Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 23:05
GR: Óskar Bjarni og Hjörtur sigruðu í punktakeppni – Patrekur Nordquist var á besta skori á Opnunarmóti Korpu

Fyrsta golfmót sumarsins hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, Opnunarmót Korpu var haldið á Korpúlfsstaðvelli í dag og opnaði völlurinn formlega með mótahaldinu. Keppt var í punktakeppni með forgjöf í tveimur forgjafarflokkum og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Að auki voru veitt verðlaun fyrir besta skor. Nándarverðlaun voru veitt þeim sem var næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3. holum vallarins. Golf 1 var á staðnum og má sjá myndir af Opnunarmótinu með þvi að SMELLA HÉR: Þátttakendur voru 170 og luku 167 leik þar af 19 konur og af þeim stóð Ásta Óskarsdóttir sig best, lék á 37 punktum en á besta skori kvenna var Halla Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 21:00
GB: Arnór Tumi og Pétur Sverris sigruðu á Vormóti GB Opið 2015

Golfklúbbur Borgarness hefur aldrei haldið „opið“ golfmót svo snemma sumar. Þrátt fyrir kuldabolann undanfarnar vikur hefur okkur tekist gera völlinn það verulega leikhæfan að það virtist ánægja á hverri brá hjá keppendum í Opna Vormóti GB í dag (nema sumir með skorið). Og aðsókn góð þrátt fyrir lokun Hvalfjarðarganga, en alls voru þátttakendur 34, þar af 9 kvenkylfingar, sem er gott hlutafall kvenkylfinga í móti. Heimamenn fóru næstum hamförum í græðgi til verðlauna eins og heimaríkir hundar. Besta skor: Arnór Tumi Finnsson GB, 5 yfir pari, 76 högg. Punktakeppni (verðlaun veitt fyrir efstu 3 sæti): 1. sæti Pétur Sverrisson GB fgj. 11 f. 21 s. 17 samtals: 38 punktar 2. sæti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 20:00
Evróputúrinn: Ensk forysta f. lokahring Opna spænska

Það eru ensku kylfingarnir David Howell og James Morrison, sem eru í forystu fyrir lokahring Opna spænska. Báðir eru búnir að spila á samtals 7 undir pari, 209 höggum; Howell (71 69 69) og Morrison (70 71 68). Í 3. sæti er ítalski kylfingurinn Francesco Molinari 2 höggum á eftir forystumönnunum á samtals 5 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Opna spænska SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Opna spænska SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 18:00
5 bestu pútterarnir á PGA

Hver skyldi nú pútta best á PGA mótaröðinni bandarísku, sterkustu mótaröð heims? Átt er við þann sem er með fæst pútt að meðaltali í mótum PGA. Gætuð þið nefnt besta púttarann eða 5 bestu púttara PGA í röð? Ef þið eruð ekki viss ættuð þið kannski að líta á samantekt Golf Travel, í myndum og máli. Byrjað er að telja þann sem er í 5. sæti og endað á besta púttaranum – Til að sjá SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingar dagsins: Birgir Leifur, Hanna Lilja og Ingi Rúnar – 16. maí 2015

Suma daga verður varla fundinn kylfingur, sem hægt er að skrifa afmælisgrein um. Á öðrum dögum, sem þessum, er gnægð kylfinga sem á afmæli. Afmæliskylfingar dagsins eru 3 þjóðþekktir kylfingar: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG; Ingi Rúnar Gíslason, GR og Hanna Lilja Sigurðardóttir, GR. Komast má á Facebook síðu kylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með daginn hér: Ingi Rúnar Gíslason 16. maí 1973 (42 ára – Innilega til hamingju!!!) Birgir Leifur Hafþórsson 16. maí 1976 (39 ára – Innilega til hamingju!) Hanna Lilja Sigurðardóttir F. 16. maí 1988 (27 ára – Innilega til hamingju!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bækur Og Kiljur, 16. maí Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 14:00
Reynið grip Arnold Palmer til að fá meiri stjórn, lengd og nákvæmni í höggum ykkar!

