfingar eru á æfingasvæðinu, en við spilum golf á vellinum.“
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2015 | 22:00
Wie sýnir stöðuna í golfi

Fyrir þau okkar sem voru hissa yfir útskýringu Tiger um hvað gerðist hjá honum á the Waste Management Phoenix Open —þ.e. að hann hafi ekki getað notað gluteus maximus vöðvann þ.e. stóra rassvöðvann — þá er Michelle Wie e.t.v. með svarið á hvað gerðist. Wie sem er meistari á Opna bandaríska kvenmeistararisamótinu 2014 (US Women’s Open champion) segir að leyndarmál hennar hefjist á hvernig hún hefur staðsetur lærin. Wie er ansi hávaxin (líkt og Tiger) þ.e. 1,85 m og hún leggur áherslu á kraftinn í lærum í æfingum sínum til þess að hún hafi góða undirstöðu undir snúninginn aftur í sveiflunni. Ekki hafa áhyggjur af því ef þið eru ekki hávaxnir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2015 | 20:00
Rickie bauð Alexis til Bahamas til að halda upp a Players sigurinn!

Alexis Randock kærasta Rickie Fowler setti meðfylgjandi mynd á Instagram eftir sigur Rickie kærasta sins á The Players Championship s.l. helgi. Meðfylgjandi texti var með Instagraminu: „Kvöldverður á ströndinni á Bahamas til að halda upp á stóra sigur mannsins míns!! Rickie öll erfiðisvinnan og úthaldið skein í gegn á sunnudaginn í epískum sigri sem er sögulegur. Ég gæti ekki verið stoltari af þér!!! #Players Meistari.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