Fæstir myndu vilja sveiflu golfgoðsagnarinnar Arnold Palmer. Hún er svolítið sérstök… en hún virkaði. Um það bera 7 risamótssigrar og 62 sigrar á PGA Tour vitni. Leyndarmál velgengni Palmers lá í gripi hans. Þegar skoðaðar eru gamlar upptökur af Palmer sést hann oft líta niður með handleggjum sínum á gripið og það er ekki óhugsandi að hann hafi vitað að hann væri með fullkomið grip og væri að fullvissa sig um að svo væri. Hér fylgja leiðbeiningar (á ensku – svo ekkert tapist í íslenskri þýðingu) hvernig gripi Arnie verði náð: HOW TO GRIP IT LIKE PALMER: Get the King’s legendary hold in five steps: 1. Set the grip under Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 12:00
Tiger með skalla

Öllu er nú velt upp í fjömiðlum og þeir sem skína skærast eru undir smásjá og fer ekkert framhjá vökulu auga fréttamanna. Spurning er síðan hvort allt sé fréttaefni. En án þess að fjölyrða um það þá hélt Tiger Woods til Sin City eftir framhjáhald sitt, sem leiddi til sambandsslitanna við Lindsey Vonn og stóð þar fyrir pókerkvöldi sem bar yfirskriftina „Tiger´s Poker Night.“ Þar tóku fjölmiðlamenn eftir því að skallablettur er farinn að myndast á höfði Tiger, en hann var auðvitað án Nike dersins síns, sem hann er venjulega með úti á golfvelli. Ekki bara leikur hans sem farinn er að þynnast! Fyrir þá sem áhuga hafa á slíkum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 11:00
LPGA: Lee efst e. 2. dag Kingsmill

Þetta er svo sannarlega keppnistímabil nýliðanna á LPGA; þeir eru að standa sig virkilega vel. Í efsta sæti í hálfleik á Kingsmill Championship, sem fram fer í Williamsburg, Virginíu er einmitt einn nýliði Alison Lee. Alison Lee er búin að spila á samtals 9 undir pari, 133 höggum (66 67). Á hæla hennar er enn annar nýliði, Minjee Lee á 7 undir pari en 2. sætinu deilir Minjee með kylfingi, sem einnig komst í gegnum Q-school s.l. desember en er aðeins eldri í hettunni; Perrine Delacour frá Frakklandi. Alison Lee sagði eftirfarandi eftir að ljóst var að hún væri í efst e. 2. hring: „Þetta er frábær keppni. Hún er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 10:30
Korpan, Hvaleyrin og Urriðavöllur opna í dag!

Þrír stærstu golfvellir höfuðborgarsvæðisins Hvaleyrarvöllur þeirra Keilismanna, Urriðavöllur, Oddverja og Korpan þeirra GR-inga opna í dag. Golftímabilið fer nú að hefjast fyrir alvöru! Það eru 76 Keilis-menn sem búnir eru að skrá sig í Hreinsunarmót Keilis – Opnun vallar. 170 manns eru skráðir í Opnunarmót Korpu og 173 skráðir í Opnunarmót Urriðavallar. Veður til golfiðkunar er ákjósanlegt hér á höfuðborgarsvæðinu, sól og stilla og hitinn í tveggja stafa tölu! Golf 1 verður með úrslitafrétt úr öllum mótum síðar í dag.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 10:00
Íslandsbankamótaraðirnar hefjast eftir viku!

Íslandsbankamótaröðin fyrir börn og unglinga hefst 23. maí n.k. en fyrsta mótið fer fram á Garðavelli á Akranesi. Í flokkum 17-18 ára hefst keppni á föstudeginum 22. maí en þeir flokkar leika 54 holur en 36 holur í öðrum aldurs- flokkum. Skráning er hafin og er hægt að finna upplýsingar um fjölda keppenda í hverjum flokki í upplýsingareit um mótið í mótaskrá. Fyrsta mótið á Áskorendamótaröð Íslandsbanka fer fram á Kálfatjarnarvelli Vatnsleysuströnd á sama tíma, þ.e. laugardaginn 23. maí. Leiknar eru 18 holur á mótum Áskorendamótaraðarinnar. Áskorendamótaröð Íslandsbanka er tilvalin æfingamótaröð fyrir þá sem ekki ná forgjafarmörkum Íslandsbankamótaraðarinnar. Nú þegar þetta er ritað kl. 9:55 hafa að laugardagsmorgni 16. maí hafa Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

